Síðari Samúelsbók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 7

Og svo bar til, þá er konungur sat í höll sinni — en Drottinn hafði þá veitt honum frið fyrir öllum óvinum hans alt í kring —

að konungur sagði við Natan spámann: Sjá, eg bý í höll af sedrusviði, en örk Guðs býr undir tjalddúk.

Natan svaraði konungi: Far þú og gjör alt, sem þér er í hug, því að Drottinn er með þér.

En hina sömu nótt kom orð Drottins til Natans, svohljóðandi:

Far og seg þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn: Ætlar þú að reisa mér hús til að búa í?

Eg hefi ekki búið í húsi síðan er eg leiddi Ísraelsmenn út af Egiptalandi alt fram á þennan dag, heldur ferðaðist eg í tjaldi og búð.

Alla þá stund, er eg hefi um farið meðal allra Ísraelsmanna, hefi eg þá sagt nokkurt orð í þá átt við nokkurn af dómurum Ísraels, þá er eg setti til að vera hirða lýðs míns Ísraels: Hví reisið þér mér ekki hús af sedrusviði?

Og nú skalt þú svo segja þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn hersveitanna: Eg hefi tekið þig úr haglendinu frá hjarðmenskunni og sett þig höfðingja yfir lýð minn Ísrael;

eg hefi verið með þér í öllu, sem þú hefir tekið þér fyrir hendur, og upprætt alla óvini þína fyrir þér; og eg mun gjöra nafn þitt sem nafn hinna mestu manna, sem á jörðinni eru,

og fá lýð mínum Ísrael stað og gróðursetja hann þar, svo að hann geti búið á sínum stað og geti verið öruggur úr því, og til þess að níðingar þjái hann ekki framar eins og áður,

frá því er eg setti dómara yfir lýð minn Ísrael, og eg vil veita honum frið fyrir öllum óvinum hans; og Drottinn boðar þér, að Drottinn muni reisa þér hús.

Þegar æfi þín er öll og þú leyst hjá feðrum þínum, mun eg hefja afspring þinn eftir þig, þann er frá þér kemur, og staðfesta konungdóm hans.

Hann skal reisa hús mínu nafni, og eg mun staðfesta konungsstól hans að eilífu.

Eg vil vera honum faðir og hann skal vera mér sonur, svo að þótt honum yfirsjáist, þá mun eg hirta hann með manna vendi og manns barna höggum,

en miskunn mína mun eg ekki frá honum taka, eins og eg tók hana frá fyrirrennara þínum.

Hús þitt og ríki skal stöðugt standa fyrir mér að eilífu; hásæti þitt skal vera óbifanlegt að eilífu.

Natan flutti Davíð öll þessi orð og sagði honum sýn þessa alla.

Þá gekk Davíð konungur inn og settist niður frammi fyrir Drottni og mælti: Hver er eg, Drottinn Guð, og hvað er hús mitt, að þú skulir hafa leitt mig til þessa?

Og þér nægði það eigi, Drottinn Guð, heldur hefir þú og fyrirheit gefið um hús þjóns þíns langt fram í aldir, og það meira að segja á mannlegan hátt, Drottinn Guð.

En hvað má Davíð enn við þig mæla? Þú þekkir sjálfur þjón þinn, Drottinn Guð!

Sakir þjóns þíns og að þínum vilja hefir þú gjört þetta, að boða þjóni þínum alla þessa miklu hluti.

Fyrir því ert þú mikill, Drottinn Guð, því að enginn er sem þú og enginn er Guð nema þú, samkvæmt öllu því, er vér höfum heyrt með eyrum vorum.

Og hvaða þjóð önnur á jörðunni jafnast við lýð þinn Ísrael, að Guð hafi farið og keypt sér hana að eignarlýð, aflað henni frægðar og gjört fyrir þá mikla hluti og hræðilega: stökt burt undan lýð sínum annari þjóð og guði hennar?

En þú hefir gjört lýð þinn Ísrael að þínum lýð um aldur og æfi, og þú, Drottinn, gjörðist Guð þeirra.

Og lát þú, Drottinn Guð, fyrirheit það, er þú hefir gefið um þjón þinn og um hús hans, stöðugt standa um aldur og æfi, og gjör þú svo sem þú hefir heitið.

Þá mun nafn þitt mikið verða að eilífu og hljóða svo: Drottinn hersveitanna, Guð yfir Ísrael — og hús þjóns þíns Davíðs mun stöðugt standa fyrir þér.

Því að þú, Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels, hefir birt þjóni þínum þetta: Eg mun reisa þér hús — fyrir því hafði þjónn þinn djörfung til að bera þessa bæn fram fyrir þig.

Og nú, Drottinn Guð, þú ert Guð og þín orð eru sannleiki, og þú hefir gefið þjóni þínum þetta dýrlega fyrirheit,

virzt þú nú að blessa hús þjóns þíns, svo að það sé til að eilífu fyrir þínu augliti. Því að þú, Drottinn Guð, hefir fyrirheit gefið og fyrir blessun þína mun hús þjóns þíns blessað verða að eilífu.