Og á þriðja degi var haldið brúðkaup í Kana í Galíleu. Og móðir Jesú var þar,
en Jesús var og boðinn til brúðkaupsins og lærisveinar hans.
Og er vín þraut, segir móðir Jesú við hann: Þeir hafa ekki vín.
Og Jesús segir við hana: Kona, hvað skiftir þú þér af mér? Minn tími er enn ekki kominn.
Móðir hans segir við þjónana: Hvað sem hann segir yður, skuluð þér gjöra.
En þar voru sett sex vatnsker úr steini, samkvæmt hreinsunarsiðum Gyðinga, og tók hvert þeirra tvo eða þrjá mæla.
Jesús segir við þá: Fyllið nú kerin vatni; og þeir fyltu þau á barma.
Þá segir hann við þá: Ausið nú upp og færið kæmeistaranum, og þeir færðu honum.
En er kæmeistarinn bergði á vatni því, er að víni var orðið, og vissi ekki hvaðan það var, — en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það — kallar kæmeistarinn á brúðgumann og segir við hann:
Hver maður setur fyrst góða vínið fram, en þegar menn eru orðnir ölvaðir, hið lakara; þú hefir geymt góða vínið þangað til nú.
Þessa byrjun jarteinanna gjörði Jesús í Kana í Galíleu, og opinberaði dýrð sína; og lærisveinar hans trúðu á hann.
Eftir þetta fór hann niður til Kapernaum, hann sjálfur og móðir hans og bræður og lærisveinar hans, og voru þau þar nokkura daga.
Og páskar Gyðinga fóru í hönd, og Jesús fór upp til Jerúsalem.
Og hann fann í helgidóminum þá, sem seldu naut og sauði og dúfur, og víxlarana sitjandi þar.
Og hann gjörði sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, bæði sauðina og nautin; og hann steypti niður smápeningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra.
Og við dúfnasalana sagði hann: Takið þetta burt héðan; gjörið ekki hús föður míns að verslunarbúð.
Lærisveinum hans kom í hug, að ritað er: Vandlæti vegna húss þíns mun uppeta mig.
Gyðingarnir svöruðu þá og sögðu við hann: Hvert tákn sýnir þú oss, þar eð þú gjörir þetta?
Jesús svaraði og sagði við þá: Brjótið þetta musteri, og á þrem dögum mun eg reisa það.
Þá sögðu Gyðingarnir: Í fjörutíu og sex ár hefir musteri þetta verið í smíðum, og munt þú reisa það á þremur dögum?
En hann talaði um musteri líkama síns.
Þegar hann því var upprisinn frá dauðum, mintust lærisveinar hans, að hann hafði talað þetta, og þeir trúðu ritningunni og því orði, sem Jesús hafði talað.
En er hann var í Jerúsalem á páskunum, á hátíðinni, trúðu margir á nafn hans, er þeir sáu tákn hans, þau er hann gjörði.
En Jesús sjálfur trúði þeim eigi fyrir, hver hann væri, því að hann þekti alla, og þurfti þess ekki, að nokkur vitnaði um manninn, því að hann vissi, hvað með manninum bjó.