Gamla testamentiðSaga
En er ófriðurinn milli Sáls húss og Davíðs húss tók að gjörast langvinnur, þá efldist Davíðs hús meir og meir, en Sáls húsi hnignaði meir og meir.
Davíð fæddust synir í Hebron: frumgetinn son hans var Amnon, með Ahínóam frá Jesreel;
annar sonur hans var Kíleab, með Abígail, er átt hafði Nabal á Karmel, hinn þriðji Absalóm, sonur Maöku, dóttur Talmaí, konungs í Gesúr;
hinn fjórði Adónía, sonur Haggítar, hinn fimti Sefatja, sonur Abítalar
og hinn sétti Jitream, með Eglu, konu Davíðs. Þessir fæddust Davíð í Hebron.
Meðan ófriðurinn stóð milli Sáls húss og Davíðs húss, var Abner öflugur fylgismaður Sáls húss.
En Sál hafði átt hjákonu, er Rizpa hét og var Ajasdóttir. Og Ísbóset, sonur Sáls, sagði við Abner: Hví hefir þú gengið í eina sæng með hjákonu föður míns?
Abner reiddist mjög orðum Ísbósets og mælti: Er eg þá júdverskur hundshaus? Enn í dag auðsýni eg elsku húsi Sáls, föður þíns, vandamönnum hans og vinum, og eg hefi ekki fram selt þig í hendur Davíðs; og þó ásakar þú mig í dag um konumál.
Guð gjöri Abner það, er hann vill, nú og síðar — eins og Drottinn hefir svarið Davíð, svo skal eg við hann gjöra:
flytja konungdóminn frá húsi Sáls og reisa hásæti Davíðs yfir Ísrael og Júda, frá Dan til Beerseba.
Hinn gat ekki svarað Abner einu orði af hræðslu við hann.
Þá gjörði Abner sendimenn á fund Davíðs í Hebron með þessa orðsending: Hvers er landið? Með því meinti hann: Gjör þú sáttmála við mig, þá mun eg veita þér fulltingi, til að snúa öllum Ísrael til fylgis við þig.
Hinn svaraði: Gott og vel, eg vil gjöra sáttmála við þig; en eins krefst eg af þér: Þú skalt ekki líta ásjónu mína, fyr en þú færir mér Míkal, dóttur Sáls, þá er þú kemur, til þess að líta ásjónu mína.
Og Davíð gjörði sendimenn á fund Ísbósets, sonar Sáls, með þá orðsending: Fá mér konu mína Míkal, er eg festi mér fyrir hundrað Filista-yfirhúðir.
Þá sendi ísbóset og lét taka hana frá manni hennar, Paltíel Laíssyni.
Og maður hennar fylgdi henni með miklum gráti til Bahúrím. Þá sagði Abner við hann: Farðu nú heim aftur! Fór hann þá aftur heim.
En Abner hafði átt tal við öldunga Ísraels og sagt: Þér hafið þegar fyrir löngu æskt þess, að Davíð yrði konungur yðar.
Látið nú af því verða; því að Drottinn hefir sagt við Davíð: Fyrir hönd Davíðs, þjóns míns, mun eg frelsa lýð minn Ísrael af hendi Filista og af hendi allra óvina þeirra.
Abner kom og að máli við Benjamíníta. Því næst hélt og Abner á fund Davíðs í Hebron, til þess að segja honum frá, hversu Ísrael og alt Benjamíns hús vildi alt vera láta.
En er Abner kom til Davíðs í Hebron og með honum tveir tígír manna, þá gjörði Davíð Abner veizlu og mönnunum, sem með honum voru.
Þá sagði Abner við Davíð: Eg vil taka mig til og fara og safna öllum Ísrael utan um herra minn, konunginn, til þess að þeir gjöri sáttmála við þig og þú verðir konungur yfir öllum þeim, sem þín sála girnist. Síðan lét Davíð Abner burt fara í friði.
En rétt í þessu komu menn Davíðs og Jóab heim úr ránsferð og fluttu þeir með sér mikið herfang; en Abner var þá ekki hjá Davíð í Hebron, því að hann hafði látið hann í burt fara í friði.
Þegar Jóab nú kom og allur herinn, sem með honum var, færðu menn Jóab þessi tíðindi: Abner Nersson kom hingað á konungs fund, og hann lét hann fara aftur burt í friði.
Þá gekk Jóab fyrir konung og mælti: Hvað hefir þú gjört? Abner hefir komið hingað til þín; hví lézt þú hann frjálsan í brott fara?
Veiztu ekki, að Abner Nersson hefir komið til þess að fleka þig og til þess að verða vísari um hátterni þitt og fá vitneskju um alt, sem þú hefir fyrir stafni?
Og er Jóab var genginn út frá Davíð, þá sendi hann menn eftir Abner, og þeir komu með hann aftur frá Bór-Hasíra; en Davíð vissi ekki af þessu.
En er Abner var aftur kominn til Hebron, veik Jóab honum á eintal afsíðis í borgarhliðinu og lagði hann þar í kviðinn, svo að hann beið bana af — til hefnda fyrir víg Asahels bróður síns.
En er Davíð síðar frétti það, sagði hann: Saklaus er eg og mitt ríki fyrir Drottni að eilífu af blóði Abners Nerssonar!
Komi það yfir höfuð Jóabs og yfir alla ætt hans; aldrei verði í ætt Jóabs þeirra vant, er rensli hafa og líkþráir eru, sem ganga við hækju, falla fyrir sverði eða vantar brauð!
En Jóab og Abísaí bróðir hans myrtu Abner, af því aðbann hafði drepið Asahel bróður þeirra hjá Gíbeon í bardaga.
Og Davíð sagði við Jóab og alt fólkið, sem hjá honum var: Rífið klæði yðar og gyrðist hærusekk og gangið kveinandi fyrir Abner! En Davíð konungur gekk á eftir líkbörunum.
Og þeir jörðuðu Abner í Hebron, og hóf þá konungur grát við gröf Abners, og allur lýðurinn grét líka.
Og konungur orti þessi sorgarljóð eftir Abner: Varð þá Abner að deyja dauða guðleysingjans?
Hendur þínar voru ekki bundnar og fætur þínir voru ekki fjötraðir — þú ert fallinn, eins og menn falla fyrir níðingum. Þá grét allur lýðurinn enn meira yfir honum.
Og allur lýðurinn kom og vildi fá Davíð til að neyta matar meðan enn var dagur, en Davíð sór og mælti: Guð láti mig gjalda þess nú og síðar, ef eg smakka brauð eða nokkuð annað fyrir sólarlag.
Allur lýðurinn tók eftir því Og líkaði þeim það vel; yfir höfuð líkaði öllum lýðnum vel alt það, Sem konungurinn gjörði.
Og alt fólkið og allur Ísrael sannfærðist um það á þeim degi, að konungur væri ekki valdur að vígi Abners Nerssonar.
Konungur mælti og við menn sína: Vitið þér ekki, að höfðingi og mikill maður er í dag fallinn í Ísrael?
En eg má mín Enn lítils, þótt eg sé smurður til konungs, og þessir menn, Zerújusynir, Eru mér yfirsterkari. Drottinn gjaldi þeim, sem níðingsverkið hefir unnið, Svo sem hann á skilið fyrir níðingsverk sitt!