Börnin mín! þetta skrifa eg yður, til þess að þér skulið ekki syndga; og enda þótt einhver syndgi, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta,
og hann er friðþæging fyrir syndir vorar, og ekki einungis fyrir vorar syndir, heldur líka fyrir allan heiminn.
Og á því vitum vér að vér þekkjum hann, ef vér höldum boðorð hans.
Sá sem segir: Eg þekki hann, og heldur ekki boðorð hans, er lygari, og sannleikurinn er ekki í honum;
en hver sem heldur boðorð hans, í honum er sannarlega kærleikur Guðs orðinn fullkominn. Af því þekkjum vér, að vér erum í honum.
Sá sem segist vera stöðugur í honum, honum ber sjálfum að framganga eins og hann framgekk.
Þér elskaðir, það er ekki nýtt boðorð sem eg rita yður, heldur gamalt boðorð, sem þér hafið haft frá upphafi; hið gamla boðorð er orðið, sem þér heyrðuð.
Í annan stað er það nýtt boðorð, er eg rita yður, sem er satt í honum og í yður; því að myrkrið er að hverfa og hið sanna ljós er þegar farið að skína.
Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er enn þá í myrkrinu.
Sá sem elskar bróður sinn, hann er stöðugur í ljósinu og í honum er ekki hneyksli.
En sá sem hatar bróður sinn, hann er í myrkrinu og framgengur í myrkinu, og veit ekki hvert hann fer, því að myrkrið hefir blindað augu hans.
Eg rita yður, börnin mín, af því að syndir yðar eru yður fyrirgefnar fyrir sakir nafns hans.
Eg rita yður, þér feður, af því að þér þekkið hann, sem er frá upphafi. Eg rita yður, þér ungu menn, af því að þér hafið sigrað hinn vonda. Eg hefi ritað yður, börn, af því að þér þekkið föðurinn.
Eg hefi ritað yður, feður, af því að þér þekkið hann, sem er frá upphafi. Eg hefi ritað yður, ungu menn, af því að þér eruð styrkir, og Guðs orð er stöðugt í yður og þér hafið sigrað hinn vonda.
Elskið ekki heiminn, ekki heldur þá hluti sem í heiminum eru. Ef einhver elskar heiminn, þá er kærleiki föðurins ekki í honum.
Því að alt það sem í heiminum er, fýsn holdsins og fýsn augnanna og auðæfa-oflæti, það er ekki frá föðurnum, heldur er það frá heiminum.
Og heimurinn fyrirferst og fýsn hans, en sá sem gjörir Guðs vilja, varir að eilífu.
Börn mín, það er hin síðasta stund, og eins og þér hafið heyrt að andkristur kemur, þá eru nú einnig margir andkristar komnir fram, og af því þekkjum vér, að það er hin síðasta stund.
Frá oss eru þeir útgengnir, en þeir voru ekki af oss; því ef þeir hefðu verið af oss, þá mundu þeir stöðuglega hafa verið með oss; en það varð til þess að það yrði augljóst, að þeir allir væru ekki af oss.
Og þér hafið smurningu frá hinum heilaga og vitið alt.
Eg hefi ekki skrifað yður vegna þess, að þér þekkið ekki sannleikann, heldur af því að þér þekkið hann, og af því að engin lygi er af sannleikanum.
Hver er lygari ef ekki sá, sem neitar að Jesús sé Kristur? Sá hinn sami er andkristurinn, hann sem afneitar föðurnum og syninum.
Hver sem afneitar syninum, hefir ekki heldur föðurinn; sá sem viðurkennir soninn, hefir og föðurinn.
En þér, látið það vera stöðugt í yður, sem þér hafið heyrt frá upphafi. Ef það er stöðugt í yður, sem þér frá upphafi hafið heyrt, þá munuð þér einnig vera stöðugur í syninum og í föðurnum.
Og þetta er fyrirheitið sem hann gaf oss, hið eilífa lífið.
Þetta hefi eg skrifað yður um þá, sem vilja leiða yður afvega.
Og þér, sú smurning, sem þér fenguð af honum, hún er stöðug í yður, og þér þurfið þess ekki, að neinn kenni yður; heldur eins og smurning hans fræðir yður um alt, og hún er sannleiki, en engin lygi, eins skuluð þér vera stöðugir í honum, svo sem hún kendi yður.
Og nú, börnin mín, verið stöðugir í honum, til þess að vér getum, þegar hann birtist, haft djörfung, og verðum oss ekki til skammar fyrir honum í tilkomu hans.
Ef þér vitið að hann er réttlátur, þá þekkið þér, að einnig hver, sem iðkar réttlæti, er fæddur af honum.