Gamla testamentiðSpámennirnir
Sökum Zíonar get eg ekki þagað og sökum Jerúsalem get eg ekki kyrr verið, unz réttlæti hennar rennur upp sem ljómi og hjálpræði hennar sem brennandi blys.
Þá skulu þjóðirnar sjá réttlæti þitt og allir konungar vegsemd þína, og þú munt nefnd verða nýju nafni, er munnur Drottins mun ákveða.
Og þú munt verða prýðileg kóróna í hendi Drottins og konunglegt höfuðdjásn í hendi Guðs þíns.
Þú munt ekki framar nefnd verða »Yfirgefin« og land þitt ekki framar nefnt verða »Auðn«, heldur skalt þú kölluð verða »Yndið mitt« og land þitt »Eiginkona«, því að Drottinn ann þér og land þitt mun manni gefið verða.
Því eins og ungur maður fær meyjar, eins munu synir þínir eignast þig; og eins og brúðgumi gleðst yfir brúði, eins mun Guð þinn gleðjast yfir þér.
Eg hefi skipað varðmenn yfir múra þína, Jerúsalem; þeir skulu aldrei þegja, hvorki um daga né nætur. Þér sem minnið Drottinn á, unnið yður engrar hvíldar!
Ljáið honum engrar hvíldar, unz hann reisir Jerúsalem og gjörir hana vegsamlega á jörðinni.
Drottinn hefir svarið við hægri hönd sína og við sinn máttuga armlegg: Eg mun aldrei framar gefa óvinum þínum korn þitt að eta, og eigi skulu útlendir menn drekka aldinlög þinn, sem þú hefir erfiði fyrir haft;
heldur skulu þeir, sem hirt hafa kornið, eta það sjálfir og lofa Drottin fyrir, og þeir sem safnað hafa aldinleginum, skulu drekka hann í forgörðum helgidóms míns.
Gangið út, gangið út um borgarhliðin! Greiðið götu lýðsins! Leggið, leggið braut! Ryðjið burt grjótinu! Reisið merki fyrir þjóðirnar!
Sjá, Drottinn gjörir það kunnugt til endimarka jarðarinnar! Segið dótturinni Zíon: Sjá, hjálpræði þitt kemur! Sjá, endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum!
Og þeir munu kallaðir verða »hinn heilagi lýður«, »hinir endurleystu Drottinn«, og þú munt kölluð verða »hin fjölsótta«, »borgin, sem eigi var yfirgefin«.