31. sunnudagur í almennum kirkjutíma
Sunnudagur á hinum almenna kirkjutíma — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.
Almennur kirkjutími · Vika 31Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í sunnudagsmessunni
- 1. lesning
- 5. Mósebók 6:2-6
- Davíðssálmur
- Sálmur 18:2-3, 3-4, 47, 51
- 2. lesning
- Hebreabréfið 7:23-28
- Guðspjall
- Markúsarguðspjall 12:28b-34
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Allt eins og blómstrið einaupp vex á sléttri grundfagurt með frjóvgun hreinafyrst um dags morgunstund,á snöggu augabragðiaf skorið verður fljótt,lit og blöð niður lagði –líf mannlegt endar skjótt.Svo hleypur æskan ungaóvissa dauðans leiðsem aldur og ellin þunga,allt rennur sama skeið.Innsigli engir fenguupp á lífsstunda bið,en þann kost undir genguallir að skilja við.Dauðinn má svo með sannisamlíkjast, þykir mér,slyngum þeim sláttumanni,er slær allt, hvað fyrir er:grösin og jurtir grænar,glóandi blómstrið frítt,reyr, stör sem rósir vænarreiknar hann jafnfánýtt.Lífið manns hratt fram hleypur,hafandi enga bið,í dauðans grimmar greipur –gröfin tekur þá við. Amen.
Sálmur 93
Andstef · Drottinn er tignarlegur á hæðum, hallelúja.
1Drottinn er konungur orðinn! Hann hefur íklæðst hátign, Drottinn hefur skrýðst * hann hefur spennt sig belti styrkleika síns og fest jörðina, svo að hún haggast eigi.
2Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu * frá eilífð ert þú.
3Straumarnir hófu upp, Drottinn, straumarnir hófu upp raust sína * straumarnir hófu upp dunur sínar.
4Drottinn á hæðum er tignarlegri en gnýr mikilla * tignarlegra vatna, tignarlegri en boðar hafsins.
5Vitnisburðir þínir eru harla áreiðanlegir * húsi þínu hæfir heilagleiki, ó Drottinn, um allar aldir.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er tignarlegur á hæðum, hallelúja.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Lofsverður ert þú, Drottinn, og hátt upp hafinn um aldir, hallelúja.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsverður ert þú, Drottinn, og hátt upp hafinn um aldir, hallelúja.
Sálmur 148
Andstef · Lofið Drottin af himnum, hallelúja.
1Hallelúja. Lofið Drottin af himnum * lofið hann á hæðum.
2Lofið hann, allir englar hans * lofið hann, allir herskarar hans.
3Lofið hann, sól og tungl * lofið hann, allar lýsandi stjörnur.
4Lofið hann, himnar himnanna og vötnin * sem eru yfir himninum.
5Þau skulu lofa nafn Drottins * því að hans boði voru þau sköpuð.
6Og hann fékk þeim stað um aldur og ævi * hann gaf þeim lög, sem þau mega eigi brjóta.
7Lofið Drottin af jörðu * þér sjóskrímsl og allir hafstraumar,
8eldur og hagl, snjór og reykur * stormbylurinn, sem framkvæmir orð hans,
9fjöllin og allar hæðir * ávaxtartrén og öll sedrustrén,
10villidýrin og allur fénaður * skriðkvikindin og fleygir fuglar,
11konungar jarðarinnar og allar þjóðir * höfðingjar og allir dómendur jarðar,
12bæði yngismenn og yngismeyjar * öldungar og ungir sveinar!
13Þau skulu lofa nafn Drottins, því að hans nafn eitt er hátt upp hafið * tign hans er yfir jörð og himni.
14Hann lyftir upp horni fyrir lýð sinn, lofsöngur hljómi hjá öllum dýrkendum hans * hjá sonum Ísraels, þjóðinni, sem er nálæg honum. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofið Drottin af himnum, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Esk 37, 12b-14Svo segir Drottinn Guð: Sjá ég vil opna grafir yðar, og láta yður rísa upp úr gröfum yðar, þjóð mín, og flytja yður inn í Ísraelsland, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn, þegar ég opna grafir yðar og læt yður rísa upp úr gröfum yðar, þjóð mín. Ég vil láta anda minn í yður, til þess að þér lifnið við aftur, og ég skal koma yður inn í yðar land, og þér skuluð viðurkenna að ég er Drottinn. Ég hefi talað það og mun framkvæma það, segir Drottinn.
