Esekíelsbók 48Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 48

Og þetta eru nöfn ættkvíslanna: Yzt í norðri, frá hafinu í áttina til Hetlón þangað að, er leið liggur til Hamat, og þaðan til Hazar-Enan — er þá Damaskus-land fyrir norðan, fram með Hamat, og fær hver land frá austri til vesturs: Dan, einn landshluti.

Og með fram Dans landi, frá austri til vesturs: Asser, einn landshluti.

Og með fram Assers landi, frá austri til vesturs: Naftalí, einn landshluti.

Og með fram Naftalí landi, frá austri il vesturs: Manasse, einn landshluti.

Og með fram Manasse landi, frá austri til vesturs: Efraím, einn landshluti.

Og með fram Efraíms landi, frá austri til vesturs: Rúben, einn landshluti.

Og með fram Rúbens landi, frá austri öl vesturs: Júda, einn landshluti.

Og með fram Júda landi, frá austri til vesturs, skal lyftifórnarlandið liggja, sem þér skuluð láta af hendi, tuttugu og fimm þúsund álnir á breidd og jafnt að lengd hlutum ættkvíslanna, frá austri til vesturs; og helgidómurinn skal vera í því miðju.

En lyftifórnarlandið, er þér skuluð helga Drottni, er tuttugu og fimm þúsund álnir á lengd og tuttugu þúsund álnir á breidd.

Og þeim, sem nú skal greina, skal hin heilaga lyftifórn tilheyra: prestunum landspilda tuttugu og fimm þúsund álna að norðanverðu, tíu þúsund álna að vestanverðu, tíu þúsund álna að austanverðu og tuttugu og fimm þúsund álna að sunnanverðu. Og helgidómur Drottins skal vera á henni miðri.

Vígðu prestunum, niðjum Zadóks, þeim er gætt hafa þjónustu minnar, sem eigi gengu afleiðis, þá er aðrir Ísraelsmenn gengu alleiðis, svo sem og Levítarnir hafa gengið alleiðis,

þeim skal það tilheyra sem lyftifórnarhluti af lyftifórnarlandinu, sem háheilagt land, við hliðina á landi Levítanna;

En Levítunum skal tilheyra jafnstórt land og prestanna: tuttugu og fimm þúsund álnir á lengd og tíu þúsund álnir á breidd, alls tuttugu og fimm þúsund álnir á lengd og tuttugu þúsund álnir á breidd.

Af því mega þeir ekkert selja og ekki farga neinu af því í skiftum, né heldur má þessi ágætasti hluti landsins ganga yfir í annarra eigu, því að hann er helgaður Drottni.

En þær fimm þúsund álnir, sem eftir eru af breiddinni með fram tuttugu og fimm þúsund álnunum, eru óheilayst land handa borginni, til ábúðar og beitilands; en borgin skal standa í þeim reit miðjum.

Og þetta er mál hennar: norðurhliðin fjögur þúsund og fimm hundruð álnir og suðurhliðin fjögur þúsund og fimm hundruð álnir og austurhliðin fjögur þúsund og fimm hundruð álnir og vesturhliðin fjögur þúsund og fimm hundruð álnir.

Og útjörð borgarinnar skal vera tvö hundruð og fimtíu álnir til norðurs, tvö hundruð og fimtíu til suðurs, tvö hundruð og fimlíu til austurs og Tvö hundruð og fimtíu til vesturs.

Og það sem eftir er af lengdinni með fram hinni helgu lyftifórn, tíu þúsund álnir til austurs og tíu þúsund álnir til Vesturs, afurðir þess skulu vera íbúum borgarinnar til fæðslu.

Og hvað íbúa borgarinnar snertir, þá skulu byggja hana menn af öllum ættkvíslum Ísraels.

Alls skuluð þér láta af hendi sem lyftifórn tuttugu og fimm þúsund álnir í ferhyrning: hina heilögu lyftifórn ásamt landeign borgarinnar.

Ijað, sem eftir er, skal tilheyra landshöfðingjanum, beggja vegna við hina heilögu lyftifórnargjöf og laiuleign borgarinnar, austur á bóginn með fram tuttugu og fimm þúsund álnunum að austurlakmörkunum og vestur á bóginn með fram tuttugu og fimm þúsund álnunum að vesturtakmörkunum, samsvarandi hlutum ættkvíslanna; það tilheyrir landshöfðingjanum, og hin heilaga lyftifórn og helgidómur musterisins skal vera í því miðju.

Og eignarland Levítanna og eignarland borgarinnar skal liggja mitt inni í því, sem landshöfðingjanum tilheyrir. Milli Júda lands og Benjamíns lands skal það land liggja, er landshöfðingjanum tilheyrir.

En hinar ættkvíslirnar eru, frá austri til vesturs: Benjamín, einn landshluti.

gmeð fram Benjamíns landi, frá austri til vesturs: Símeon, einn landshluti.

Og með fram Símeons landi, frá austri til vesturs: Íssakar, einn landshluti.

Og með fram Íssakars landi, frá austri til vesturs: Sebúlon, einn landshluti.

Og með fram Sebúlons landi, frá austri til vesturs: Gað, einn landshluti.

En með fram Gaðs landi, að sunnanverðu, gegnt hádegisstað, skulu takmörkin liggja frá Tamar yfir Meriba-vötn við Kades að Egiptalandsá og þaðan til hafsins mikla;

Þetta er Landið, sem þér skuluð úthluta ættkvíslum Ísraels til arfleifðar, og þetta eru hlutir þeirra, segir Drottinn Guð.

Og þessi eru útgönguhlið borgarinnar — og eru hlið borgarinnar nefnd eftir ættkvíslum Ísraels —: á norðurhliðinni, sem er fjögur þúsund og tinun hundruð álnir að máli,

eru þrjú hlið: Rúbenshlið, eitt; Júdahlið, eitt; Levíhlið, eitt.

Og á austurhliðinni, sem er fjögur þúsund og fimm hundruð álnir, eru þrjú hlið: Jósefshlið, eitt; Benjamínshlið, eitt; Danshlið, eitt.

Og á suðurhliðinni, sem er fjögur þúsund og fimm hundruð álnir að máli, eru þrjú hlið: Símeonshlið, eitt; íssakarshlið, eitt; Sebiilonslilið, eitt.

Og á vesturhliðinni, sem er fjögur þúsund og fimm hundruð álnir, eru þrjú hlið: Gaðshlið, eitt; Assershlið, eitt; Naftalíhlið, eitt.

Ummálið er átján þúsund álnir. Og borgin mun upp frá því heita: Samastaður Drottins.