Fyrsta Jóhannesarbréf 5Krans-útgáfa

Fyrsta Jóhannesarbréf 5

Hver sem trúir, að Jesús er Kristur, er af Guði fæddur; og hver sem elskar föðurinn, elskar einnig þann, sem er fæddur af honum.

Af því þekkjum vér að vér elskum Guðs börn, þegar vér elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans.

Því að þetta er kærleikur Guðs, að vér höldum hans boðorð, og hans boðorð eru ekki þung.

Því að alt, sem af Guði er fætt, sigrar heiminn, og trú vor, hún er sigurinn, sem hefir sigrað heiminn.

En hver er sá, sem sigrar heiminn, nema sá sem trúir, að Jesús er sonur Guðs?

Þessi er sá, sem kominn er með vatni og blóði, Jesús Kristur, ekki með vatninu einungis, heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar, því að andinn er sannleikurinn.

Því að þrír eru þeir sem vitna;

andinn og vatnið og blóðið, og þeim þremur ber saman.

Ef vér tökum manna vitnisburð gildan, þá er Guðs vitnisburður meiri, því að þetta er vitnisburður Guðs, að hann hefir vitnað um sinn son.

Sá sem trúir á Guðs son, hefir vitnisburðinn í honum; sá sem ekki trúir Guði, hefir gjört hann að lygara, af því að hann hefir ekki trúað á þann vitnisburð, sem Guð hefir vitnað um sinn son.

Og þetta er vitnisburðurinn, að Guð hefir gefið oss eilíft líf, og þetta líf er í hans syni.

Sá sem hefir soninn, hefir lífið; sá sem ekki hefir Guðs son, hefir ekki lífið.

Þetta hefi eg skrifað yður, til þess að þér vitið að þér hafið eilíft líf, yður, sem trúið á nafn Guðs sonar.

Og þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans, að ef vér biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann oss.

Og ef vér vitum að hann heyrir oss, um hvað sem vér biðjum, þá vitum vér, að oss eru veittar þær bænir, sem vér höfum beðið hann um.

Ef einhver sér bróður sinn drýgja synd, sem ekki er til dauða, þá skal hann biðja, og Guð mun gefa honum líf, þeim sem ekki syndgar til dauða. Til er synd til dauða; fyrir henni segi eg ekki að hann skuli biðja.

Alt ranglæti er synd; en til er synd, sem ekki er til dauða.

Vér vitum, að hver sem af Guði er fæddur syndgar ekki, heldur gætir sá sín, sem af Guði er fæddur, og hinn vondi snertir hann ekki.

Vér vitum að vér erum af Guði, og allur heimurinn liggur í hinu vonda.

En vér vitum, að Guðs sonur er kominn, og hefir gefið oss skilning, til þess að vér þekkjum hinn sanna; og vér erum í hinum sanna, í hans syni Jesú Kristi. Þessi er hinn sanni Guð og eilíft líf.

Börnin mín, gætið yðar sjálfra fyrir skurðgoðunum.