Fyrsta Jóhannesarbréf 1Krans-útgáfa

Fyrsta Jóhannesarbréf 1

Það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, um orð lífsins; —

og lífið var opinberað og vér höfum séð og vottum og boðum yður lífið hið eilífa, sem var hjá föðurnum og var opinberað oss; —

það sem vér höfum séð og heyrt, það boðum vér yður einnig, til þess að þér líka getið haft samfélag við oss; og samfélag vort er við föðurinn og við son hans Jesúm Krist.

Og þetta skrifum vér, til þess að fögnuður yðar geti orðið fullkominn.

Og þetta er boðskapurinn, sem vér höfum heyrt af honum og boðum yður, að Guð er ljós og alls ekkert myrkur er í honum.

Ef vér segjum að vér höfum samfélag við hann, og göngum þó í myrkrinu, þá ljúgum vér og iðkum ekki sannleikann.

En ef vér framgöngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan, og blóðið Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.

Ef vér segjum að vér höfum ekki synd, þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss,

en ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.

Ef vér segjum að vér höfum ekki syndgað, þá gjörum vér hann að lygara, og orð hans er ekki í oss.