Stutt svarvers
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.
Þú sem situr Föðurnum til hægri handar.
Miskunna þú oss.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Drottinn Guð vor er einn og enginn er annar en hann. Elska skalt þú Drottin Guð þinn af allri sálu þinni.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Guð sendi Heilagan Anda í hjörtu vor sem uppsprettu ljóss. Hvött af þessari vissu segjum vér saman:Upplýs þjóð þína, Drottinn.Blessaður sért þú, Guð, ljós vort,sem vegna dýrðar þinnar leiddir oss til þessa nýbyrjaða dags.Þú, sem með upprisu Sonar þíns hefur lýst upp heiminn,úthelltu ljósi hans í hjörtu allra manna fyrir starf Kirkju þinnar.Fyrir Heilagan Anda upplýstir þú lærisveina eingetins Sonar þíns,send Kirkju þinni enn í dag Anda þinn svo að hún sé þér trú.Ljós þjóðanna, minnstu þeirra sem umluktir eru myrkri,opna augu hjartna þeirra, svo að þeir þekki þig, hinn sanna Guð.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi og miskunnsami Guð, tilhlýðilegt er að þeir sem á þig trúa þjóni þér af lotningu og virðingu. Vér biðjum, veit oss að skunda mót fyrirheitum þínum og eigi hnjóta. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna,vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna.Og allt það, sem spillti voruppreisn gegn þér, viltu bæta,því dauðinn í oss þínuupprisulífi skal mæta.Sem þjónn vor og bróðir hérertu og allt viltu gefaoss börnunum snauðum ogblindum af vantrú og efa.Það líf, sem oss týndist, þíntrúfesti aftur oss gefur,þú gefur þig sjálfan viðborðið, sem blessað þú hefur.Og vér, sem þig svikum, ílofsöng og fögnuði færumstfrá dauða til lífs, er vérþiggjum og neytum og nærumst.Vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna,vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Hið eilífa ljós mun lýsa yfir dýrlingum þínum, Drottinn, og þeir munu lifa að eilífu, hallelúja.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hið eilífa ljós mun lýsa yfir dýrlingum þínum, Drottinn, og þeir munu lifa að eilífu, hallelúja.
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Jerúsalem, borg Guðs, börn þín munu veita þér fögnuð, því að öll munu þau blessuð verða og þeim mun verða safnað saman með Drottni, hallelúja.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jerúsalem, borg Guðs, börn þín munu veita þér fögnuð, því að öll munu þau blessuð verða og þeim mun verða safnað saman með Drottni, hallelúja.
Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7
Andstef · Frammi fyrir hásæti Guðs og Lambsins munu hinir heilögu syngja nýjan söng; raddir þeirra munu hljóma um allan heim, hallelúja.
1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.
2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“
5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“
6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.
7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Frammi fyrir hásæti Guðs og Lambsins munu hinir heilögu syngja nýjan söng; raddir þeirra munu hljóma um allan heim, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Heb 12, 22-24Þér eruð komnir til Síonfjalls og borgar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerúsalem, til tugþúsunda engla, til hátíðarsamkomu og safnaðar frumgetinna, sem á himnum eru skráðir, til Guðs, dómara allra, og til anda réttlátra, sem fullkomnir eru orðnir, og til Jesú, meðalgangara nýs sáttmála, og til blóðsins, sem hreinsar og talar kröftuglegar en blóð Abels.
Stutt svarvers
Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.
Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.
Þeir munu syngja lofsöng
í nærveru Drottins.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Hinn dýrlegi flokkur postulanna lofar þig, hinn göfugi félagsskapur spámannanna lofar þig, hvítklæddur herskari píslarvottanna lofar þig, allir hinir heilögu syngja þér dýrðina, ó heilög Þrenning, einn Guð.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi eilífi Guð, þú hefur gefið oss að vegsama verðleika allra dýrlinga þinna með einni hátíð. Vér biðjum að fyrir bænarstað svo margra dýrlinga veitir þú oss þá gnægð miskunnar þinnar sem vér þráum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007