Þér elskaðir, trúið ekki sérhverjum anda, heldur reynið andana, hvort þeir séu af Guði; því að margir falsspámenn eru farnir út í heiminn.
Af þessu getið þér þekt anda Guðs: sérhver andi, sem viðurkennir að Jesús Kristur hafi komið í holdi, er af Guði;
og sérhver andi, sem ekki játar Jesúm, er ekki af Guði; og hann er andkristins andi, sem þér hafið heyrt um að komi, og nú þegar er hann í heiminum.
Þér, börnin mín, eruð af Guði og hafið sigrað þá, því að sá er meiri, sem í yður er, en sá sem er í heiminum.
Þeir eru af heiminum; þess vegna tala þeir af heiminum, og heimurinn hlýðir á þá.
Vér erum af Guði; hver sem þekkir Guð, hlýðir á oss; sá sem ekki er af Guði, hlýðir ekki á oss. Af þessu þekkjum vér anda sannleikans og anda villunnar.
Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er af Guði, og hver sem elskar, er af Guði fæddur og þekkir Guð.
Sá sem ekki elskar, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.
Í því birtist kærleikur Guðs í oss, að Guð hefir sent sinn eingetinn son í heiminn, til þess að vér skyldum lifa fyrir hann.
Í þessu er kærleikurinn: ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.
Þér elskaðir, fyrst Guð hefir svo elskað oss, þá ber einnig oss að elska hver annan.
Enginn hefir nokkurn tíma séð Guð; ef vér elskum hver annan, þá er Guð stöðugur í oss, og kærleikur hans er fullkomnaður í oss;
af því þekkjum vér að vér erum stöðugir í honum og hann í oss, að hann hefir gefið oss af sínum anda.
Og vér höfum séð og vitnum, að faðirinn hefir sent soninn, til að vera frelsari heimsins.
Hver sem játar, að Jesús sé Guðs sonur, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði.
Og vér höfum þekt og trúað kærleikanum, sem Guð hefir á oss. Guð er kærleikur, og sá, sem er stöðugur í kærleikanum, er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum.
Í því er kærleikurinn orðinn fullkominn hjá oss, að vér höfum djörfung á degi dómsins; því að eins og hann er, eins erum vér einnig í heimi þessum.
Ótti er ekki í elskunni, heldur útrekur fullkomin elska óttann; því að óttinn felur í sér hegningu, en sá sem óttast, er ekki fullkominn í elskunni.
Vér elskum, því að hann elskaði oss að fyrra bragði.
Ef einhver segir: eg elska Guð, og hatar bróður sinn, sá er lygari; því að sá sem ekki elskar bróður sinn, sem hann hefir séð, getur ekki elskað Guð, sem hann hefir ekki séð.
Og þetta boðorð höfum vér frá honum, að sá sem elskar Guð, á einnig að elska bróður sinn.