2. sunnudagur í almennum kirkjutíma
Sunnudagur á hinum almenna kirkjutíma — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.
Almennur kirkjutími · Vika 2Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í sunnudagsmessunni
- 1. lesning
- 1. Samúelsbók 3:3b-10, 19
- Davíðssálmur
- Sálmur 40:2, 4, 7-8, 8-9, 10
- 2. lesning
- 1. Korintubréf 6:13c-15a, 17-20
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 1:35-42
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Drottinn, ó, Drottinn vor, dagarnir líða,allt er að breytast, en aldrei þú.Ver þú oss veikum hjá, vernda þína arfleifð.Líknandi hendi, ó, leið oss nú.Drottinn, ó, Drottinn vor, drag oss æ nær þér,lífið hið eina' er hjá einum þér.Þar veitir þú oss frið, þróttinn til að lifa,sigurvon eilífa eignumst vér.Drottinn, ó, Drottinn vor, dýrð þína að efla,göfga þig einan æ gef oss náð,vinna þitt verk á jörð, vera þér til dýrðar,vegsama nafn þitt um lög og láð. Amen.
Sálmur 118
Andstef · Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, hallelúja.
1Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.
2Það mæli Ísrael * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“
3Það mæli Arons ætt * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“
4Það mæli þeir sem óttast Drottin * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“
5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin * hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.
6Drottinn er með mér, ég óttast eigi * hvað geta menn gjört mér?
7Drottinn er með mér með hjálp sína * og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.
8Betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta mönnum,
9betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.
10Allar þjóðir umkringdu mig * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
11Þær umkringdu mig á alla vegu * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla * en Drottinn veitti mér lið.
14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur * og hann varð mér til hjálpræðis.
15Fagnaðar– og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra * Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,
16hægri hönd Drottins upphefur * hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.
17Ég mun eigi deyja * heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.
18Drottinn hefur hirt mig harðlega * en eigi ofurselt mig dauðanum.
19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins * að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.
20Þetta er hlið Drottins * réttlátir menn fara inn um það.
21Ég lofa þig * af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.
22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu * er orðinn að hyrningarsteini.
23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið * það er dásamlegt í augum vorum.
24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gjört * fögnum, verum glaðir á honum.
25Drottinn, hjálpa þú * Drottinn, gef þú gengi!
26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins * frá húsi Drottins blessum vér yður.
27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum * allt inn að altarishornunum.
28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér * Guð minn, ég vegsama þig.
29Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, hallelúja.
Sálmur — Dn 3, 52-57 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Syngjum Drottni Guði vorum söng, hallelúja.
52„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og lofs verður og vegsamaður og upp hafinn yfir allt að eilífu * og blessað er hið heilaga nafn dýrðar þinnar og lofs vert og upp hafið yfir allt um allar aldir.
53Blessaður ert þú í hinu heilaga musteri dýrðar þinnar * og mjög lofs verður og mjög dýrlegur að eilífu.
54Blessaður ert þú í hásæti ríkis þíns * og mjög lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.
55Blessaður ert þú, sem lítur í djúpin og situr yfir kerúbunum * og lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Syngjum Drottni Guði vorum söng, hallelúja.
Sálmur 150
Andstef · Lofið Drottin eftir mikilleik hátignar hans, hallelúja.
1Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans * lofið hann í voldugri festingu hans!
2Lofið hann fyrir máttarverk hans * lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!
3Lofið hann með lúðurhljómi * lofið hann með hörpu og gígju!
4Lofið hann með bumbum og gleðidansi * lofið hann með strengleik og hjarðpípum!
5Lofið hann með hljómandi skálabumbum * lofið hann með hvellum skálabumbum!
6Allt sem andardrátt * hefur lofi Drottin! Hallelúja!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofið Drottin eftir mikilleik hátignar hans, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Esk 36, 25-27Ég mun stökkva hreinu vatni á yður, svo að þér verðið hreinir, ég mun hreinsa yður af öllum óhreinindum yðar og skurðgoðum. Ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst, og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi. Ég mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim.
Stutt svarvers
Vér lofum þig, ó Guð, * og áköllum nafn þitt.
Vér lofum þig, ó Guð, * og áköllum nafn þitt.
Vér segjum frá dásemdarverkum þínum.
