Fyrra Korintubréf 3Krans-útgáfa

Fyrra Korintubréf 3

Og eg gat ekki, bræður, talað við yður eins og við andlega menn, heldur eins og við holdlega, eins og við ómálga í Kristi.

Mjólk gaf eg yður að drekka, mat ekki, því að enn þolduð þér það ekki. Og þér þolið það jafnvel ekki enn,

því að enn þá eruð þér holdlegir menn. Því að þegar metningur og þráttan er á meðal yðar, eruð þér þá eigi holdlegir menn og hegðið yður á manna hátt?

Því að þegar einn segir: Eg er Páls, en annar: Eg er Apollóss, eruð þér þá ekki menn?

Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar, sem hafa leitt yður til trúar, og það eins og Drottinn hefir gefið hvorum fyrir sig.

Eg gróðursetti, Apollós vökvaði, en Guð gaf vöxtinn.

Þannig er þá hvorki sá neitt, er gróðursetur, né sá er vökvar, heldur Guð, sem vöxtinn gefur.

En sá sem gróðursetur og sá sem vökvar eru eitt. En sérhver mun fá sín eigin laun eftir sínu eigin erfiði.

Því að Guðs samverkamenn erum vér; Guðs akurlendi, Guðs hús eruð þér.

Eftir þeirri náð Guðs, sem mér er veitt, hefi eg eins og vitur húsameistari lagt grundvöll; en annar byggir ofan á. En sérhver athugi, hvernig hann byggir ofan á.

Því að annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Kristur.

En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey, hálm,

þá mun verk sérhvers verða augljóst, því að dagurinn mun leiða það í ljós, af því að hann opinberast með eldi; og hvílíkt verk hvers eins er, það mun eldurinn prófa.

Ef nú verk einhvers fær staðist, það er hann bygði ofan á, mun hann taka laun.

Ef verk einhvers brennur upp, mun hann bíða tjón, en sjálfur mun hann frelsaður verða, en þó eins og úr eldi.

Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður?

Ef nokkur eyðir musteri Guðs, mun guð eyða honum, því að musteri Guðs er heilagt, og það eruð þér.

Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur hygst vera vitur yðar á meðal í þessum heimi, hann verði heimskur, til þess að hann verði vitur.

Því að speki þessa heims er heimska hjá Guði. Því að ritað er: Hann er sá, sem grípur hina vitru í slægð þeirra.

Og aftur: Drottinn þekkir hugsanir vitringanna, að þær eru hégómlegar.

Fyrir því stæri enginn sig af mönnum. Því að alt er yðar,

hvort heldur er Páll, eða Apollós, eða Kefas, eða heimur, eða líf, eða dauði, eða hið yfirstandandi, eða hið komandi; alt er yðar,

en þér eruð Krists, en Kristur Guðs.