Saltarinn 93Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 93

Drottinn er konungur orðinn, hann hefir íklæðst hátign; Drottinn hefir klæðst, gyrt sig styrkleik og fest jörðina, svo að hún haggast eigi.

Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú.

Straumarnir hófu upp, Drottinn, straumarnir hófu upp raust sína, straumarnir hófu upp dunur sínar.

Drottinn á hæðum er tignarlegri en gnýr mikilla, tignarlegra vatna, tignarlegri en boðar hafsins.

Vitnisburðir þínir eru harla áreiðanlegir; húsi þínu hæfir heilagleiki, ó Drottinn, um allar aldir.