Dagatal

Allra heilagra messa

Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.

Almennur kirkjutími · Vika 31

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Hvað þýðir það

Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ríki Guðs um allar álfurómælanda geimsins nær.Hásætið er himinn sjálfur,hallarprýði sólin skær,fótskör hans hin fagra jörð,fylgdin hans er englahjörð.Skrúða ljóssins skrýddur er hann,skíra lífsins krónu ber hann.Hann, þótt æðst í hátign ljómi,hógvær kemur alls staðar.Hjarta þitt að helgidómihann vill gjöra' og búa þar.Opna glaður hjartans hús,hýs hinn tigna gestinn fús.Getur nokkuð glatt þig fremur:Guð þinn sjálfur til þín kemur?Líknarár hann enn þá gefur,ár, sem háð ei breyting er,ár, er sumar ávallt hefur,ávöxt lífs að færa þér.Vetur, sumar, vor og haustvotti þakkir endalaustkonunginum konunganna,krýndum vegsemd. Hósíanna. Amen.

Sálmur 63, 2-9

Andstef · Hinir heilögu finna bústað sinn í himnaríki; líf þeirra er eilífur friður, hallelúja.

2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.

6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.

8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.

9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hinir heilögu finna bústað sinn í himnaríki; líf þeirra er eilífur friður, hallelúja.

Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Hinir heilögu Drottins, syngið Drottni lof að eilífu.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.

84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hinir heilögu Drottins, syngið Drottni lof að eilífu.

Sálmur 149

Andstef · Ísraelsbörn, sem Drottinn hefur kjörið sér til eignar, syngið lofgjörðarsálm til heiðurs hinum heilögu; hafið um hönd dýrð hinna heilögu.

1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.

5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum

6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum

7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,

8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ísraelsbörn, sem Drottinn hefur kjörið sér til eignar, syngið lofgjörðarsálm til heiðurs hinum heilögu; hafið um hönd dýrð hinna heilögu.

Stuttur ritningarlestur

Ef 1, 17-18Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, Föður dýrðarinnar, að gefa yður Anda speki og opinberunar, svo að þér fáið þekkt hann. Ég bið hann að upplýsa sálarsjón yðar, svo að þér skiljið, hver sú von er, sem hann hefur kallað oss til, hver ríkdómur hans dýrlegu arfleifðar er, sem hann ætlar oss meðal hinna heilögu.

Stutt svarvers

Lát hina réttlátu gleðjast * og syngja af fögnuði í Drottni.

Lát hina réttlátu gleðjast * og syngja af fögnuði í Drottni.

Hafið yndi af kærleika hans, þér hreinir í hjarta,

og syngja af fögnuði í Drottni.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lát hina réttlátu gleðjast * og syngja af fögnuði í Drottni.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Hinir heilögu munu skína sem sól í ríki Föður þeirra, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð er umbun allra hinna heilögu. Verum glöð þegar vér áköllum hann og segjum:Fyrir árnaðarbænir hinna heilögu frelsa oss, Drottinn.Guð, uppspretta alls þess sem heilagt er, þú hefur látið heilagleika þinn skína á ýmsa dásamlega vegu fyrir líf dýrlinga þinna,hjálpa oss að lofsyngja stórfengleika þinn í þeim.Líf þinna heilögu hefur verið vitnisburður um Son þinn Jesúm Krist,megum vér dragast nærri honum með því að fara að fordæmi þeirra.Konungur himnanna, fyrir þína heilögu hefur þú gefið oss hugrekki til að fylgja eftir Syni þínum,hjálpa oss að breyta eftir fordæmi hinna heilögu sem sýna oss veginn til Krists.Faðir, í fórn Evkaristíunnar sameinar þú oss algjörlega þeim sem nú lifa í ríki þínu,megi tíð meðtaka vor á líkama og blóði Sonar þíns leiða oss að hinu eilífa veisluborði.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi eilífi Guð, þú hefur gefið oss að vegsama verðleika allra dýrlinga þinna með einni hátíð. Vér biðjum að fyrir bænarstað svo margra dýrlinga veitir þú oss þá gnægð miskunnar þinnar sem vér þráum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna,vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna.Og allt það, sem spillti voruppreisn gegn þér, viltu bæta,því dauðinn í oss þínuupprisulífi skal mæta.Sem þjónn vor og bróðir hérertu og allt viltu gefaoss börnunum snauðum ogblindum af vantrú og efa.Það líf, sem oss týndist, þíntrúfesti aftur oss gefur,þú gefur þig sjálfan viðborðið, sem blessað þú hefur.Og vér, sem þig svikum, ílofsöng og fögnuði færumstfrá dauða til lífs, er vérþiggjum og neytum og nærumst.Vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna,vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna. Amen.

Sálmur 110, 1-5. 7

Andstef · Ég sá mikil múgur, sem enginn gat tölu á komið, af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum. Þeir stóðu frammi fyrir hásætinu.

1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“

2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“

5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég sá mikil múgur, sem enginn gat tölu á komið, af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum. Þeir stóðu frammi fyrir hásætinu.

Sálmur 116, 10-19

Andstef · Guð reyndi þá og fann þá verðuga sér; þeir munu fá dýrðarkórónu frá Drottni.

10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“

11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“

12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?

13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.

14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.

15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.

16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.

17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.

18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,

19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð reyndi þá og fann þá verðuga sér; þeir munu fá dýrðarkórónu frá Drottni.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Þú hefur endurleyst oss, Drottinn Guð, með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð. Og þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú hefur endurleyst oss, Drottinn Guð, með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð. Og þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki.

Stuttur ritningarlestur

2Kor 6, 16b; 7, 1Vér erum musteri lifanda Guðs, eins og Guð hefur sagt: Ég mun búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra, og ég mun vera Guð þeirra, og þeir munu vera lýður minn. Þar eð vér því höfum þessi fyrirheit, elskaðir, þá hreinsum oss af allri saurgun á líkama og sál og fullkomnum helgun vora í guðsótta.

Stutt svarvers

Þér hinir heilögu * gleðjist í Drottni.

Þér hinir heilögu * gleðjist í Drottni.

Guð hefur kjörið yður sér til eignar;

gleðjist í Drottni.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Þér hinir heilögu * gleðjist í Drottni.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Hversu dýrlegt er það konungsríki þar sem allir hinir heilögu fagna með Kristi; skrýddir hvítum skikkjum fylgja þeir Lambinu hvert sem það fer.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi eilífi Guð, þú hefur gefið oss að vegsama verðleika allra dýrlinga þinna með einni hátíð. Vér biðjum að fyrir bænarstað svo margra dýrlinga veitir þú oss þá gnægð miskunnar þinnar sem vér þráum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007