Gamla testamentiðSaga
En sveinninn Samúel gegndi þjónustu Drottins hjá Elí. Og orð frá Drottni var sjaldgæft á þeim dögum; vitranir voru þá fátíðar.
Þá bar svo til einn dag, þá er Elí svaf á sínum vanalega stað — en augu hans voru tekin að daprast, svo að hann var hættur að sjá;
og enn var ekki sloknað á Guðs lampa, en Samúel svaf í musteri Drottins, þar sem Guðs örk var —,
að Drottinn kallaði á Samúel, og hann sagði: Hér er eg.
Og hann hljóp til Elí og sagði: Hér er eg, því að þú kallaðir á mig. En hann sagði: Eg hefi ekki kallað; far þú aftur að sofa. Fór hann þá og lagðist til svefns.
En Drottinn kallaði enn af nýju! Samúel! Og Samúel reis upp og fór til Elí og sagði: Hér er eg, því að þú kallaðir á mig. En hann sagði: Eg hefi ekki kallað, sonur minn; leyst þú aftur til svefns.
En Samúel þekti ekki enn Drottins og honum hafði ekki enn birzt orð frá Drottni.
Þá kallaði Drottinn enn á Samúel, í þriðja skiftið. Og hann reis upp og fór til Elí og sagði: Hér er eg, því að þú kallaðir á mig. Þá skildi Elí, að það var Drottinn, sem var að kalla á sveininn.
Fyrir því sagði Elí við Samúel: Far þú og leystu bl svefns; og verði nú á þig kallað, þá svara þú: Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir. Fór Samúel þá og lagðist til svefns á sínum stað.
Þá kom Drottinn og gekk fram og kallaði sem hin fyrri skiftin: Samúel! Samúel! Og Samúel svaraði: Tala þú, því að þjónn þinn heyrir.
Drottinn mælti þá við Samúel: Þá hluti mun eg gjöra í Ísrael, að óma mun fyrir báðum eyrum allra þeirra, er það heyra.
Á þeim degi mun eg láta fram koma á Elí alt það, er eg hefi talað um hús hans — frá upphafi til enda.
Því að eg hefi kunngjört honum, að eg muni dæma hús hans að eilífu, vegna misgjörðar þeirrar, er honum var kunn, að synir hans leiddu bölvun ýfir sig, og þó hafði hann ekki taum á þeim.
Og fyrir því hefi eg svarið húsi Elí: Sannlega skal eigi verða friðþægt fyrir misgjörð Elí húss með sláturfórn eða matfórn að eilífu.
Lá Samúel nú kyr alt til morguns. Og um morguninn reis hann árla og Jauk upp dyrunum á húsi Drottins. En Samúel þorði ekki að segja Elí frá sýninni.
En Elí kallaði á Samúel og sagði: Samúel, sonur minn! Hann svaraði: Hér er eg.
Og hann sagði: Hvað var það, sem hann talaði við þig? Leyndu mig því ekki. Guð láti þig gjalda þess nú og síðar, ef þú leynir mig nokkurn af því, sem hann talaði við þig.
Þá sagði Samúel honum alt saman og leyndi hann engu. En hann sagði: Hann er Drottinn; gjöri hann það, sem honum þóknast!
En Samúel óx, og Drottinn var með honum og lét ekkert af því er hann hafði boðað, falla tl jarðar.
Og allur Ísrael frá Dan til Beerseba kannaðist við, að Samúel væri falið að vera spámaður Drottins€.
Og Drottinn hélt áfram að birtast í Síló; því að Drottinn opinberaðist Samúel í Síló fyrir orð Drottins.