Dagatal

Miðvikudagur í 4. viku aðventu

Virkur dagur á aðventu.

Aðventa · Vika 4

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Í öllum löndum lið sig býrí ljóssins tygi skær,og æskufjör það áfram knýr,svo ekkert tálmað fær,sem döggin tær mót himni hlær,er heilsar morgunroðans blær,svo skín hin prúða fylking fríðaf frjálsum æskulýð.Í öllum löndum sama söngá sér hinn ungi her,um sama fána' og fánastöngþeir fylkja allir sér,og allir sjá hið sama hlið,hin sama dýrð þeim blasir við,í einni von, í ást og trúþeir áfram stefna nú.Og Jesús undan öllum fer,þeir eru' hans heiðurssveit.Til konungs þeir hann kusu sér,hann kærleiks þáði heit,svo vöxt og afl fær æskuþjóðvið alheimssólar mildu glóð,í skugga krossins skjól og hlíf,í skauti Jesú líf. Amen.

Sálmur 108

Andstef · Drottinn, hinn mikli Guð, mun koma frá Síon til þess að frelsa þjóð sína.

1Ljóð. Davíðssálmur.

2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!

3Vakna þú, harpa og gígja * ég vil vekja morgunroðann.

4Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

5því að miskunn þín er himnum hærri * og trúfesti þín nær til skýjanna.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

7til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa * þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

8Guð hefur sagt í helgidómi sínum: „Ég vil fagna * ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót–dal.

9Ég á Gíleað, ég á Manasse * og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

10Móab er mundlaug mín * í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.“

11Hver vill fara með mig í örugga borg * hver vill flytja mig til Edóm?

12Þú hefur útskúfað oss, ó Guð, og þú * Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

13Veit oss lið gegn fjandmönnunum * því að mannahjálp er ónýt.

14Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna * og hann mun troða óvini vora fótum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, hinn mikli Guð, mun koma frá Síon til þess að frelsa þjóð sína.

Sálmur — Jes 61, 10 – 62, 5 — Fögnuður spámanns yfir hinni nýju Jerúsalem

Andstef · Ég skal ekki láta af að sárbæna Guð um Síon uns hann sendir sinn Heilaga í geislandi fegurð sinni.

10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins * hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúðgumi lætur á sig höfuðdjásn og brúður býr sig skarti sínu.

11Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta * svo mun hinn alvaldi Drottins láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.

1Sökum Síonar get ég ekki þagað, og sökum Jerúsalem get ég ekki kyrr verið * uns réttlæti hennar rennur upp sem ljómi og hjálpræði hennar sem brennandi blys.

2Þá skulu þjóðirnar sjá réttlæti þitt og allir konungar vegsemd þína * og þú munt nefnd verða nýju nafni, er munnur Drottins mun ákveða.

3Þú munt verða prýðileg kóróna í hendi * Drottins og konunglegt höfuðdjásn í hendi Guðs þíns.

4Þú munt ekki framar nefnd verða Yfirgefin, og land þitt ekki framar nefnt verða Auðn, heldur skalt þú kölluð verða Yndið mitt * og land þitt Eiginkona, því að Drottinn ann þér og land þitt mun manni gefið verða.

5Eins og ungur maður fær meyjar, eins munu synir þínir eignast þig * og eins og brúðgumi gleðst yfir brúði, eins mun Guð þinn gleðjast yfir þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég skal ekki láta af að sárbæna Guð um Síon uns hann sendir sinn Heilaga í geislandi fegurð sinni.

Sálmur 146

Andstef · Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur sent mig til að boða fátækum gleðilegan boðskap.

1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!

2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.

4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.

5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,

8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur sent mig til að boða fátækum gleðilegan boðskap.

Stuttur ritningarlestur

Jes 11, 1-3aAf stofni Ísaí mun kvistur fram spretta og angi upp vaxa af rótum hans. Yfir honum mun hvíla andi Drottins: Andi vísdóms og skilnings, andi ráðspeki og kraftar, andi þekkingar og ótta Drottins. Unun hans mun vera að óttast Drottin.

