Dagatal

Fimmtudagur í 4. viku páskatíðar

Virkur dagur á páskatíð.

Páskatíð · Vika 4

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, hallelúja.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, hallelúja.

Sálmur — Jes 66, 10-14a — Huggun og gleði í borginni helgu

Andstef · Ég mun sjá yður aftur, og hjarta yðar mun fagna, hallelúja.

10Gleðjist með Jerúsalem og fagnið yfir henni * allir þér sem elskið hana! Kætist með henni, allir þér sem nú hryggist yfir henni,

11svo að þér megið sjúga og saddir verða við hugsvalandi brjóst hennar * svo að þér megið teyga og gæða yður við dýrðargnótt hennar.

12Því að svo segir Drottinn: Sjá, ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti * og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Þér skuluð liggja á brjóstum hennar og skuluð bornir verða á mjöðminni og yður skal hossað verða á hnjánum.

13Eins og móðir huggar son sinn * eins mun ég hugga yður. Í Jerúsalem skuluð þér huggaðir verða.

14Þér munuð sjá það, og hjarta yðar mun fagna og bein yðar blómgast sem grængresi. Hönd Drottins mun kunn verða á þjónum hans * og hann mun láta óvini sína kenna á reiði sinni.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég mun sjá yður aftur, og hjarta yðar mun fagna, hallelúja.

Sálmur 147, 1-11

Andstef · Drottinn endurreisir Jerúsalem, og læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, hallelúja.

1Hallelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum * því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.

2Drottinn endurreisir Jerúsalem * safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael.

3Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta * og bindur um benjar þeirra.

4Hann ákveður tölu stjarnanna * kallar þær allar með nafni.

5Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi * speki hans er ómælanleg.

6Drottinn annast hrjáða * en óguðlega lægir hann að jörðu.

7Syngið Drottni með þakklæti * leikið á gígju fyrir Guði vorum.

8Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni * lætur gras spretta á fjöllunum.

9Hann gefur skepnunum fóður þeirra * hrafnsungunum, þegar þeir kalla.

10Hann hefur eigi mætur á styrkleika hestsins * eigi þóknun á fótleggjum mannsins.

11Drottinn hefur þóknun á þeim er óttast hann * þeim er bíða miskunnar hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn endurreisir Jerúsalem, og læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Rm 8, 10-11Ef Kristur er í yður, þá er líkaminn að sönnu dauður vegna syndarinnar, en andinn veitir líf vegna réttlætisins. Ef Andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með Anda sínum, sem í yður býr.

Stutt svarvers

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Ekki er lærisveinn meistaranum fremri; nægja má honum að vera sem meistari, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð Faðirinn, gaf öllu mannkyni í Syni sínum fyrirheit um upprisu. Vér skulum því snúa oss í trausti til Föðurins og segja:Megi Drottinn Jesús verða oss lífið sjálft.Sem eldstólpi lýstir þú veginn fyrir lýð þinn í eyðimörkinni,megi Kristur, fyrir upprisu sína, vera í dag ljós lífs vors.Af fjallinu kenndir þú lýð þínum fyrir munn Móse,megi Kristur, fyrir upprisu sína, vera oss í dag orð lífsins.Þú nærðir líðandi lýð þinn og gafst honum manna,megi Kristur, fyrir upprisu sína, vera oss í dag brauð lífsins.Þú gafst lýð þínum vatn úr klettinum,veit oss í dag, fyrir upprisu Sonar þíns, Jesú Krists, hinn lífgefandi Anda.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú endurnýjar manninn og hefur hann upp yfir upprunalegt gildi sitt. Lít þú á óútmálanlegt sakramenti kærleika þíns: Vernda þú í öllum, sem þú vildir endurnýja fyrir leyndardóm endurfæðingarinnar, gjafir ævarandi náðar þinnar og blessunar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 144 I

Andstef · Drottinn er vígi mín og hjálpari, hallelúja.

1Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt * sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

2Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari * skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

3Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann * mannsins barn, að þú gefir því gaum.

4Maðurinn er sem vindblær * dagar hans sem hverfandi skuggi.

5Drottinn, sveig þú himna þína og stíg niður * snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

6Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum * skjót örvum þínum og skelf þá.

7Rétt út hönd þína frá hæðum * hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

8Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn er vígi mín og hjálpari, hallelúja.

Sálmur 144 II

Andstef · Guði séu þakkir sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, hallelúja.

9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng * ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

10Þú veitir konungunum sigur * hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

11Hríf mig burt og bjarga mér af hendi útlendinganna. Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

12Synir vorir eru sem þroskaðir teinungar í æsku sinni * dætur vorar sem hornsúlur, úthöggnar í hallarstíl.

13Hlöður vorar eru fullar og veita afurðir af hverri tegund * fénaður vor getur af sér þúsundir, verður tíþúsundfaldur á haglendum vorum,

14uxar vorir klyfjaðir * ekkert skarð og engir hernumdir og ekkert óp á torgum vorum.

15Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir * sæl er sú þjóð, sem á Drottni að Guði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guði séu þakkir sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, hallelúja.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir, hallelúja.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 3, 18. 21b-22Kristur dó í eitt skipti fyrir öll fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt yður til Guðs. Hann var deyddur að líkamanum til, en lifandi gjörður í anda. Þetta er fyrirmyndan skírnarinnar sem nú frelsar yður. Skírnin er ekki hreinsun óhreininda á líkamanum heldur bæn til Guðs um góða samvisku fyrir upprisu Jesú Krists, sem uppstiginn til himna, situr Guði á hægri hönd, en englar, völd og kraftar eru undir hann lagðir.

Stutt svarvers

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Ég er góði hirðirinn sauðanna; ég er kominn til þess að þeir hafa líf, líf í fullri gnægð, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú endurnýjar manninn og hefur hann upp yfir upprunalegt gildi sitt. Lít þú á óútmálanlegt sakramenti kærleika þíns: Vernda þú í öllum, sem þú vildir endurnýja fyrir leyndardóm endurfæðingarinnar, gjafir ævarandi náðar þinnar og blessunar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007