Saltarinn 92Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 92

Sálmur. Hvíldardagsljóð.

Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu, þú hinn hæsti,

að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur,

á tístrengjað hljóðfæri og hörpu með strengjaleik gígjunnar.

Því að þú hefir glatt mig, Drottinn, með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna eg.

Hversu mikil eru verk þín, Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar;

fíflið eitt skilur eigi og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.

Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust, þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu;

Sen þú, sem ert á hæðum, ert til að eilífu, Drottinn.

Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá, óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.

En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn, mig hressir þú með ferskri olíu.

Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína, eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.

Hinn réttláti grær sem pálminn, - vex sem sedrustréð á Líbanon.

Þeir eru gróðurseltir í húsi Drottins, gróa í forgörðum Guðs vors.

Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir,

til þess að kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.