Miðvikudagur í 4. viku páskatíðar
Virkur dagur á páskatíð.
Páskatíð · Vika 4Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Einnig í dag
Anselm frá Kantaraborg biskup og kirkjufræðari
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Postulasagan 12:24—13:5a
- Davíðssálmur
- Sálmur 67:2-3, 5, 6 og 8
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 12:44-50
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.
Sálmur 108
Andstef · Sýn þig himnum hærri, ó Guð, hallelúja.
1Ljóð. Davíðssálmur.
2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!
3Vakna þú, harpa og gígja * ég vil vekja morgunroðann.
4Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,
5því að miskunn þín er himnum hærri * og trúfesti þín nær til skýjanna.
6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,
7til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa * þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.
8Guð hefur sagt í helgidómi sínum: „Ég vil fagna * ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót–dal.
9Ég á Gíleað, ég á Manasse * og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.
10Móab er mundlaug mín * í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.“
11Hver vill fara með mig í örugga borg * hver vill flytja mig til Edóm?
12Þú hefur útskúfað oss, ó Guð, og þú * Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.
13Veit oss lið gegn fjandmönnunum * því að mannahjálp er ónýt.
14Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna * og hann mun troða óvini vora fótum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sýn þig himnum hærri, ó Guð, hallelúja.
Sálmur — Jes 61, 10 – 62, 5 — Fögnuður spámanns yfir hinni nýju Jerúsalem
Andstef · Hinn alvaldi Drottinn mun láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða, hallelúja.
10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins * hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúðgumi lætur á sig höfuðdjásn og brúður býr sig skarti sínu.
11Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta * svo mun hinn alvaldi Drottins láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.
1Sökum Síonar get ég ekki þagað, og sökum Jerúsalem get ég ekki kyrr verið * uns réttlæti hennar rennur upp sem ljómi og hjálpræði hennar sem brennandi blys.
2Þá skulu þjóðirnar sjá réttlæti þitt og allir konungar vegsemd þína * og þú munt nefnd verða nýju nafni, er munnur Drottins mun ákveða.
3Þú munt verða prýðileg kóróna í hendi * Drottins og konunglegt höfuðdjásn í hendi Guðs þíns.
4Þú munt ekki framar nefnd verða Yfirgefin, og land þitt ekki framar nefnt verða Auðn, heldur skalt þú kölluð verða Yndið mitt * og land þitt Eiginkona, því að Drottinn ann þér og land þitt mun manni gefið verða.
5Eins og ungur maður fær meyjar, eins munu synir þínir eignast þig * og eins og brúðgumi gleðst yfir brúði, eins mun Guð þinn gleðjast yfir þér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hinn alvaldi Drottinn mun láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða, hallelúja.
Sálmur 146
Andstef · Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn, Síon, hallelúja.
1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!
2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.
3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.
4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.
5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,
6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,
7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,
8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.
9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.
10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn, Síon, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Rm 6, 8-11Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með honum lifa. Vér vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. Með dauða sínum dó hann syndinni í eitt skipti fyrir öll, en með lífi sínu lifir hann Guði. Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa vera dauða syndinni, en lifandi Guði í Kristi Jesú.
Stutt svarvers
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri, segir Drottinn, hallelúja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Með gjöf Föðurins fengu postularnir að sjá Krist upprisinn. Biðjum til Föðurins og segjum:Gef oss, Drottinn, dýrð Sonar þíns.Faðir ljósanna, í dag berum vér fram fyrir þig þakkir vorar og lof fyrir að kalla oss til þíns undursamlega ljóss,til að meðtaka miskunn þína.Megi viðleitni mannanna að gera heiminn mannlegri,hreinsast og styrkjast með krafti Anda þíns.Megum vér helga oss þjónustu við aðra að slíku marki,að öll fjölskylda mannkynsins megi vera þóknanleg fórn þér til heiðurs.Fyll oss miskunn þinni við dögun nýs dags,til að dagurinn allur megi vera dagur gleði og lofs.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú ert líf hinna trúuðu, dýrð hinna auðmjúku, sæla hinna réttlátu. Heyr þú í mildi þinni innilegar bænir vorar, að vér megum öðlast nægtir af gnótt þinni, sem vér lítum til löngunaraugum samkvæmt auðlegð fyrirheita þinna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. ANSELMS, BISKUPS OG KIRKJUFRÆÐARA
Guð, þú gafst hinum sæla biskupi Anselm að leita æðstu visku þinnar og kenna hana. Lát slíka trú á þig koma skilningi vorum til hjálpar, svo að hjörtu vor skynji ljúflega það sem þú felur oss að trúa. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.
Sálmur 139 I
Andstef · Nóttin mun lýsa eins og dagur, hallelúja.
1Drottinn, þú rannsakar * og þekkir mig.
2Hvort sem ég sit eða stend * þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.
3Hvort sem ég geng eða ligg * þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú.
4Því að eigi er það orð á tungu minni * að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.
5Þú umlykur mig á bak og brjóst * og hönd þína hefur þú lagt á mig.
6Þekking þín er undursamlegri en svo, að ég fái skilið * of háleit, ég er henni eigi vaxinn.
7Hvert get ég farið frá anda * þínum og hvert flúið frá augliti þínu?
8Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar * þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar.
9Þótt ég lyfti mér á vængi * morgunroðans og settist við hið ysta haf,
10einnig þar mundi hönd þín leiða * mig og hægri hönd þín halda mér.
11Og þótt ég segði * „Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,“
12þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur * myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Nóttin mun lýsa eins og dagur, hallelúja.
Sálmur 139 II
Andstef · Ég þekki sauða mína, og þeir þekkja mig, hallelúja.
13Því að þú hefur myndað nýru mín * ofið mig í móðurlífi.
14Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður * undursamleg eru verk þín, það þekkir sál næsta vel.
15Beinin í mér voru þér eigi hulin * þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.
16Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni * ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.
17En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar * ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.
18Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin * ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér.
23Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt * rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar,
24og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi * og leið mig hinn eilífa veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég þekki sauða mína, og þeir þekkja mig, hallelúja.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Dýrð hans hylur himnanna og vegsemd hans fyllir jörðina, hallelúja.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Dýrð hans hylur himnanna og vegsemd hans fyllir jörðina, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Heb 7, 24-27Jesús er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti. Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir Guð, þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim. Slíks æðsta prests höfðum vér þörf, sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri. Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gjörði hann í eitt skipti fyrir öll, er hann fórnfærði sjálfum sér.
Stutt svarvers
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,
hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Eigi sendi Guð Son sinn til að dæma heiminn, heldur til að frelsa heiminn, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú ert líf hinna trúuðu, dýrð hinna auðmjúku, sæla hinna réttlátu. Heyr þú í mildi þinni innilegar bænir vorar, að vér megum öðlast nægtir af gnótt þinni, sem vér lítum til löngunaraugum samkvæmt auðlegð fyrirheita þinna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.
Sálmur 31, 2-6
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,
3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.
4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.
5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.
6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.
Stutt svarvers
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007