Sjáið, hvílíkan kærleika faðirinn hefir auðsýnt oss, að vér skulum kallast Guðs börn; og það erum vér. Vegna þess þekkir heimurinn ekki oss, af því að hann þekti ekki hann.
Þér elskaðir, nú erum vér Guðs börn, en það er enn þá ekki orðið bert, hvað vér munum verða. Vér vitum, að þegar hann birtist, þá munum vér verða honum líkir, því að vér munum sjá hann eins og hann er.
Og hver sem hefir þessa von til hans, hreinsar sjálfan sig, eins og hann er hreinn.
Hver sem drýgir syndina, drýgir og lagabrot, og syndin er lagabrot.
En þér vitið, að hann hefir birst, til þess að burttaka syndir, og í honum er ekki synd.
Hver sem er stöðugur í honum, syndgar ekki; hver sem syndgar hefir ekki séð hann, og þekkir hann ekki heldur.
Börnin mín, látið engan villa yður; sá sem iðkar réttlætið, er réttlátur, eins og hann er réttlátur.
Hver sem syndina drýgir, er af djöflinum, því að djöfullinn syndgar frá upphafi. Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins.
Hver sem af Guði er fæddur, drýgir ekki synd, því að sæði hans er varanlegt í honum, og hann getur ekki syndgað, af því að hann er fæddur af Guði.
Af þessu eru augljós börn Guðs og börn djöfulsins; hver sem ekki iðkar réttlæti, er ekki af Guði, né heldur sá, sem elskar ekki bróður sinn.
Því að þetta er sá boðskapur, sem þér hafið heyrt frá upphafi, að vér skulum elska hver annan;
ekki eins og Kain var af hinum vonda og myrti bróður sinn. Og fyrir hvað myrti hann hann? Af því að verk hans voru vond, en verk bróður hans réttlát.
Undrist ekki, bræður, þótt heimurinn hati yður.
Vér vitum, að vér erum komnir yfir frá dauðanum til lífsins, af því að vér elskum bræðurna. Sá sem ekki elskar, er áfram í dauðanum.
Hver sem hatar bróður sinn, er manndrápari, og þér vitið, að enginn manndrápari hefir eilíft líf í sér varandi.
Af því þekkjum vér kærleikann, að hann lét lífið fyrir oss, og vér eigum að láta lífið fyrir bræðurna.
En sá sem hefir heimsins gæði, og horfir á bróður sinn vera þurfandi, og afturlykur hjarta sínu fyrir honum, hvernig getur kærleikur Guðs verið stöðugur í honum?
Börnin mín, elskum ekki með orði og ekki heldur með tungu, heldur í verki og sannleika.
Af þessu munum vér þekkja, að vér erum af sannleikanum, og munum geta friðað hjörtu vor frammi fyrir honum,
hvað sem hjarta vort kann að ásaka oss fyrir; því að Guð er meiri en hjarta vort og þekkir alla hluti.
Þér elskaðir, ef hjartað ásakar oss ekki, þá höfum vér djörfung til Guðs,
og hvað sem vér biðjum um, fáum vér hjá honum, af því að vér höldum boðorð hans og gjörum það, sem er þóknanlegt fyrir hans augliti.
Og þetta er hans boðorð: að vér skulum trúa á nafn sonar hans Jesú Krists og elska hver annan, samkvæmt því, sem hann hefir gefið oss boðorð um.
Og sá sem heldur boðorð hans, er stöðugur í honum og hann í honum; og af því þekkjum vér, að hann er stöðugur í oss, af andanum sem hann hefir gefið oss.