Vígsluhátíð Laterankirkjunnar
Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.
Almennur kirkjutími · Vika 32Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Esekíel 47:1-2, 8-9, 12
- Davíðssálmur
- Sálmur 46:2-3, 5-6, 8-9
- 2. lesning
- 1. Korintubréf 3:9c-11, 16-17
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 2:13-22
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í öllum ljóma logar sólinog lýsir gullinn náðarstólinn.Ó, kom þú, hvítasunna' í söngmeð sumardægrin björt og löng.Nú Drottins mikla máttarorðoss mönnum reiðir nægtaborð.Nú dregur arnsúg ofar tindum.Guðs andi fer í sumarvindumum heiðageim, um fjöll og fjörðað frjóvga landsins ríku jörð.En lífsins elfur leikur sérsem lækur tær við fætur mér.Hér er það Guð, sem öllu ræður.Vér erum hans, ó, systur, bræður.Já, endurfædd af anda hansvér elskum guðsmynd sérhvers mannsí nafni Krists, sem kom á jörðmeð kærleik Guðs og sáttargjörð.Ó, vertu ei lengur veill né hálfur.Nei, vittu' að Guð er hjá þér sjálfur.Já, safnist þúsund þjóða málí þakkarsöngsins fórnarskál.Nú syngi öll hans sveit á jörðmeð sama rómi lofsöngsgjörð.Við nafn hans lít ég loga brennaog leika á vörum. – Saman rennanú allra þjóða móðurmálí mannssonarins fórnarskál.Í einu nafni ómar hérum eilífð: „Jesú, lof sé þér.“ Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Hús mitt skal nefnast bænahús.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hús mitt skal nefnast bænahús.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Lofaður sért þú, Drottinn, í heilögu musteri dýrðar þinnar.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofaður sért þú, Drottinn, í heilögu musteri dýrðar þinnar.
Sálmur 149
Andstef · Lofsöngur Drottins hljómi í söfnuði trúaðra.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsöngur Drottins hljómi í söfnuði trúaðra.
Stuttur ritningarlestur
Jes 56, 7Þá mun ég leiða til míns heilaga fjalls og gleðja þá í bænahúsi mínu. Brennifórnir þeirra og sláturfórnir skulu vera mér þóknanlegar á altari mínu. Því að hús mitt skal nefnast bænahús fyrir allar þjóðir.
Stutt svarvers
Drottinn er mikill, * hann er meiri en öll lofgjörð.
Drottinn er mikill, * hann er meiri en öll lofgjörð.
Í borg vors Guðs og á hans helga fjalli.
Hann er meiri en öll lofgjörð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er mikill, * hann er meiri en öll lofgjörð.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi þínu. Hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður. Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Vér erum lifandi steinar, lagðir á hyrningarsteininn sem er Kristur. Biðjum til almáttugs Föður vors fyrir elskaðri Kirkju Sonar hans, játum trú vora á hana og segjum:Þetta er hús Guðs og hlið himins.Faðir, klipptu víngarð þinn líkt og akuryrkjumaðurinn, varðveittu hann og lát hann auka ávöxt sinn,þar til hann nær til endimarka jarðar.Eilífi hirðir, varðveittu og gerðu hjörð þína stærri,til að allir sauðir megi safnast saman í eina hjörð undir Syni þínum, hirðinum eina.Almáttugi sáðmaður, gróðursettu heiminn á akri þínum,til að hann megi veita hundraðfalt í þína eilífu uppskeru.Vitri húsameistari, helgaðu heimili þitt og fjölskyldu þína,til að hin himneska Jerúsalem, eiginkona þín, megi birtast öllum sem þín dýrlega brúður.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Í kirkjunni sem vígð hefur verið: Drottinn, á hverju ári lætur þú oss halda hátíð til minningar um vígslu heilags musteris þíns og gerir oss kleift að vera ávallt viðstaddir þessa helgu leyndardóma; heyr þú bænir lýðs þíns og veit, að sérhver, er sækir þetta musteri til að biðja sér velgjörða, megi gleðjast yfir því, að hafa hlotið þær allar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda. Utan kirkjunnar sem vígð hefur verið: Guð, þú hefur búið þér eilífan bústað af lifandi og útvöldum steinum. Margfalda þú Kirkju þinni þann náðaranda sem þú hefur gefið, svo að trúfastur lýður þinn fari vaxandi og byggist upp sem Jerúsalemborg á himnum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda. Eða: Guð, sem kallar Kirkju þinn lýð, veit þú, að þeir, sem eru komnir saman í þínu nafni, óttist þig og elski, fylgi þér og nái, undir handleiðslu þinni, til hinna himnesku fyrirheita. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Látum hjartans lindir streyma,lofum Drottin kærleikans,hann sem vildi verða bróðirveikra barna, syndarans.Jesús er hjá oss hér,hann er lífið mér og þér.Lofum hann sem lífið gefur,lofum saman Drottin Krist.Syngdu, pabbi, systir, bróðir,syngdu, mamma góða, fyrst:Jesús er hjá oss hér,hann er lífið mér og þér.Allt er, Drottinn, þér að þakka,þessi stund og dagur hver,ástvinir og allt sem gleður,allt er náðargjöf frá þér.Jesús er hjá oss hér,hann er lífið mér og þér.Nú er bjart í hug og hjarta,húsið fullt af söng og yl,Jesús, lífsins lindin sanna,lífgar allt sem best er til.Jesús er hjá oss hér,hann er lífið mér og þér.Hann mun vinahópinn blessa,honum enginn gleyma skal.Hann skal stýra hug og vilja,helga kenndir, verk og tal.Jesús er hjá oss hér,hann er lífið mér og þér. Amen.
