Dagatal

Þriðjudagur í 4. viku langaföstu

Virkur dagur á lönguföstu.

Langafasta · Vika 4

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Einnig í dag

Fransiska frá Róm reglusystir

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ó, Jesús, líkn og lífið mitt,þú lífið gafst í dauða þitt,til þess að deyða dauða minn,í deyð til lífs því geng ég inn.Þú gráta hlaust, svo gleddist ég,þú gekkst hinn þunga kvalaveg,svo ævi minnar efsta leiðmér yrði heimför sæl og greið.Þú krónu þyrna krýndur varst,af kærleiks nægð þú hana barst,svo djásn ég megi dýrlegt fá,ó, Drottinn minn, þér sjálfum hjá.Þú barst þinn eiginn kvalakross,frá kvölum þegar leystir oss,svo krossburð minn í heimi hérþví hægri létir verða mér.Með hverju get ég þakkað þér?Við þig um allt í skuld ég er.Þú gafst mér lífið góða þitt,ég gef þér hjartað veika mitt. Amen.

Sálmur 101

Andstef · Ég lofsyng þér, Drottinn, ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda.

1Ég vil syngja um miskunn og rétt * lofsyngja þér, Drottinn.

2Ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda * hvenær kemur þú til mín? Í grandvarleik hjartans vil ég ganga um í húsi mínu.

3Ég læt mér eigi til hugar koma neitt níðingsverk. Ég hata þá sem illa breyta * þeir fá engin mök við mig að eiga.

4Rangsnúið hjarta skal frá mér víkja * ég kannast eigi við hinn vonda.

5Rægi einhver náunga sinn í leyni * þagga ég niður í honum. Hver sem er hrokafullur og drembilátur í hjarta, hann fæ ég ekki þolað.

6Augu mín horfa á hina trúföstu í landinu * að þeir megi búa hjá mér. Sá sem gengur grandvarleikans vegu, hann skal þjóna mér.

7Enginn má dvelja í húsi mínu * er svik fremur. Sá er lygar mælir stenst eigi fyrir augum mínum.

8Á hverjum morgni þagga ég niður í öllum óguðlegum * í landinu. Ég útrými úr borg Drottins öllum illgjörðamönnum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég lofsyng þér, Drottinn, ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda.

Sálmur — Dn 3, 26. 27a. 29. 34-41 — Bæn Asarja í eldsofninum

Andstef · Lát miskunn þína eigi hverfa frá oss, Drottinn.

26„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra * og nafn þitt er lofs vert og dýrlegt að eilífu.

27Því að réttlátur ert þú í öllu, sem þú hefur oss gjört * og öll verk þín eru sönn og vegir þínir réttir og allir dómar þínir sannir.

29Því að vér höfum syndgað og drýgt ranglæti og horfið frá þér * og vér höfum brotið í öllu

34Ofursel oss eigi að eilífu, vér biðjum þig * sakir nafns þíns, og ógild eigi sáttmála þinn.

35Og tak eigi miskunn þína frá oss sakir Abrahams * þíns elskaða, og Ísaks, þjóns þíns, og Ísraels, þíns heilaga,

36sem þú talaðir við og hést því * að þú mundir margfalda niðja þeirra sem stjörnur himinsins og sem sand, er á sjávarströnd er.

37Því að vér, Drottinn, erum orðnir færri en nokkur þjóð og * niður lægðir á allri jörðunni á þessum degi sakir synda vorra.

38Og eigi er á þessum tíma höfðingi né leiðtogi né spámaður né * brennifórn né sláturfórn né matfórn né reykelsi né staður frumgróða frammi fyrir þér,

39að vér mættum finna miskunn þína * en með iðrandi hjarta og auðmjúkum anda látum oss þegna verða.

40Eins og í brennifórnum hrúta og nauta og eins og í þúsundum feitra lamba, svo verði fórn vor gjörð í augsýn þinni í dag * að hún megi þér þóknast; því að engin skömm er þeim, sem á þig treysta.

41Og nú fylgjum vér þér af öllu hjarta * og vér óttumst þig og leitum ásjónu þinnar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lát miskunn þína eigi hverfa frá oss, Drottinn.

Sálmur 144, 1-10

Andstef · Guð, ég vil syngja þér nýjan söng.

1Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt * sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

2Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari * skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

3Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann * mannsins barn, að þú gefir því gaum.

4Maðurinn er sem vindblær * dagar hans sem hverfandi skuggi.

5Drottinn, sveig þú himna þína og stíg niður * snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

6Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum * skjót örvum þínum og skelf þá.

7Rétt út hönd þína frá hæðum * hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

8Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng * ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

10Þú veitir konungunum sigur * hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð, ég vil syngja þér nýjan söng.

Stuttur ritningarlestur

Jl 2, 12-13Snúið yður til mín af öllu hjarta, með föstum, gráti og kveini. Sundurrífið hjörtu yðar en ekki klæði yðar, og hverfið aftur til Drottins Guðs yðar, því að hann er líknsamur og miskunnsamur, þolinmóður og gæskuríkur og iðrast hins illa.

Stutt svarvers

Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.

Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.

Og frá illum tíðindum.

Úr snöru fuglarans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Sá sem læknaði mig, sagði við mig: Tak rekkju þína og gakk!

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð Faðir hefur gefið oss sinn einkason, Orðið sem gerðist maður til að vera fæða vor og líf. Þökkum honum og biðjum:Megi orð Krists dvelja meðal oss í allri sinni auðlegð.Hjálpa oss á þessum föstutíma að hlýða oftar á orð þitt,svo að vér megum halda páskahátíðina af enn meiri elsku til Krists, páskafórnar vorrar.Megi Heilagur Andi þinn vera kennari vor,svo að vér getum hvatt þá sem efast og eru í villu að fylgja því sem er satt og gott.Gerðu oss kleift að öðlast dýpri skilning á leyndardómi þíns Smurða,svo að líf vort megi opinbera hann með áhrifaríkari hætti.Hreinsa og endurnýja Kirkju þína á þessum hjálpræðistíma,svo að hún megi gefa æ betri vitnisburð um þig.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn, megi vegsömun helgrar trúrækni undirbúa hjörtu fylgjenda þinna, svo að þeir meðtaki leyndardóm páskanna með verðugu hugarfari og gjöri heyrinkunnan frelsunarboðskapinn. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. FRANSISKU FRÁ RÓM, EKKJU OG REGLUSYSTUR

Guð, með hinni sælu Fransisku gafst þú oss einstakt dæmi um guðrækilegt líferni innan hjónabands og klausturs. Lát oss þjóna þér staðfastlega, svo að vér fáum séð þig og fylgt þér í daglegu lífi. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Jesús Kristur, lífsins ljómi,leysti oss frá sekt og dómi,þoldi háðung, þraut og kross,það var gjaldið hans til lausnar oss.Að vér sjá og muna megummiskunn þá og líf hans eigum,býr hann oss sitt borð og erbrauði úr og kaleik sjálfur hér.Komum til hans, krjúpum niður,Kristur er vort líf og friður,alla kallar elskan hans,athvarf, líkn og frelsi syndugs manns.Lofum hann, sem heiminn leysti,hjartað játi, elski, treystiföðurnáð, sem frelsar ossfyrir Jesú heilagt blóð og kross.Kristur mettar, Kristur svalar,kærleiksríkur við oss talar,hverjum þeim, sem byrði ber,býður hann að þiggja frið hjá sér. Amen.

Sálmur 137, 1-6

Andstef · Ef ég gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd.

1Við Babýlons fljót, þar sátum vér og grétum * er vér minntumst Síonar.

2Á pílviðina þar hengdum * vér upp gígjur vorar.

3Því að herleiðendur vorir heimtuðu söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti * „Syngið oss Síonarkvæði!“

4Hvernig ættum vér að syngja * Drottni ljóð í öðru landi?

5Ef ég gleymi þér, Jerúsalem * þá visni mín hægri hönd.

6Tunga mín loði mér við góm, ef ég man eigi til þín * ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ef ég gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd.

Sálmur 138

Andstef · Ég vil lofsyngja þér, Guð minn, frammi fyrir englunum.

1Ég vil lofa þig af öllu hjarta * lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.

2Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti * því að þú hefur gjört nafn þitt og orð þitt meira öllu öðru.

3Þegar ég hrópaði, bænheyrðir þú mig, þú veittir mér hugmóð * er ég fann kraft í sál minni.

4Allir konungar á jörðu skulu lofa þig * Drottinn, er þeir heyra orðin af munni þínum.

5Þeir skulu syngja um vegu Drottins * því að mikil er dýrð Drottins.

6Því að Drottinn er hár og sér þó * hina lítilmótlegu og þekkir hinn drambláta í fjarska.

7Þótt ég sé staddur í þrengingu, lætur þú mig lífi halda * þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér.

8Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig, Drottinn * miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef eigi verk handa þinna.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég vil lofsyngja þér, Guð minn, frammi fyrir englunum.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Maklegt er Lambið, sem slátrað var, að fá heiður og dýrð.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Maklegt er Lambið, sem slátrað var, að fá heiður og dýrð.

Stuttur ritningarlestur

Jk 2, 14. 17. 18bHvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann? Trúin er dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin. Sýn mér þá trú þína án verkanna, og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum.

Stutt svarvers

Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.

Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.

Lækna sál mína, því að ég hef syndgað gegn þér.

Miskunna þú mér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég sagði: Drottinn, * miskunna þú mér.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Nú ert þú orðinn heill. Syndga ekki framar, svo að eigi hendi þig annað verra.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn, megi vegsömun helgrar trúrækni undirbúa hjörtu fylgjenda þinna, svo að þeir meðtaki leyndardóm páskanna með verðugu hugarfari og gjöri heyrinkunnan frelsunarboðskapinn. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 5, 8-9aVerið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt. Standið gegn honum stöðugir í trúnni.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Miskunnsami Drottinn, hrek á brott myrkur þessarar nætur og lát heimili þitt sofa í friði, svo að við dögun fái það fyllt gleði að vakna í þínu nafni. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007