Síðari Samúelsbók 5Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 5

Þá komu allar ættkvíslir Ísraels til Davíðs í Hebron og sögðu: Sjá, vér erum hold þitt og bein!

Þegar um langa hríð, á meðan Sál var konungur yfir oss, hefir þú verið fyrir Ísrael, bæði þegar hann lagði af stað í stríð og þegar hann kom heim; auk þess hefir Drottinn við þig sagt: Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar Ísraels og þú skalt vera höfðingi yfir Ísrael!

Þá komu allir öldungar Ísraels til konungsins í Hebron, og Davíð konungur gjörði við þá sáttmála í Hebron frammi fjórir augliti Drottins, og þeir smurðu Davíð til konungs yfir Ísrael.

Þrjátíu ára gamall var Davíð, þá er hann varð konungur, og fjörutíu ár ríkti hann.

Í Hebron ríkti hann sjö ár og sex mánuði yfir Júda, og í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú ár yfir öllum Ísrael og Júda.

og Júda. £og konungur og menn hans fóru Hl Jerúsalem í móti Jebúsitum, sem bjuggu í því héraði; var þá sagt við Davíð: Þú munt eigi komast hér inn, heldur munu blindir menn og haltir reka þig burt. Með því áttu þeir við: Davíð mun ekki komast hér inn.

En Davíð tók vígið Zion, það er Davíðsborg.

Og Davíð sagði á þeim degi: Hver sem vinnur sigur á Jebúsítum og kemst að vatnstokknum og að þeim höltu og blindu, sem Davíð hatar í sálu sinni.......... Þaðan er komið máltækið: Blindir og haltir komast ekki inn í húsið.

Því næst settist Davíð að í víginu og nefndi hann það Davíðsborg. Hann reisti og víggirðingar umhverfis, frá Mílló og þaðan inn á við.

Og Davíð efldist meir og meir, og Drottinn, Guð hersveitanna, var með honum.

Og Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, trésmiði og steinhöggvara, og reistu þeir höll handa Davíð.

Og Davíð kannaðist við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael og eflt konungsríki hans fyrir sakir þjóðar sinnar Ísraels.

Og Davíð tók sér enn hjákonur og konur í Jerúsalem, eftir að hann var farinn burt frá Hebron; og Davíð fæddust enn synir og dætur.

Og þetta eru nöfn þeirra sona, sem honum fæddust í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómó,

Jíbhar, Elisúa, Nefeg, Jafía,

Elísama, Eljada og Elífelet. Davíð vinnur sigur á Filistum.

En er Filistar heyrðu að Davíð væri smurður til konungs yfir Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétt það, fór hann ofan í fjallvígið.

Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaím-dal.

Þá gekk Davíð til frétta við Drottin og sagði: Á eg að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér? Og Drottinn svaraði Davíð: Far þú, því að eg mun vissulega gefa Filista í hendur þér.

Þá fór Davíð til Baal-Perazím. Og Davíð vann þar sigur á þeim og sagði: Drottinn hefir skolað burt óvinum mínum fyrir mér, eins og þegar vatn ryður sér rás. Fyrir því var sá staður nefndur Baal-Perazim.

En þeir létu þar eftir skurðgoð sín, og Davíð og menn hans tóki þau.

Og Filistar komu aftur og dreifðu sér um Refaím-dal.

gekk Davíð til frétta við Drottin, og hann svaraði: Far þú eigi í móð þeim; far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undad baka-trjánum.

Og þegar þú heyrir þyt af ferð í Iuónum bakatrjánna, þá skalt þú hraða þér, því að þá fer Drottinn fyrir þér, til þess að Ljósta ber Filista.

Og Davíð gjörði eins og Drottinn bauð honum, og vann sigur á Filistum frá Geba alla leið til Geser.