Dagatal

Þriðjudagur í 4. viku páskatíðar

Virkur dagur á páskatíð.

Páskatíð · Vika 4

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.

Sálmur 101

Andstef · Sá er gjörir vilja Föður míns mun ganga inn í himnaríki, hallelúja.

1Ég vil syngja um miskunn og rétt * lofsyngja þér, Drottinn.

2Ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda * hvenær kemur þú til mín? Í grandvarleik hjartans vil ég ganga um í húsi mínu.

3Ég læt mér eigi til hugar koma neitt níðingsverk. Ég hata þá sem illa breyta * þeir fá engin mök við mig að eiga.

4Rangsnúið hjarta skal frá mér víkja * ég kannast eigi við hinn vonda.

5Rægi einhver náunga sinn í leyni * þagga ég niður í honum. Hver sem er hrokafullur og drembilátur í hjarta, hann fæ ég ekki þolað.

6Augu mín horfa á hina trúföstu í landinu * að þeir megi búa hjá mér. Sá sem gengur grandvarleikans vegu, hann skal þjóna mér.

7Enginn má dvelja í húsi mínu * er svik fremur. Sá er lygar mælir stenst eigi fyrir augum mínum.

8Á hverjum morgni þagga ég niður í öllum óguðlegum * í landinu. Ég útrými úr borg Drottins öllum illgjörðamönnum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sá er gjörir vilja Föður míns mun ganga inn í himnaríki, hallelúja.

Sálmur — Dn 3, 26. 27a. 29. 34-41 — Bæn Asarja í eldsofninum

Andstef · Gjör kunnugt meðal þjóðanna, ó Guð, mikla og elskandi miskunn þína, hallelúja.

26„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra * og nafn þitt er lofs vert og dýrlegt að eilífu.

27Því að réttlátur ert þú í öllu, sem þú hefur oss gjört * og öll verk þín eru sönn og vegir þínir réttir og allir dómar þínir sannir.

29Því að vér höfum syndgað og drýgt ranglæti og horfið frá þér * og vér höfum brotið í öllu

34Ofursel oss eigi að eilífu, vér biðjum þig * sakir nafns þíns, og ógild eigi sáttmála þinn.

35Og tak eigi miskunn þína frá oss sakir Abrahams * þíns elskaða, og Ísaks, þjóns þíns, og Ísraels, þíns heilaga,

36sem þú talaðir við og hést því * að þú mundir margfalda niðja þeirra sem stjörnur himinsins og sem sand, er á sjávarströnd er.

37Því að vér, Drottinn, erum orðnir færri en nokkur þjóð og * niður lægðir á allri jörðunni á þessum degi sakir synda vorra.

38Og eigi er á þessum tíma höfðingi né leiðtogi né spámaður né * brennifórn né sláturfórn né matfórn né reykelsi né staður frumgróða frammi fyrir þér,

39að vér mættum finna miskunn þína * en með iðrandi hjarta og auðmjúkum anda látum oss þegna verða.

40Eins og í brennifórnum hrúta og nauta og eins og í þúsundum feitra lamba, svo verði fórn vor gjörð í augsýn þinni í dag * að hún megi þér þóknast; því að engin skömm er þeim, sem á þig treysta.

41Og nú fylgjum vér þér af öllu hjarta * og vér óttumst þig og leitum ásjónu þinnar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Gjör kunnugt meðal þjóðanna, ó Guð, mikla og elskandi miskunn þína, hallelúja.

Sálmur 144, 1-10

Andstef · Drottinn er bjarg mitt og frelsari minn, hallelúja.

1Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt * sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

2Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari * skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

3Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann * mannsins barn, að þú gefir því gaum.

4Maðurinn er sem vindblær * dagar hans sem hverfandi skuggi.

5Drottinn, sveig þú himna þína og stíg niður * snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

6Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum * skjót örvum þínum og skelf þá.

7Rétt út hönd þína frá hæðum * hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

8Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng * ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

10Þú veitir konungunum sigur * hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn er bjarg mitt og frelsari minn, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

P 13, 30-33Guð vakti Jesú frá dauðum. Marga daga birtist hann þeim, sem með honum fóru frá Galíleu upp til Jerúsalem, og eru þeir nú vottar hans hjá fólkinu. Og vér flytjum yður þau gleðiboð, að fyrirheitið, sem Guð gaf feðrum vorum, hefur hann efnt við oss börn þeirra með því að reisa Jesú upp. Svo er ritað í öðrum sálminum: Þú ert sonur minn, í dag hef ég fætt þig.