Sálmur 46
Andstef · Þetta er bústaður Guðs sem hann hefur gjört helgan; hann skal vera óbifanlegur að eilífu.
1Til söngstjórans. Eftir * Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð.
2Guð er oss hæli og styrkur * örugg hjálp í nauðum.
3Fyrir því hræðumst vér eigi * þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
4Látum vötnin gnýja og freyða * látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]
5Elfar–kvíslir gleðja Guðs borg * heilagan bústað Hins hæsta.
6Guð býr í henni, eigi mun hún bifast * Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.
7Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu * raust hans þrumaði, jörðin nötraði.
8Drottinn hersveitanna er með oss * Jakobs Guð vort vígi. [Sela]
9Komið, skoðið dáðir Drottinn * hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.
10Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann * slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.
11„Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð * hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.“
12Drottinn hersveitanna er með oss * Jakobs Guð vort vígi. [Sela]
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þetta er bústaður Guðs sem hann hefur gjört helgan; hann skal vera óbifanlegur að eilífu.
Sálmur 122
Andstef · Göngum glaðir í hús Drottins.
1Ég varð glaður, er menn sögðu við mig * „Göngum í hús Drottins.“
2Fætur vorir standa * í hliðum þínum, Jerúsalem.
3Jerúsalem, þú hin endurreista * borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,
4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins – það er regla fyrir Ísrael * til þess að lofa nafn Drottins,
5því að þar standa dómarastólar * stólar fyrir Davíðs ætt.
6Biðjið Jerúsalem friðar * hljóti heill þeir, er elska þig.
7Friður sé kringum múra þína * heill í höllum þínum.
8Sakir bræðra minna og * vina óska ég þér friðar.
9Sakir húss Drottins, Guðs vors * vil ég leita þér hamingju.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Göngum glaðir í hús Drottins.
Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7
Andstef · Allir þér hans heilögu, lofsyngið Drottni vorum.
1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.
2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“
5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“
6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.
7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Allir þér hans heilögu, lofsyngið Drottni vorum.
Stuttur ritningarlestur
Opb 21, 1a. 2-3. 22. 27Ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði, er skartar fyrir manni sínum. Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu, er sagði: “Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra.” Og musteri sá ég ekki í henni, því að Drottinn Guð, hinn alvaldi, er musteri hennar og Lambið. Og alls ekkert óhreint skal inn í hana ganga né sá sem fremur viðurstyggð eða iðkar lygi, engir nema þeir einir, sem ritaðir eru í lífsins bók Lambsins.
Stutt svarvers
Sælir eru þeir, sem búa * í húsi þínu, Drottinn.
Sælir eru þeir, sem búa * í húsi þínu, Drottinn.
Þeir munu lofa þig að eilífu.
Í húsi þínu, Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Sælir eru þeir, sem búa * í húsi þínu, Drottinn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þetta er bústaður Guðs sem hann hefur gjört heilagan; hér áköllum vér nafn hans því í Ritningunni segir: Þar munuð þér finna mig, segir Drottinn.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Í kirkjunni sem vígð hefur verið: Drottinn, á hverju ári lætur þú oss halda hátíð til minningar um vígslu heilags musteris þíns og gerir oss kleift að vera ávallt viðstaddir þessa helgu leyndardóma; heyr þú bænir lýðs þíns og veit, að sérhver, er sækir þetta musteri til að biðja sér velgjörða, megi gleðjast yfir því, að hafa hlotið þær allar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda. Utan kirkjunnar sem vígð hefur verið: Guð, þú hefur búið þér eilífan bústað af lifandi og útvöldum steinum. Margfalda þú Kirkju þinni þann náðaranda sem þú hefur gefið, svo að trúfastur lýður þinn fari vaxandi og byggist upp sem Jerúsalemborg á himnum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda. Eða: Guð, sem kallar Kirkju þinn lýð, veit þú, að þeir, sem eru komnir saman í þínu nafni, óttist þig og elski, fylgi þér og nái, undir handleiðslu þinni, til hinna himnesku fyrirheita. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 143, 1-11
Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.
1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.
2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.
3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.
4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.
5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.
6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]
7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.
8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.
9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.
10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.
11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.
Stuttur ritningarlestur
1Pt 5, 8-9aVerið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt. Standið gegn honum stöðugir í trúnni.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Miskunnsami Drottinn, hrek á brott myrkur þessarar nætur og lát heimili þitt sofa í friði, svo að við dögun fái það fyllt gleði að vakna í þínu nafni. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007