Saltarinn 95Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 95

Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.

Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum.

Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.

Í hans hendi eru jarðardjúpin og fjallatindarnir heyra honum til.

Hans er hafið og hann hefir skapað það, og hans hendur mynduðu þurlendið.

Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,

því að hann er vor Guð, og vér erum gææzlulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans.

Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,

þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, og það þótt þeir sæju verk mín.

Í fjörutíu ár hafði eg viðbjóð á þessari kynslóð, þá sagði eg: Þeir eru andlega viftur lýður og þekkja ekki vegu mína,

og þess vegna sór eg í reiði minni: Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.