Gamla testamentiðSaga
Og Hanna gjörði bæn sína og mælti: Hjarta mitt fagnar í Drottni, horn mitt er hátt upp hafið fyrir fulltingi Guðs míns; munnur minn er upp lokinn gegn óvinum mínum, því að eg gleðst yfir þinni hjálp.
Enginn er heilagur sem Drottinn, því að enginn er til nema þú; ekkert bjarg er til sem vor Guð.
Mælið eigi án afláts drambyrði, ósvífni komi eigi út af munni yðar. Því að Drottinn er Guð alvitundar og af honum eru verkin vegin.
Bogi kappanna er sundur brotinn, en máttfarnir menn gyrðast styrkleika.
Mettir leigja sig fyrir brauð, en hungraðir njóta hvíldar. Óbyrjan fæðir jafnvel sjö, en margra barna móðirin mornar og þornar.
Drottinn deyðir og lífgar, færir til heljar niður og leiðir upp þaðan.
Drottinn gjörir fátækan og ríkan, niðurlægir og upphefur.
Hann reisir hinn lítilmótlega úr duftinu, lyftir hinum snauða upp úr saurnum, til þess að leiða þá til sætis hjá þjóðhöfðingjum og setja þá á tignarstól. Því að Drottinn heyra stólpar jarðarinnar og á þá setti hann jarðríkið.
Fætur sinna guðhræddu varðveitir hann, en hinir guðlausu farast í myrkri. Því að fyrir eigin mátt sigrar enginn:
þeir, sem berjast móti Drottni, verða sundur molaðir. Uppi yfir þeim þrumar hann í himninum; Drottni dæmir endimörk jarðarinnar. Hann veitir kraft konungi sínum og lyftir upp horni síns smurða.
Síðan fór Elkana heim til sín í Rama; en sveinninn gegndi þjónustu Drottins hjá Elí presti.
En synir Elí voru hrakmenni; þeir skeyttu ekki um Drottin,
né hvað prestinum bar með réttu af hálfu lýðsins. Hve nær sem einhver færði sláturfórn, þá kom sveinn prestsins, meðan verið var að sjóða kjötið, með þrítentan fork í hendinni
og rak hann ofan í ketilinn, eða pottinn, eða suðupönnuna, eða grýtuna, og alt sem upp kom á forkinum, það tók presturinn handa sér. Svo fóru þeir með alla Ísraelsmenn, sem komu þangað til Síló.
Meira að segja, áður en fitan var brend, kom sveinn prestsins og sagði við þann, sem fórnaði: Gef mér kjöt, til þess að steikja handa prestinum; hann vill ekki taka við soðnu kjöti af þér, heldur hráu.
Segði maðurinn þá við hann: Fyrst verður þó að brenna fituna; tak síðan slíkt er þú girnist! þá svaraði hann: Nei, heldur skalt þú gefa það nú þegar, ella mun eg taka það með valdi.
Og synd hinna ungu manna var mjög stór fyrir Drottni, því að mennirnir lítilsvirtu fórn Drottins.
En Samúel gegndi þjónustu frammi fyrir Drottni sem ungur sveinn, skrýddur línhökli.
Og móðir hans var vön að gjöra honum lítinn möttul og færði honum hann á ári hverju, þá er hún kom með manni sínum til þess að færa hina árlegu fórn.
Þá blessaði Elí Elkana og konu hans og sagði: Drottinn gefi þér afkvæmi við þessari konu í stað láns þess, er léð var Drottinn. Síðan fóru þau heim til sín.
Og Drottinn vitjaði Hönnu, og hún varð þunguð og fæddi þrjá sonu og tvær dætur. En sveinninn Samúel óx upp hjá Drottni.
En Elí var mjög gamall, og heyrði alt um það, hvernig synir hans fóru með allan Ísrael og að þeir legðust með konum þeim, sem gegndu þjónustu við dyr samfundatjaldsins.
Og hann sagði við þá: Hvers vegna hegðið þið ykkur svo? Því að eg hefi heyrt allan þennan lýð tala um ilt athæfi ykkar.
Eigi má svo vera, synir mínir! Það er ekki fallegur orðrómur, sem eg heyri lýð Drottins vera að breiða út.
Syndgi maður á móti öðrum manni, þá sker Guð úr, en syndgi maður móti Drottni, hver má þá biðja honum líknar? En þeir hlýddu ekki orðum föður síns, því að Drottinn vildi deyða þá.
En sveinninn Samúel óx og þroskaðist og varð æ þekkari bæði Drottinn og mönnum.
Þá kom guðsmaður einn til Elí og sagði við hann: Svo segir Drottinn: Hvort hefi eg opinberað mig húsi föður þíns, þá er þeir heyrðu til húsi Faraós í Egiptalandi?
Og eg valdi mér þá fyrir presta úr öllum ættkvíslum Ísraels, til þess að þeir gengju upp að altari mínu að færa reykelsisfórn og bæru hökul frammi fyrir mér, og eg hefi gefið húsi föður þíns allar eldfórnir Ísraelsmanna —
hvers vegna fótum troðið þér sláturfórnir mínar og matfórnir, sem eg hefi fyrirskipað í bústað mínum? Og þú metur sonu þína meira en mig, er þér feitið yður á hinu bezta af öllum fórnum Ísraels, lýðs míns!
Fyrir því segir Drottinn, Ísraels Guð: Eg hefi sagt: þitt hús og hús föður þíns skal ganga fyrir augliti mínu eilíflega; — en nú segir Drottinn: Það sé fjarri mér. Því að eg heiðra þá, sem mig heiðra, en þeir, sem fyrirlíta mig, munu til skammar verða.
Sjá, þeir tímar munu koma, að eg sundurbrýt arm þinn og arm ættar þinnar, svo að enginn verður gamall í húsi þínu.
Og þú munt horfa upp á neyð í húsinu, Stael líði að öðru leyti vel, og aldrei framar skal nokkur vera in ið gamall í húsi þínu.
En einum af þínum vil eg eigi útrýma frá altari mínu, til þess að láta augu þín daprast og sálu þína örmagnast, en öll viðkoma húss þíns skal falla fyrir sverði manna.
Og þetta skal vera þér merkið, sem koma mun fram á báðum sonum þínum, Hofni og Pínehas: á sama degi munu þeir báðir deyja.
En eg mun skipa mér til handa trúan prest, og hann mun gjöra að mínum vilja og mínu skapi; honum mun eg reisa stöðugt hús, og hann skal ganga fyrir augliti míns smurða alla daga.
Þá mun það verða, að hver sá, sem eftir er í húsi þínu, mun koma til að lúta honum, til þess að fá smáskilding eða brauðhleif, og segja: Kom þú mér niður við eitthvert prestsembættið, svo að eg fái brauðbita að eta.