Og áköllum nafn þitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Vér lofum þig, ó Guð, * og áköllum nafn þitt.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Lærisveinarnir fóru og sáu hvar hann dvaldist og voru hjá Jesú þann dag.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Færum frelsara vorum, sem sté niður í þennan heim til að vera Guð með oss, þakkir. Áköllum hann og segjum:Kristur, konungur dýrðarinnar, þú ert ljós vort og gleði.Kristur Drottinn, þú ert ljós af hæðum, frumburður komandi upprisu,gef oss að fylgja þér, svo að vér sitjum ekki í skugga dauðans, heldur göngum á vegi ljóssins.Sýn oss gæsku þína í sköpunarverkinu,svo að vér hugleiðum dýrð þína í öllu sem vér sjáum.Leyf ekki, Drottinn, að vér séum í dag sigruð af hinu illa,heldur gef að vér sigrum hið illa með góðu.Þú sem tókst skírn í ánni Jórdan og smurðist Heilögum Anda,gef oss í dag náð til að breyta eftir boðum Anda þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi, eilífi Guð, þú ræður yfir öllu á himni og jörðu. Heyr náðarsamlega bænir lýðs þíns og veit frið þinn um vora daga. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Mikli Drottinn, dýrð sé þér, dásemd þína' um aldaraðirásamt þínum englaher allir lofa viljum glaðir,falla þína fótskör á,faðir, þína dýrð að sjá.Lát þitt ríki lýsa vítt löndin yfir frið að veita,láttu fæðast lífið nýtt, ljós þitt vorum hjörtum breyta,láttu yfir lönd og höfljóma þína sigurgjöf.Helgur andi, heiður þér hver ein tunga' á jörðu færi.Faðir, Guð, vér þökkum þér, þér og Jesús, bróðir kæri.Ástar þinnar eilíft ljósoss sé blessun, vörn og hrós. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Kristur Drottinn er prestur að eilífu að hætti Melkísedeks, hallelúja.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Kristur Drottinn er prestur að eilífu að hætti Melkísedeks, hallelúja.
Sálmur 115
Andstef · Guð vor er í himninum, allt sem honum þóknast, það gjörir hann, hallelúja.
1Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss * heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti.
2Hví eiga heiðingjarnir að segja * „Hvar er Guð þeirra?“
3En vor Guð er í himnunum * allt sem honum þóknast, það gjörir hann.
4Skurðgoð þeirra eru silfur og gull * handaverk manna.
5Þau hafa munn, en tala ekki * augu, en sjá ekki,
6þau hafa eyru, en heyra ekki * nef, en finna engan þef.
7Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur * en ganga ekki, þau tala eigi með barka sínum.
8Eins og þau eru, verða smiðir þeirra * allir þeir er á þau treysta.
9En Ísrael treystir Drottni * hann er hjálp þeirra og skjöldur.
10Arons ætt treystir Drottni * hann er hjálp þeirra og skjöldur.
11Þeir sem óttast Drottin treysta Drottni * hann er hjálp þeirra og skjöldur.
12Drottinn minnist vor, hann mun blessa * hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt,
13hann mun blessa þá er óttast Drottin * yngri sem eldri.
14Drottinn mun fjölga yður * sjálfum yður og börnum yðar.
15Þér eruð blessaðir af Drottni * skapara himins og jarðar.
16Himnarnir eru himnar Drottins * en jörðina hefur hann gefið mannanna börnum.
17Eigi lofa andaðir menn Drottin * né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn,
18en vér viljum lofa Drottin * héðan í frá og að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guð vor er í himninum, allt sem honum þóknast, það gjörir hann, hallelúja.
Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7
Andstef · Lofsyngið Guði, allir þjónar hans, smáir og stórir, hallelúja.
1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.
2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“
5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“
6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.
7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngið Guði, allir þjónar hans, smáir og stórir, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
2Þ 2, 13-14Vér hljótum alltaf að þakka Guði fyrir yður, bræður, sem Drottinn elskar. Guð hefur frá upphafi útvalið yður til frelsunar í helgun Andans og trú á sannleikann. Til þess kallaði hann yður fyrir fagnaðarboðskap vorn, að þér skylduð öðlast dýrð Drottins vors Jesú Krists.
Stutt svarvers
Mikill er Drottinn vor * og hann er ríkur að veldi.
Mikill er Drottinn vor * og hann er ríkur að veldi.
Speki hans er ómælanleg.
Og hann er ríkur að veldi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Mikill er Drottinn vor * og hann er ríkur að veldi.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Andrés sagði við Símon Pétur bróður sinn: Við höfum fundið Messías! Og hann fór með hann til Jesú.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi, eilífi Guð, þú ræður yfir öllu á himni og jörðu. Heyr náðarsamlega bænir lýðs þíns og veit frið þinn um vora daga. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007