Stutt svarvers

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Verkin, sem ég gjöri í nafni Föður míns, þau vitna um mig, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Flekklaust Lamb Guðs tekur burt syndir heimsins. Gefum Föðurnum þakkir vorar og segjum:Upptök alls lífs, reistu oss til lífsins.Upptök alls lífs, minnstu dauða og upprisu Lambsins sem drepið var á krossinum,hlýddu á rödd þess þar sem það lifir að eilífu og biður oss árnaðar.Nú þegar hið gamla súrdeig rangsleitni og illsku hefur verið eytt,megum vér ávallt nærast á hinu ósýrða brauði einlægni og sannleika.Gef að vér leggjum til hliðar ágreining og öfund,og sýnum þörfum annarra manna meiri umhyggju.Send anda fagnaðarerindisins í hjörtu vor,til að vér megum ganga veg boðorða þinna í dag og að eilífu.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, vér biðjum þig: Veit þú að vér, sem heiðrum leyndardóm upprisu Drottins, verðskuldum einnig að meðtaka gleði endurlausnar vorrar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Hann sagði við þá: Sjá, ég kem í skýjum,og sólin brosti í tærum augum hans.Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum,en lutu þöglir ásýnd þessa manns.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 137, 1-6

Andstef · Syngið oss Síonarkvæði, hallelúja!

1Við Babýlons fljót, þar sátum vér og grétum * er vér minntumst Síonar.

2Á pílviðina þar hengdum * vér upp gígjur vorar.

3Því að herleiðendur vorir heimtuðu söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti * „Syngið oss Síonarkvæði!“

4Hvernig ættum vér að syngja * Drottni ljóð í öðru landi?

5Ef ég gleymi þér, Jerúsalem * þá visni mín hægri hönd.

6Tunga mín loði mér við góm, ef ég man eigi til þín * ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Syngið oss Síonarkvæði, hallelúja!

Sálmur 138

Andstef · Þú varðveitir líf mitt þótt á mig sæki böl, hallelúja.

1Ég vil lofa þig af öllu hjarta * lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.

2Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti * því að þú hefur gjört nafn þitt og orð þitt meira öllu öðru.

3Þegar ég hrópaði, bænheyrðir þú mig, þú veittir mér hugmóð * er ég fann kraft í sál minni.

4Allir konungar á jörðu skulu lofa þig * Drottinn, er þeir heyra orðin af munni þínum.

5Þeir skulu syngja um vegu Drottins * því að mikil er dýrð Drottins.

6Því að Drottinn er hár og sér þó * hina lítilmótlegu og þekkir hinn drambláta í fjarska.

7Þótt ég sé staddur í þrengingu, lætur þú mig lífi halda * þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér.

8Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig, Drottinn * miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef eigi verk handa þinna.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú varðveitir líf mitt þótt á mig sæki böl, hallelúja.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Ó Drottinn, þinn er mátturinn og dýrðin, veldið og sigurinn, hallelúja.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ó Drottinn, þinn er mátturinn og dýrðin, veldið og sigurinn, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 2, 4-5Komið til Drottins, hins lifanda steins, sem hafnað var af mönnum, en er hjá Guði útvalinn og dýrmætur, og látið sjálfir uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús, til heilags prestafélags, til að bera fram andlegar fórnir, Guði velþóknanlegar fyrir Jesú Krist.

Stutt svarvers

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Ég þekki sauða mína, og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, vér biðjum þig: Veit þú að vér, sem heiðrum leyndardóm upprisu Drottins, verðskuldum einnig að meðtaka gleði endurlausnar vorrar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 5, 8-9aVerið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt. Standið gegn honum stöðugir í trúnni.

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Miskunnsami Drottinn, hrek á brott myrkur þessarar nætur og lát heimili þitt sofa í friði, svo að við dögun fái það fyllt gleði að vakna í þínu nafni. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007