Gamla testamentiðSaga
Og Davíð safnaði enn saman öllu einvalaliði í Ísrael, þrjátíu þúsundum manns.
síðan tók Davíð sig upp -og lagði af stað með alt það lið, sem hjá honum var, til Baal í Júda, til þess að flytja Þaðan örk Guðs, sem kend er við nafn Drottins hersveitanna, hans sem Situr uppi yfir kerúbunum.
Og þeir óku örk Guðs á nýjum vagni Og tóku hana úr húsi Abínadabs, því er stóð á hæðinni, og stýrðu þeir Ússa og Ahjó, synir Abínadabs, vagninum.
Ússa gekk með örk Guðs, en Ahjó gekk fyrir örkinni.
Og Davíð og alt Ísraels hús dansaði fyrir Drottni af öllum mætti, með söng, gígjum, hörpum, bumbum, hjöllum og skálabumbum.
En er þeir komu að láfa Nakóns, greip Ússa hendinni í örk Guðs og hélt fast í hana, því að slakað hafði verið á taumhaldinu við akneytin.
Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ússa, og Guð laust hann þar, af því að hann hafði gripið hendi sinni í örkina, og dó hann þar hjá örk Guðs.
Davíð féll það þungt, að Drottinn hafði lostið Ússa svo hart, og hefir þessi staður verið nefndur Peres-Ússa alt fram á þennan dag.
Og Davíð varð hræddur við Drottin á þeim degi og sagði: Hvernig má þá örk Drottins komast til mín?
Og Davíð vildi ekki flytja örk Drottins til sín í Davíðsborg, heldur sneri hann með hana til húss Óbeð-Edóms í Gat.
Og örk Drottins var síðan í húsi Óbeð-Edóms í Gat þrjá mánuði, og Drottins blessaði Óbeð-Edóm og alt hans hús.
En er Davíð konungi komu þau tíðindi: Drottinn hefir blessað hús Obeð-Edóms og alt, sem hann á, sakir Guðs arkar, þá lagði Davíð af stað og sótti örk Guðs í hús Óbeð-Edóms og flutti hana til Davíðsborgar með fögnuði.
Og er þeir, sem báru örk Drottins, höfðu gengið sex skref, fórnaði hann nauti og alikálfi.
Og Davíð dansaði af öllum mætti fyrir Drottni og var Davíð þá gyrtur línhökli.
Og Davíð og alt Ísraels hús flutti örk Drottins upp með fagnaðarópi og lúðurhljómi.
En er örk Drottins kom í Davíðsborg, leit Míkal, dóttir Sáls, út um gluggann; og er hún sá Davíð konung vera að hoppa og dansa fyrir Drottni, fyrirleit hún hann í hjarta sínu.
Og þeir fluttu örk Drottins inn og settu hana á sinn stað í tjaldi því, sem Davíð hafði reisa látið yfir hana; og Davíð færði brennifórnir frammi fyrir Drottni og heillafórnir.
Og er Davíð hafði fært brennifórnina og heillafórnirnar, blessaði hann lýðinn í nafni Drottins hersveitanna.
Hann úthlutaði og öllu fólkinu, öllum múg Ísraels, bæði körlum og konum, hverjum fyrir sig einni brauðköku, einu kjötstykki og einni rúsínuköku. Síðan fór allur lýðurinn burt, hver heim til sín.
En er Davíð kom heim, til þess að heilsa fólki sínu, gekk Míkal, dóttir Sáls, á móti honum og mælti: Tigulegur var Ísraels konungurinn í dag, þar sem hann beraði sig í dag í augsýn ambátta þjóna sinna, eins og þegar einhver af argasta skrílnum berar sig!
Þá sagði Davíð við Míkal: Fyrir Drottni vil eg dansa, sem tekið hefir mig fram yfir föður þinn og fram yfir alt hans hús, til þess að skipa mig höfðingja yfir lýð Drottins, yfir Ísrael, og fyrir Drottni vil eg leika
og lítillækka mig enn meir en þetta og líta smáum augum á sjálfan mig; en með ambáttunum, sem þú talaðir um, — hjá þeim mun eg verða vegsamlegur.
Míkal, dóttir Sáls, var barnlaus til dauðadags.