Jesajabók 60Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 60

Statt upp, skin þú, því að ljós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér!

Því sjá, myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðunum; en yfir þér upp rennur Drottinn, og dýrð hans Þirtist yfir þér.

Heiðingjarnir stefna á ljós þitt og konungar á ljómann, sem upp rennur yfir þér.

Hef upp augu þín og litast um: þeir safnast allir saman og koma til þín; synir þínir koma af fjarlægum löndum og dætur þínar eru bornar á mjöðminni.

Við þá sýn muntu gleðjast, hjarta þitt mun titra og svella, því að auðlegð hafsins hverfur til þín og fjárafli þjóðanna kemur undir þig.

Mergð úlfalda hylur þig, ungir úlfaldar frá Midian og Efa; þeir koma allir frá Saba: gull og reykelsi færa þeir, og þeir kunngjöra lof Drottinn.

Allar hjarðir Kedars safnast til þín, hrútar Nebajóts þjóna þér: þeir stíga upp á altari mitt mér til þóknunar, og hús dýrðar minnar gjöri eg dýrlegt.

Hverjir eru Þessir, sem koma fljúgandi eins og ský og sem dúfur til búra sinna?

Því að mín bíða eylöndin, og Tarsis-knerrir fara fremstir, til þess að flytja sonu þína heim af fjarlægum löndum, og þeir hafa með sér silfur sitt og gull sitt — vegna nafns Drottins, Guðs þíns, og vegna hins Heilaga í Ísrael, af því að hann hefir gjört þig vegsamlegan.

Útlendir menn munu hlaða upp múra þína, og konungar þeirra þjóna þér; Því að í reiði minni sló eg þig, en af náð minni miskunna eg þér.

»Hlið þín munu ávalt opin standa, þeim er hvorki lokað dag né nótt, il þess að menn geti fært þér fjárafla þjóðanna og konunga þeirra sem bandingja.

Því að hver sú þjóð og hvert það konungsríki, sem eigi vill lúta þér, skal undir lok líða og þær þjóðir munu gjöreyddar verða.

Prýði Líbanons mun til þín koma: kýpresviður, álmviður og buksviður, hver með öðrum, til þess að prýða helgan stað minn og gjöra vegsamlegan stað fóta minna.

Og synir þeirra, sem kúguðu þig, munu koma til þín niðurlútir, og allir þeir, sem smánuðu þig, munu fleygja sér flötum fyrir fætur þér; og þeir munu kalla þig borg Drottins, Zion hins Heilaga í Ísrael.

Í stað þess, að þú áður varst yfirgefin, höfuð og enginn fór um hjá þér, gjöri eg þig að eilífri vegsemd, að fögnuði margra kynslóða.

Og þú munt drekka mjólk þjóðanna og sjúga brjóst konunganna, og þá skalt þú reyna það, að eg Drottinn, er frelsari þinn, og Jakobs voldugi lausnari þinn.

Eg mun færa þér gull í stað eirs og silfur í stað járns, eir í stað trjáviðar og járn í stað grjóts; eg gjöri friðinn að valdstjórn þinni og réttlætið að valdsmanni þínum.

Eigi skal framar heyrast getið um ofríki í landi þínu, né um tjón og tortíming innan landamerkja þinna; þú skalt kalla hjálpræði múra þína og sigurfrægð hlið þín.

þú skalt ekki framar hafa sólina til að lýsa þér um daga, og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu; heldur skal Drottinn vera þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull.

Þá mun sól þín ekki framar ganga undir og tungl þitt ekki minka, því að Drottinn mun vera þér eilíft ljós og hörmungardagar þínir skulu þá vera á enda.

Og lýður þinn — þeir eru allir réttlátir, þeir munu eiga landið eilíflega: kvisturinn, sem eg hefi gróðursett, verk handa minna, er eg gjöri mig vegsamlegan með.

Hinn minsti skal verða að þúsund og hinn lítilmótlegasti að voldugri þjóð. Eg, Drottinn, mun hraða því, þegar að því kemur.