Jóladagur
Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.
Jólatíð · Vika 1Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Jesaja 52:7-10
- Davíðssálmur
- Sálmur 98:1, 2-3, 3-4, 5-6
- 2. lesning
- Hebreabréfið 1:1-6
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 1:1-18
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í dag er heimi frelsi fætt,er fær vor mein og harma bættþað barnið þekkjum blessað vér,vor bróðir Jesús Kristur er.Og oss til merkis er það sagt:Í aumum reifum finnum lagtþað barn í jötu', er hefur heimí hendi sér og ljóssins geim.Því gleðjumst allir, góðir menn,og göngum þangað allir senn,þá jólagjöf, Guðs son, að sjá,er sauða hirðar gleðjast hjá.Æ, velkominn oss vertu þá,er vorar syndir tókst þig á.Oss, Jesús, kenn að þakka þér,að þínir bræður urðum vér.Ó, Guð, sem ráð á öllu átt,hví ertu kominn hér svo lágt,í tötrum lagður hart á hey,sem hefðir dýrri bústað ei?Þótt veröld öll sé víð og löng,sú vaggan er þér samt of þröngog þín ei verð, þótt væri' hún fullaf vegsemd þeirri', er skín sem gull.Svo hefur, Drottinn, þóknast þér,og þá vilt speki kenna mér,að heimsins auð og allt hans glysþú eigi virðir meira' en fis.Af hjarta' og tungu heilög dýrðsé Herrans Jesú föður skýrð.Heyr barna þinna bæn og þökk,og brjóstin, Guð, sjá glöð og klökk. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Segið oss, hirðar, hvað hafið þér séð? Hver hefir birst á jörðu? Vér höfum séð ungbarn og kór engla lofa Drottin, hallelúja.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Segið oss, hirðar, hvað hafið þér séð? Hver hefir birst á jörðu? Vér höfum séð ungbarn og kór engla lofa Drottin, hallelúja.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Engillinn sagði við hirðana: Ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; yður er í dag Frelsari fæddur, hallelúja.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Engillinn sagði við hirðana: Ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; yður er í dag Frelsari fæddur, hallelúja.
Sálmur 149
Andstef · Lítið barn er oss fætt í dag; lítið en þó kallað almáttugur Guð, hallelúja.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lítið barn er oss fætt í dag; lítið en þó kallað almáttugur Guð, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Heb 1, 1-2Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna. En nú í lok þessara daga hefur hann til vor talað í Syni sínum, sem hann setti erfingja allra hluta. Fyrir hann hefur hann líka heimana gjört.
Stutt svarvers
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt.* Hallelúja, hallelúja.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Fyrir augu þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hafa góðan vilja, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Orð Guðs var til fyrir sköpun heimsins en fæddist eigi að síður meðal vor í tíma. Vér lofum hann og tilbiðjum og hrópum af gleði:Lát jörðina glymja af fögnuði, því að þú ert kominn.Þú ert hið eilífa Orð Guðs sem yfirfylltir heiminn fögnuði við fæðingu þína,fyll oss fögnuði með stöðugri gjöf lífs þíns.Þú frelsaðir oss og opinberaðir oss með fæðingu þinni trúfastan sáttmála Drottins,hjálpa oss að vera trú skírnarheitum vorum.Þú ert konungur himins og jarðar sem sendi sendiboða til að boða öllum frið,fyll líf vort friði þínum.Þú ert hinn sanni vínviður er gefur af sér ávöxt lífsins,láttu oss, greinar vínviðarins, bera mikinn ávöxt.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú sem hefur látið þessa alhelgu nótt ljóma af birtu hins sanna ljóss, vér biðjum, gef að vér, sem þekkt höfum leyndardóma ljóss hans á jörðinni, njótum einnig á himnum gleði hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Heyrið óma hátt um jörðhelgan söng frá englahjörð:Náð og frelsi fagnið þér,friður jörðu veittur er.“Syng þú glaður lofsöngsljóð,lýður heims, með englaþjóð,kunngjör ásamt englaher:Yður Kristur fæddur er.“Hann, sem vegsemd himna bar,hann, sem Guð frá eilífð var,hvergi inni athvarf fær,er hann fæðir heilög mær.Lítið Guð í holdsins hjúp.Hver fær kannað þvílíkt djúp?Orðinn maður eins og vérImmanúel á jörðu hér.Birtið gleðiboðskap þann:Blessuð náðarsól upp rann,flytur öllum ljós og líf,lækning, græðslu, von og hlíf.Guðdómsmynd ei hafði hann,hér er kom og dauðann vann,fæddist til að frelsa oss,færa dauðum lífsins hnoss.Þei! Nú syngur himnaherKristi dýrð, sem fæddur er.Þei! Nú syngur englaherJesú dýrð, sem fæddur er. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Frá fæðingu hefur þú verið gæddur tignarlegum gjöfum; í eilífri dýrð, fyrir morgunroða jarðar, hef ég getið þig.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Frá fæðingu hefur þú verið gæddur tignarlegum gjöfum; í eilífri dýrð, fyrir morgunroða jarðar, hef ég getið þig.
Sálmur 130
Andstef · Hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.
1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,
2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!
3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?
4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.
5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.
6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.
7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.
8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Í upphafi, áður en tíminn hófst, var Orðið Guð; í dag er hann fæddur, Frelsari heimsins.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Í upphafi, áður en tíminn hófst, var Orðið Guð; í dag er hann fæddur, Frelsari heimsins.
Stuttur ritningarlestur
1Jh 1, 1-3Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins. Og lífið var opinberað, og vér höfum séð það og vottum um það og boðum yður lífið eilífa, sem var hjá Föðurnum og var opinberað oss. Já, það sem vér höfum séð og heyrt, það boðum vér yður einnig, til þess að þér getið líka haft samfélag við oss. Og samfélag vort er við Föðurinn og við Son hans Jesú Krist.
Stutt svarvers
Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.
Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.
Hann bjó með oss.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Kristur Drottinn er fæddur í dag; í dag birtist Frelsarinn. Jörðin endurómar englasöng, glaðværa lofgjörð erkiengla. Í dag fagna vinir hans á jörðu. Dýrð sé Guði í upphæðum, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Guð, þú sem undursamlega hefur gefið manneðlinu tign sína og enn undursamlegar endurskapað hana, gef oss að eiga samfélag með guðdómi hans, sem lét sér sæma hlutdeild í mannlegu eðli voru, hans sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007