Saltarinn 94Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 94

Drottinn, Guð hefndarinnar, Guð hefndarinnar, birzt þú í geisladýrð.

Rís þú upp, dómari jarðar, endurgjald ofstopamönnunum það, er þeir hafa aðhafst.

Hversu lengi eiga óguðlegir, Drottinn, hversu lengi eiga óguðlegir að fagna?

Þeir ausa úr sér drambyrðum, allir illvirkjarnir rembast;

þeir kremja lýð þinn, Drottinn, þjá arfleifð þína,

drepa ekkjur og aðkomandi og myrða föðurlausa

Tog segja: Jah sér það ekki, Jakobs Guð tekur eigi eftir því.

Takið eftir, þér hinir fillsku meðal lýðsins! og þér fáráðlingar, hve nær ætlið þér að verða liygnir?

Mun sá eigi heyra, sem eyrað hefir plantað, mun sá eigi sjá, sem augað hefir tilbúið?

Skyldi sá, er agar þjóðirnar, eigi hegna, hann sem kennir mönnunum þekkingu?

Drottinn þekkir hugsanir mannsins, því að þær eru einber hégómi.

Sæll er sá maður, er þú agar, Jah, og fræðir í lögmáli þínu,

til þess að hlífa honum við mótlætisdögunum, unz gröf er grafin fyrir óguðlega.

Því að Drottinn hrindir eigi burt lýð sínum og yfirgefur eigi arfleifð sína,

heldur mun rétturinn hverfa aftur til hins réttláta og honum munu allir hjartahreinir fylgja.

Hver rís upp mér til hjálpar gegn illvirkjunum, hver gengur fram fyrir mig gegn illgjörðamönnunum?

Ef Drottinn veitti mér eigi fulltingi, þá mundi sál mín brátt hvíla í dauðaþögn.

Þegar eg hugsaði: mér skriðnar fótur, þá studdi mig miskunn þín, Drottinn.

Þegar margar áhyggjur lögðust á hjarta mitt, bresti huggun þín sálu mína.

Mun dómstóll spillingarinnar vera í bandalagi við þig, hann sem býr öðrum tjón undir yfirskini réttarins?

Þeir ráðast á líf hins réttláta og sakfella saklaust blóð;

en Drottinn er mér háborg og Guð minn klettur mér til hælis.

Hann geldur þeim misgjörð þeirra og eyðir þeim í ilsku þeirra; Drottinn, Guð vor, eyðir þeim.