Stutt svarvers

Á morgun * er dagur endurlausnar yðar,

Á morgun * syndum jarðar mun eytt.

Frelsari heimsins verður konungur vor.

syndum jarðar mun eytt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Á morgun * syndum jarðar mun eytt.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Stundin er komin fyrir Maríu að fæða frumburð sinn.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Elskuðu bræður (og systur), beinum auðmjúkum bænum vorum til Jesú Krists, Frelsara vors, sem mun koma aftur í dýrð og miklu veldi:Kom, Drottinn Jesús.Drottinn Jesús, þú munt koma í miklu veldi,lít á auðmýkt vora og ger oss þess verð að taka við gjöfum þínum.Þú komst til að vera fagnaðarerindi öllu mannkyni,mættum vér ávallt boða frelsunarverk þitt.Rétt er að lofsyngja þig, því þú hefur líf og stjórnar öllum hlutum,hjálpa oss til að bíða vonglöð þar til þú kemur í dýrð.Vér þráum náð endurkomu þinnar,hugga oss með því að gefa oss guðlegt líf þitt.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, Drottinn Jesús, að þú hraðir komu þinni og tefjir eigi, svo að þeir, sem treysta gæsku þinni, styrkist fyrir huggun komu þinnar. Því að þú ert Guð, sem lifir og ríkir með Guði Föður, í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Heyrið óma hátt um jörðhelgan söng frá englahjörð:Náð og frelsi fagnið þér,friður jörðu veittur er.“Syng þú glaður lofsöngsljóð,lýður heims, með englaþjóð,kunngjör ásamt englaher:Yður Kristur fæddur er.“Hann, sem vegsemd himna bar,hann, sem Guð frá eilífð var,hvergi inni athvarf fær,er hann fæðir heilög mær.Lítið Guð í holdsins hjúp.Hver fær kannað þvílíkt djúp?Orðinn maður eins og vérImmanúel á jörðu hér.Birtið gleðiboðskap þann:Blessuð náðarsól upp rann,flytur öllum ljós og líf,lækning, græðslu, von og hlíf.Guðdómsmynd ei hafði hann,hér er kom og dauðann vann,fæddist til að frelsa oss,færa dauðum lífsins hnoss.Þei! Nú syngur himnaherKristi dýrð, sem fæddur er.Þei! Nú syngur englaherJesú dýrð, sem fæddur er. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Hann kemur í dýrð, konungurinn, sem er friður vor, öll jörðin þráir að sjá hann.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann kemur í dýrð, konungurinn, sem er friður vor, öll jörðin þráir að sjá hann.

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Hann sendir orð sitt til jarðar og boð hans breiðast ört um löndin.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann sendir orð sitt til jarðar og boð hans breiðast ört um löndin.

Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs

Andstef · Eilífa Orðið, af Föðurnum fætt fyrir upphaf vega niðurlægði sig vor vegna og gjörðist maður.

6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.

7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.

9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,

10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu

11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Eilífa Orðið, af Föðurnum fætt fyrir upphaf vega niðurlægði sig vor vegna og gjörðist maður.

Stuttur ritningarlestur

Gl 4, 4-5Þegar fylling tímans kom, sendi Guð Son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli, til þess að hann keypti lausa þá, sem voru undir lögmáli, og vér fengjum barnaréttinn.

Stutt svarvers

Í dag skaltu vita * að Drottinn kemur.

Í dag skaltu vita * að Drottinn kemur.

Og í dag einnig munt þú líta dýrð hans.

Að Drottinn kemur.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Í dag skaltu vita * að Drottinn kemur.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Þegar sólin rís á morgunhimni, munuð þér sjá konung konunganna koma frá Föðurnum líkt og geislandi brúðguma úr brúðarstofu.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú sem gleður oss með árvissri væntingu um endurlausn vora, gef að vér, sem fögnum þínum eingetna Syni sem endurlausnara vorum, megnum einnig óttalaus að líta hann er hann kemur sem dómari, Drottinn vor, Jesús Kristur, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007