Gamla testamentiðSaga
Eftir þetta spurði Davíð Drottins á þessa leið: Á eg að fara til einhverrar af borgunum í Júda? Drottinn svaraði honum: Já. Þá sagði Davíð: Hvert á eg að fara? Og hann svaraði: Til Hebron.
Þá fór Davíð þangað, og með honum báðar konur hans, þær Ahínóam frá Jesreel og Abígail, er átt hafði Nabal á Karmel.
Davíð lét og mennina, sem hjá honum voru, fara, hvern með sína fjölskyldu, og þeir settust að í borgunum kring um Hebron.
Þá komu Júdamenn og smurðu Davíð þar til konungs yfir Júda hús. Nú var Davíð sagt svo frá: Íbúarnir í Jabes í Gíleað hafa jarðað Sál.
Þá gjörði Davíð menn á fund íbúanna í Jabes í Gíleað og lét segja við þá: Verið blessaðir af Drottni fyrir það, að þér hafið sýnt þetta kærleiksverk á herra yðar Sál, að jarða hann.
Drottinn sýni yður nú kærleika og trúfesti; en eg vil og yður góðu launa, sakir þess að þér gjörðuð þetta.
Og verið nú hughraustir og látið á sjá, að þér séuð vaskir menn. Því að Sál, herra yðar, er dauður, enda hefir Júda hús smurt mig til konungs yfir sig.
En Abner Nersson, hershöfðingi Sáls, tók Ísbóset, son Sáls, og fór með hann yfir til Mahanaím
og gjörði hann að konungi yfir Gíleað, Asserítum, Jesreel, Efraím, Benjamín og yfir öllum Ísrael.
Ísbóset, sonur Sáls, var fertugur, þá er hann varð konungur yfir Ísrael, og hann ríkti í tvö ár. Júda hús eitt fylgdi Davíð.
Og tíminn, sem Davíð var konungur í Hebron, yfir Júda húsi, var sjö ár og sex mánuðir.
Og Abner Nersson fór með þjóna Ísbósets, sonar Sáls, frá Mahanaím til Gíbeon.
Jóab Zerújuson fór og með þjóna Davíðs frá Hebron, og varð fundur þeirra við Gíbeon-tjörn, og settust þeir sínum megin hvorir við tjörnina.
Þá sagði Abner við Jóab: Standi upp sveinar hvorratveggja og leiki nokkuð til skemtunar oss. Jóab kvað að svo skyldi vera.
Þá stóðu þeir upp og gengu fram eftir tölu: tólf fyrir Benjamín, fyrir Ísbóset, son Sáls, og tólf af þjónum Davíðs:
En þeir þrifu hver í annars koll og lögðu sverði hver í annars síðu, svo að þeir féllu hver með öðrum. Var sá staður kallaður Brandaakur og er hann hjá Gíbeon.
Tókst þá mjög hörð orusta á þeim degi, og fór Abner og Ísraelsmenn halloka fyrir mönnum Davíðs.
Þar voru þrír synir Zerúju, þeir Jóab, Abísaí og Asahel; en Asahel var frár á fæti sem skógargeitin í haganum.
Og Asahel rann eftir Abner og veik hvorki til hægri né vinstri, heldur elti hann einan.
Þá sneri Abner sér við og mælti: Ert það þú, Asahel? Hann kvað svo vera.
Þá sagði Abner við hann: Vík þú annaðhvort til hægri eða vinstri og ráð á einhvern af sveinunum og tak hertýgi hans. En Asahel vildi ekki láta af að elta hann,
Þá mælti Abner aftur við Asahel: Lát af að elta mig! Hví skyldi eg leggja þig að velli? hvernig gæti eg þá litið upp á Jóab bróður þinn?
En hann vildi ekki af láta. Þá lagði Abner spjótinu aftur fyrir sig í kvið honum, svo að út gekk um bakið, og féll hann dauður niður þar sem hann stóð. En allir þeir, er komu þangað sem Asahel hafði fallið niður dauður, námu staðar.
En Jóab og Abísaí eltu Abner, og er sól gekk undir, voru þeir komnir til Gíbeat-Amma, sem liggur fyrir austan Gía, á leiðinni til Gíbeon-eyðimerkur.
þá söfnuðust Benjamínítar saman til liðs við Abner og urðu einn flokkur og námu þeir staðar efst uppi á hæð einni.
Þá kallaði Abner til Jóabs og mælti: Á þá sverðið sífelt að eyða? Veiztu eigi, að beisk munu verða endalokin? Hversu lengi ætlar þú að draga að segja liðinu, að láta af að elta bræður sína?
Jóab svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, hefðir þú ekki talað, þá hefði liðið ekki látið af að elta bræður sína fyr en á morgun.
Síðan þeytti Jóab lúðurinn, og nam þá alt liðið staðar og lét af að elta Ísrael og hætti að berjast.
En Abner og menn hans fóru yfir sléttlendið alla þá nótt, fóru því næst yfir Jórdan og gengu öll þrengslin og komust til Mahanaím.
Og er Jóab hafði látið af að elta Abner, þá safnaði hann saman öllu liðinu, og vantaði þá aðeins nítján manns af mönnum Davíðs og Asahel.
en menn Davíðs höfðu lagt að velli þrjú hundruð og sextíu manns af Benjamínítum, af mönnum Abners.
En Asahel tóku þeir og jörðuðu hann hjá föður hans í Betlehem. Því næst hélt Jóab og menn hans áfram ferðinni alla nóttina og komu til Hebron í dögun.