Gamla testamentiðSaga
En er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn.
En ísuosel sonur Sáls hafði tvo menn hjá sér, foringja fyrir ránsflokkum; net annar þeirra Baana, en hinn Rekab — synir Rimmóns frá Beerót, ul kynþætti Benjamíns; því að Beerót telst og með Benjamín.
En Beerót-búar voru flúnir til Gittaím og hafa þeir verið þar sem hjábýlingar fram á þennan dag.
Og Jónatan, sonur Sáls, átti son lama á báðum fótum; hann var fimm vetra gamall, þegar fregnin kom um Sál og Jónatan frá Jesreel. Þá tók fóstra hans hann og flýði; en í ofboðinu, er hún flýði, féll hann og varð lami; hann hét Mefíbóset.
En Synir Rimmóns frá Beerót, þeir Rekab og Baana, lögðu af stað og komu, þá er heitast var dags, í hús Ísbósets; hafði hann þá lagt sig um miðlegið,
oEn stúlkan, sem dyranna gætti, hafði verið að hreinsa hveiti hó hafði hana syfjað og var hún sofandi; þeir Rekab og Baana bróðir Ee læddust því inn.
Og er þeir komu inn í húsið, þá lá hann í hvílu sinni í svefnhúsi sínu; en þeir báru vopn á hann og unnu á honum og hjuggu af honum höfuðið. Því næst tóku þeir höfuð hans og héldu áfram alla nóttina veginn yfir sléttlendið.
Og þeir færðu Davíð í Hebron höfuðið af ísbóset og mæltu við konunginn: Hér er hið ísbósets, sonar Sáls, — óvinar þíns, sem sat um líf þitt. Drottinn Þar nú látið herra mínum, konunginum, verða hefndar auðið á Sál og löjum hans.
En Davíð svaraði Rekab og Baana bróður hans, sonum Rimmóns frá Beerót, og mælti til þeirra: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er frelsað hefir líf mitt úr öllum nauðum:
þann mann, sem færði mér tíðindin: Sjá, Sál er dauður! og hugðist færa mér gleðitíðindi, hann lét eg handtaka og drepa í Ziklag og galt honum þann veg sögulaunin.
Og þegar illir menn nú hafa myrt saklausan mann í hvílu sinni í hans eigin húsi, — skyldi eg þá ekki miklu fremur krefjast blóðs hans af ykkar hendi og afmá ykkur af jörðinni?
Síðan bauð Davíð sveinum sínum að drepa þá; þeir gjörðu svo og hjuggu af þeim hendur og fætur og hengdu þá upp hjá tjörninni í Hebron. En höfuð Ísbósets tóku þeir og jörðuðu það hjá Abner í Hebron.