Esekíelsbók 47Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 47

Þá sá eg að vatn spratt upp undan þröskuldi hússins mót austri, því að •alnhlið musterisins vissi til austurs. Og vatnið rann niður undan syðri kampi musterisins, sunnanvert við altarið.

Síðan leiddi hann mig út um norðurhliðið og fór með mig í kring að utanverðu að ytra hliðinu, sem snýr í austurátt; þá sá eg að vatn vall upp undan syðri kampinum.

Maðurinn gekk nú í austur með mælivað í hendi sér og mældi þúsund álnir. Og hann lét mig vaða yfir um vatnið, og tók það mér í ökla.

Þessu næst mældi hann þúsund álnir og lét mig vaða yfir um vatnið, tók vatnið mér þá til knés. Þá mældi hann enn þúsund álnir og lét mig vaða yfir um, tók vatnið mér þá í mjöðm.

Þá mældi hann enn þúsund álnir; var þá vatnið orðið að fljóti, svo að eg mátti ekki yfir það komast. Því að vatnið var of djúpt, var orðið sundvatn, óvætt fljót.

Hann sagði þá við mig: Hefir þú séð þetta, manns-son? Og hann leiddi mig aftur upp á fljótsbakkann.

Og er eg kom þangað aftur, sá eg mjög mörg tré á fljótsbökkunum beggja vegna.

Þá sagði hann við mig: Þetta vatn rennur út á austurhéraðið og þaðan ofan á sléttlendið, og þegarþað fellur í Dauðahafið, í satt vatnið, verður vatnið í því heilnæmt.

Og allar lifandi skepnur, alt sem þar hrærist, fær nýtt fjör alstaðar þar sem fljótið kemur, og fiskurinn mun verða mjög mikill; því að þegar þetta vatn kemur þangað, verður vatnið í því heilnæmt, og alt lifnar við, þar sem fljótið kemur.

Og fiskimenn munu standa við það frá En-Gedí alla leið til En-Eglaím; og vötn þess munu verða veiðistöðvar, þar sem net verða lögð; og fiskurinn í því mun verða mjög mikill, eins og í hafinu mikla.

En pyttirnir og síkin þar hjá munu ekki vera heilnæm; þau eru ættuð til saltfengjar.

En með fram fljótinu, á bökkunum beggja vegna, munu upp renna alls konar tré með ætum ávöxtum; laufblöð þeirra munu ekki visna og ávextir þeirra ekki dvína. Á hverjum mánuði munu þau bera nýja ávöxtu, af því að vötnin, sem þau lifa við, koma frá helgidóminum. Og ávextir þeirra munu hafðir verða til fæðslu og laufblöð þeirra tl lyfja.

Svo segir Drottinn Guð: Þetta eru takmörkin, og innan þeirra skuluð þér skifta yður niður á landið eftir tólf ættkvíslum Ísraels, Jósef tvo hluti.

Og þér skuluð fá landið til eignar, einn jafnt sem annar, með því að eg hét eitt sinn með uppréttri hendi að gefa feðrum yðar það, og því skal land þetta falla yður til erfða.

Og þetta skulu vera takmörk landsins að norðanverðu: frá hafinu mikla í áttina til Hetlón, þangað er leið liggur til Hamat,

Zedad, Beróta, Sibraím, sem liggur á milli Damaskus-lands og Hamat-lands, til Hazar-Enón, sem liggur á landamærum Havrans.

Takmörkin skulu þannig liggja frá hafinu til Hazar-Enón, en Damaskus-land liggur lengra til norðurs. Þetta er norðurhliðin.

Og austurhliðin: frá Hazar-Enón, sem liggur milli Havran og Damaskus, alt að eystra hafinu, er Jórdan takmarkalína milli Gíleaðs og Ísraelslands, alt til Tamar; þetta er austurhliðin.

Og suðurhliðin gegnt hádegissíað: frá Tamar alla leið til Meríbótvatna við Kades, að Egiptalandsá og þaðan til hafsins mikla; þetta er suðurhliðin gegnt hádegisstað.

Og vesturhliðin: hafið mikla ræður þar takmörkum alt þangað til komið er þar gegnt, er leið liggur til Hamat; þetta er vesturhliðin.

Og þér skuluð skifta þessu landi meðal yðar eftir ættkvíslum Ísraels.

skuluð þér skifta því með hlutkesti til arfleifðar meðal yða! og þeirra útlendra manna, er búa meðal yðar og getið hafa sonu meðal yðar; þá skuluð þér álíta innborna Ísraelsmenn; með yður skulu þel varpa hlutum um arfleifð meðal ættkvísla Ísraels.

Þér skuluð fá hverjum útlendum manni arfleifð í þeirri ættkvísl, þar sem hann býr; segir Drottinn Guð.