Gamla testamentiðSpámennirnir
Andi Drottins, Drottinn, er yfir mér, af því að Drottinn hefir smurt — — mig til að flytja nauðstöddum gleðilegan boðskap, og sent mig til að græða þá, sem hafa sundurmarið -hjarta, til að boða herteknum frelsi og fjötruðum lausn,
til að boða náðarár Drottins og hefndardag Guðs vors, til að hugga alla hrelda,
til að láta hinum hreldu í Zíon í té, gefa þeim höfuðdjásn í stað ösku, fagnaðarolíu í stað hrygðar, skartklæði í stað hugarvíls; og þeir munu kallaðir verða réttlætis-eikur, plantan Drottins honum til vegsemdar.
Þeir munu byggja upp hinar fornu rústir, reisa af nýju tóttir fyrri líða, koma upp aftur eyddu borgunum, sem legið hafa við velli í marga mannsaldra.
Útlendingar munu standa yfir hjörðum yðar og halda þeim til haga, og aðkomnir menn vera akurmenn og víngarðsmenn hjá yður;
Sen sjálfir munuð þér kallaðir verða prestar Drottins og nefndir verða þjónar Guðs vors; þér munuð njóta fjárafla þjóðanna og stæra yður af auðlegð þeirra.
Fyrir þá smán, er þér þolduð, skuluð þér fá tvöfalt, og í stað háðungar skulu þeir lagna yfir hlutskifti sínu; fyrir því skulu þeir eignast tvöfold óðul í landi sínu, og eilíf gleði skal falla þeim í skaut.
Því að eg, Drottinn, elska réttlæti, en hata glæpsamlegt rán; eg geld þeim laun þeirra með trúfesti og gjöri við þá eilífan sáttmála.
Og niðjar þeirra munu kunnir verða meðal þjóðanna og afsprengi þeirra á meðal þjóðflokkanna; allir, sem sjá þá, munu kannast við, að þeir eru sú kynslóð, sem Drottinn hefir blessað.
Eg gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefir klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefir sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúðgumi lætur á sig höfuðdjásn og brúður býr sig skarti sínu.
Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta, svo mun Drottinn Guð láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.