Fyrri Samúelsbók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Samúelsbók 1

Maður er nefndur Elkana; hann var frá Ramataím, Zúfíti frá Efraím-fjöllum; hann var sonur Jeróhams, Elíhúsonar, Tóhúsonar, Zúfssonar Efraímíta.

Hann átti tvær konur, hét önnur Hanna, en hin Peninna; Peninna átti börn, en Hanna átti engin börn.

Þessi maður fór á ári hverju úr borg sinni, til þess að biðjast fyrir og til þess að færa Drottni hersveitanna fórnir í Síló. En þar voru báðir synir Elí, Hofní og Pínehas, prestar Drottins.

Og í hvert sinn er Elkana tórnaði, þá gaf hann Peninnu, konu sinni, og öllum sonum hennar og dætrum sinn hlut hverju;

og hann gaf Hönnu heldur ekki nema einn hlut, þótt hann elskaði hana; en Drottinn hafði lokað móðurkviði hennar.

Elja hennar skapraunaði henni einnig, til þess að reita hana til reiði, af því að Drottinn hafði lokað móðurkviði hennar.

Svo gjörði hann ár eftir ár, í hvert skifti sem þau fóru upp til húss Drottins, og þannig Skapraunaði hún henni; og hún grét og neytti eigi matar.

Þá sagði Elkana, maður hennar, við hana: Hanna, hví grætur þú og hví neytir þú eigi matar og hví liggur svo illa á þér? Er eg þér ekki betri en tíu synir?

Og Hanna stóð upp, þá er þau höfðu etið í Síló og þá er þau höfðu drukkið. En Elí prestur sat á stól við dyrustafinn á musteri Drottins.

hún var sárhrygg og bað til Drottins og grét mjög.

Og hún gjörði heit og mælti: Drottinn hersveitanna! ef þú lítur á eymd ambáttar þinnar og minnist mín og gleymir eigi ambátt þinni og gefur ambátt þinni karllegan afspring, þá skal eg gefa hann Drottni alla daga æfi hans, og eigi skal rakhnífur koma á höfuð honum.

Og er hún gjörði lengi bæn sína fyrir augliti Drottins, og Elí tók eftir munni hennar —

en Hanna mæltist fyrir í hljóði, bærðust aðeins varirnar, en rödd hennar heyrðist ekki —, þá hélt Elí, að hún væri drukkin.

Þá sagði Elí við hana: Hversu lengi ætlar þú að láta sjá þig drukna? láttu vímuna renna af þér.

Hanna svaraði og sagði: Nei, herra minn, eg er kona með sorgfullu hjarta; vín hefi eg ekki drukkið né áfengan drykk, en eg hefi úthelt hjarta mínu fyrir Drottni.

Ætla þú eigi að ambátt þín sé afhrak, því að af mínum mikla harmi og trega hefi eg talað hingað til.

Elí svaraði og sagði: Far þú í friði; Ísraels Guð mun veita þér það, er þú hefir beðið hann um.

Og hún mælti: Ó, að ambátt þín mætti finna náð í augum þínum! Síðan fór konan leiðar sinnar og mataðist og var eigi framar með döpru bragði.

Morguninn eftir risu þau árla og gjörðu bæn sína fyrir augliti Drottins, sneru síðan aftur og komu heim til Rama. Og Elkana kendi Hönnu konu sinnar, og Drottins mintist hennar.

Og er ár var liðið, hafði Hanna orðið þunguð og alið son; og hún nefndi hann Samúel, »því að eg hefi beðið Drottinn um hann«.

Og maðurinn Elkana fór með alla fjölskyldu sína, til þess að færa Drottni hina árlegu fórn og áheit sitt;

en Hanna fór ekki, heldur sagði við mann sinn: Eg fer ekki fyr en sveinninn er vaninn af brjósti; þá fer eg með hann, svo að hann birtist fyrir augliti Drottins og verði þar ávalt upp frá því.

Og Elkana, maður hennar, sagði við hana: Gjör þú sem þér vel líkar; ver þú kyr heima, unz þú hefir vanið hann af brjósti; Drottinn láti aðeins orð þín rætast. Síðan var konan kyr heima og hafði son sinn á brjósti, unz hún vandi hann af.

Og er hún hafði vanið hann af brjósti, fór hún með hann og hafði með sér þriggja ára gamalt naut og eina efu mjöls og legil víns, og hún fór með hann í hús Drottins í Síló; en sveinninn var þá ungur.

Og þau slátruðu nautinu og fóru með sveininn til Elí.

Og hún sagði: Heyr, herra minn, svo sannarlega sem þú lifir, herra minn, er eg kona sú, er stóð hér hjá þér, til þess að gjöra bæn mína til Drottins.

Um svein þennan gjörði eg bæn mína, og Drottinn veitti mér bæn mína, sem eg bað hann um.

Fyrir því vil eg og ljá Drottni hann; svo lengi sem hann lifir, skal hann vera Drottinn léður. Og þau féllu þar fram fyrir Drottni.