Fyrra Korintubréf 6Krans-útgáfa

Fyrra Korintubréf 6

Dirfist nokkur yðar, er hann hefir sök móti öðrum, að láta það koma undir dóm fyrir hinum ranglátu, en ekki fyrir hinum heilögu?

Eða vitið þér ekki, að hinir heilögu eiga að dæma heiminn? Og ef heimurinn á að dæmast af yður, eruð þér þá óverðugir að dæma í hinum minstu málum?

Vitið þér eigi, að vér eigum að dæma engla? Hvað þá tímanleg efni!

Þegar þér því eigið að dæma um tímanleg efni, hvort setjið þér þá fyrir dómara hina fyrirlitnu í kirkjunni?

Eg segi það yður til blygðunar. Er þá enginn vitur til á meðal yðar, sem skorið geti úr málum fyrir bróður sinn?

En bróðir á í máli við bróður, og það fyrir vantrúuðum!

Annars er það nú yfirleitt galli á yður, að þér eigið í málaferlum hver við annan. Hví líðið þér ekki heldur órétt? Hví látið þér ekki heldur hafa af yður?

En þér hafið rangsleitni í frammi og hafið af öðrum, og það af bræðrum!

Eða vitið þér ekki, að ranglátir munu ekki guðsríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn, né skurðgoðadýrkendur, né hórkarlar, né mannbleyður, né mannhórar,

né þjófar, né ásælnir, né drykkjumenn, né lastmálir, né ræningjar guðsríki erfa.

Og þetta voruð þér, sumir yðar. En þér létuð þvost, þér eruð helgaðir, þér eruð réttlættir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs.

Alt er mér leyfilegt, en ekki er alt gagnlegt. Alt er mér leyfilegt, en eg má ekki láta neitt fá vald yfir mér.

Maturinn er fyrir magann og maginn fyrir matinn, en Guð mun hvorttveggja að engu gjöra. En líkaminn er ekki fyrir saurlífi, heldur fyrir Drottin, og Drottinn fyrir líkamann.

En bæði hefir Guð uppvakið Drottin og mun uppvekja oss fyrir kraft sinn.

Vitið þér ekki, að líkamir yðar eru limir Krists? Á eg þá að taka limi Krists og gjöra þá að skækju-limum? Fjarri fer því.

Eða vitið þér ekki, að sá er samlagar sig skækjunni, verður ásamt henni einn líkami? Því að þau tvö — segir hann — munu verða eitt hold.

En sá er samlagar sig drotni, er einn andi ásamt honum.

Flýið saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn kann að drýgja, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama sínum.

Eða vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda í yður, sem þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin,

því að þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð í líkama yðar.