Hjarta Maríu
Minningardagur — kirkjan minnist dýrlings í messu dagsins.
Almennur kirkjutími · Vika 10Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraEinnig í dag
Antóníus frá Padúa, prestur og kirkjufræðari
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Jesaja 61:9-11
- Guðspjall
- Lúkasarguðspjall 2:41-51
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Þú, drottning meyja, mild og glæst,sem mátt nú sitja Drottni næst.Þú annaðist í æsku hann,þú ólst og nærðir Frelsarann.Það sem í Eden áður varunnið til dauða’ og glötunar,bættir þú allt og lagðir lið,lukust þá upp hin gullnu hlið.Heill sé þér, ljós í himna höll,heill syngur jarðarbyggðin öll.Þú hefur leitt oss lífsins til,lofgjörð til þín ég syngja vil.Jesús, sem mærin milda ól,miklar þig himinn, jörð og sól.Lof sé þér Faðir, faðir minn,fylgi mér helgur Andi þinn. Amen.
Sálmur 119, 145-152
Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.
146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.
147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.
148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.
149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.
152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
Sálmur — 2M 15, 1-4a. 8-13. 17-18 — Sigursöngur eftir gönguna gegnum Rauðahaf
Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.
1Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottins þennan lofsöng: Ég vil lofsyngja Drottni * því að hann hefur sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.
2Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er minn Guð * og ég vil vegsama hann, Guð föður míns, og ég vil tigna hann.
3Drottinn er stríðshetja * Drottinn er hans nafn.
4Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið * og hinir völdustu kappar hans drukknuðu í Hafinu rauða.
8Og fyrir blæstri nasa þinna hlóðust vötnin upp * rastirnar stóðu eins og veggur, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.
9Óvinurinn sagði: „Ég skal elta þá, ég skal ná þeim, ég skal skipta herfangi * sál mín skal skeyta skapi sínu á þeim, ég skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.“
10Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá * þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.
11Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú * dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?
12Þú útréttir þína hægri hönd * jörðin svalg þá.
13Þú hefur leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni * þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.
17Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú * Drottinn, hefur gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.
18Drottinn skal ríkja um * aldur og að eilífu!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði.
Sálmur 117
Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofið Drottin, allar þjóðir.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Jes 61, 10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefir klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefir sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúður býr sig skarti sínu.
Stutt svarvers
Drottinn hefur útvalið hana, * sína elskuðu frá upphafi.
Drottinn hefur útvalið hana, * sína elskuðu frá upphafi.
Hann hefur valið hana sem lífsförunaut.
Sína elskuðu frá upphafi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn hefur útvalið hana, * sína elskuðu frá upphafi.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Hjarta mitt og líkami minn langa til Guðs lifanda.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Lofsyngjum Frelsara vorn, sem valdi Maríu mey til að vera móður sína. Vér skulum biðja hann:Megi móðir þín, Drottinn, biðja fyrir oss.Réttlætissól, hin flekklausa mær var hvíta dagrenningin sem boðaði uppkomu þína,veit að vér megum ávallt lifa í ljósi komu þinnar.Orðið eilífa, þú valdir Maríu sem hina óspilltu örk bústaðar þíns,leystu oss frá spillingu syndarinnar.Frelsari mannkyns, móðir þín stóð við rætur kross þíns,veit, fyrir árnaðarbænir hennar, að vér megum eiga þann fögnuð að eiga þátt í píslum þínum.Af fullkomnu örlæti og kærleika gafst þú Maríu, sem móður, lærisveininum sem þú elskaðir,hjálpa oss að lifa sem verðug börn slíkrar göfugrar móður.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú hefur búið Heilögum Anda verðugan bústað í hjarta sællar Maríu meyjar. Veit náðarsamlega að fyrir árnað þessarar meyjar verðskuldum vér að vera musteri dýrðar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Líknargjafinn þjáðra þjóða,þú, sem kyrrir vind og sjó,ættjörð vor í ystu höfumundir þinni miskunn bjó.Vertu með oss, vaktu hjá oss,veittu styrk og hugarró.Þegar boðinn heljar hækkar,Herra, lægðu vind og sjó.Föðurland vort hálft er hafið,helgað þúsund feðra dáð.Þangað lífsbjörg þjóðin sótti,þar mun verða stríðið háð.Yfir logn og banabylgjubjarmi skín af Drottins náð.Föðurland vort hálft er hafið,hetjulífi' og dauða skráð.Þegar brotnar bylgjan þunga,brimið heyrist yfir fjöll,þegar hendir sorg við sjóinn,syrgir, tregar þjóðin öll,vertu ljós og leiðarstjarna,lægðu storm og boðaföll,líknargjafinn þjáðra þjóða,þegar lokast sundin öll. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.
Sálmur 116, 10-19
Andstef · Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.
10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“
11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“
12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?
13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.
14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.
15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.
16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.
17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.
18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,
19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Drottinn Jesús lægði sjálfan sig og fyrir því hefur og Guð að eilífu hátt upphafið hann.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn Jesús lægði sjálfan sig og fyrir því hefur og Guð að eilífu hátt upphafið hann.
Stuttur ritningarlestur
Heb 13, 20-21Guð friðarins, er leiddi hinn mikla hirði sauðanna, Drottin vorn Jesúm, upp frá dauðum með blóði eilífs sáttmála, hann fullkomni yður í öllu góðu til að gjöra vilja hans og komi því til leiðar í oss, sem þóknanlegt er í hans augum, fyrir Jesúm Krist. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.
Stutt svarvers
Hversu dásamleg eru * verkin þín, Drottinn.
Hversu dásamleg eru * verkin þín, Drottinn.
Þú gjörðir þau öll með speki.
Verkin þín, Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hversu dásamleg eru * verkin þín, Drottinn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þegar Jesús sá mannfjöldann kenndi hann í brjósti um þá, því þeir voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú ert vörn þeirra sem á þig vona. Hlýð mildur á bænir vorar. Styð oss ávallt með náð þinni, svo að vér þóknumst þér í vilja vorum og athöfnum er vér breytum eftir boðorðum þínum, því að mannkynið er veikt og megnar ekkert án þín. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007