5. sunnudagur í langaföstu
Sunnudagur á lönguföstu — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.
Langafasta · Vika 5Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í sunnudagsmessunni
- 1. lesning
- Esekíel 37:12-14
- Davíðssálmur
- Sálmur 130:1-2, 3-4, 5-6, 7-8
- 2. lesning
- Rómverjabréfið 8:8-11
- Guðspjall
- Jóhannesarguðspjall 11:1-45
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, kom í hátign, Herra minn.Þér heilsar allur lýðurinnog klæðum lagða braut þér býr,með blessun þér á móti snýr.Ó, kom í hátign, Herra minn,því harla nærri' er dauði þinn.Þín sigurför mót Satan hér,mót synd og dauða hafin er.Ó, kom í hátign, Herra minn,af hæðum fórnargjörning þinnmeð undrun skoðar englaher,sjá, augun himnesk fylgja þér.Ó, kom í hátign, Herra minn,til hörmunganna ríð nú inn.Þinn faðir hæst á himnum er,hans hjarta bíður eftir þér.Ó, kom í hátign, Herra minn,með hátign gakk í dauða þinn.Á krossi mildu höfði hneig,á himni' og jörð svo ríkið eig. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Þú Guð minn, ert hjálpræði mitt.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú Guð minn, ert hjálpræði mitt.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Frelsa oss með dásemdarverkum þínum; leystu oss undan krafti dauðans.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Frelsa oss með dásemdarverkum þínum; leystu oss undan krafti dauðans.
Sálmur 149
Andstef · Stundin er komin, að Mannssonurinn verði gjörður dýrlegur.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Stundin er komin, að Mannssonurinn verði gjörður dýrlegur.
Stuttur ritningarlestur
3M 23, 4-7Þessar eru löghátíðir Drottins, helgar samkomur, er þér skuluð boða, hverja á sínum tíma. Í fyrsta mánuðinum, hinn fjórtánda dag mánaðarins um sólsetur, hefjast páskar Drottins. Og fimmtánda dag hins sama mánaðar skal halda Drottni hátíð hinna ósýrðu brauða. Sjö daga skuluð þér eta ósýrt brauð. Fyrsta daginn skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.
Stutt svarvers
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.
Þú sem varst særður vegna vorra misgjörða.
Miskunna þú oss.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, * miskunna þú oss.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei deyja.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Lofum elskandi Endurlausnara vorn, sem ávann oss þennan náðartíma; biðjum til hans og segjum:Drottinn, skapaðu í oss nýjan anda.Kristur, líf vort, fyrir skírnina vorum vér greftruð með þér og uppvakin til lífs með þér,megum vér lifa nýju lífi í dag.Drottinn, þú hefur fært öllu mannkyni blessun,gef oss hlutdeild í umhyggju þinni fyrir hag allra.Megum vér starfa saman við að reisa hina jarðnesku borg,meðan augu vor hvíla á borginni sem varir um aldir alda.Græðari líkama og sálar, læknaðu sjúkdóm anda vors,til að vér megum vaxa í heilagleika fyrir stöðuga umhyggju þína.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn Guð vor, af kærleika elskaði Sonur þinn heiminn og gaf sig dauðanum. Vér biðjum, megum vér sjálf með þinni hjálp vera og ganga fús í þessum kærleika. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Við kross þinn, Jesús, jafnanvil ég mér hæli fá.Þar hellubjargið best ég finn,sem byggt ég traust get á.Það hæli er í eyðimörksvo ágæt höfn og blíð,þar sem reika' eg einn um ókunn löndgegnum angist, neyð og stríð.Ó, hjálp í sálarhrelling,ó, hæli, sem ég fann,við krossinn fagra frelsarans,þar frið ég sálu vann.Sem Jakob nætur sá í sýnupp sólar ljúkast hvel,get ég stigann séð frá krossi Krists,þar í kærleiks von ég dvel.En skammt frá krossins skuggaég skelfdur gröf sé nær,og dimm og geigvæn dauðans nóttþar drunga yfir slær. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannsonurinn að verða upp hafinn.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannsonurinn að verða upp hafinn.
Sálmur 114
Andstef · Drottinn allsherjar varðveitir oss og gefur oss lausn; hann leiðir og frelsar lýð sinn.
1Þegar Ísrael fór út af Egyptalandi * Jakobs ætt frá þjóðinni, er mælti á erlenda tungu,
2varð Júda helgidómur hans * Ísrael ríki hans.
3Hafið sá það og flýði * Jórdan hörfaði undan.
4Fjöllin hoppuðu sem hrútar * hæðirnar sem lömb.
5Hvað er þér, haf, er þú flýr * Jórdan, er þú hörfar undan,
6þér fjöll, er þér hoppið sem hrútar * þér hæðir sem lömb?
7Titra þú, jörð, fyrir augliti Drottins * fyrir augliti Jakobs Guðs,
8hans sem gjörir klettinn að vatnstjörn * tinnusteininn að vatnslind.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn allsherjar varðveitir oss og gefur oss lausn; hann leiðir og frelsar lýð sinn.
Sálmur — 1Pt 2, 21-24 — Um sjálfviljuga þjáningu Krists, þjóns Guðs
Andstef · Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða. Fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir.
21Til þessa eruð þér kallaðir. Því að Kristur leið einnig fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd * til þess að þér skylduð feta í hans fótspor.
22„Hann drýgði ekki synd * og svik voru ekki fundin í munni hans.“
23Hann illmælti eigi aftur, er honum var illmælt, og hótaði eigi * er hann leið, heldur gaf það í hans vald, sem réttvíslega dæmir.
24Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð * til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér læknaðir.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða. Fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. P 13, 26-30Bræður, oss er sent orð þessa hjálpræðis. Þeir, sem í Jerúsalem búa, og höfðingjar þeirra þekktu hann eigi né skildu orð spámannanna, sem upp eru lesin hvern hvíldardag, en uppfylltu þau með því að dæma hann. Þótt þeir fyndu enga dauðasök hjá honum, báðu þeir Pílatus að láta lífláta hann. En er þeir höfðu fullnað allt, sem um hann var ritað, tóku þeir hann ofan af krossinum og lögðu í gröf. En Guð vakti hann frá dauðum.
Stutt svarvers
Lít til vor, Drottinn, og miskunna þú oss, * því að vér höfum syndgað gegn þér.
Lít til vor, Drottinn, og miskunna þú oss, * því að vér höfum syndgað gegn þér.
Heyr, Kristur, bæn vora og ákall.
Því að vér höfum syndgað gegn þér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Lít til vor, Drottinn, og miskunna þú oss, * því að vér höfum syndgað gegn þér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs Sonur, sem koma skal í heiminn.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn Guð vor, af kærleika elskaði Sonur þinn heiminn og gaf sig dauðanum. Vér biðjum, megum vér sjálf með þinni hjálp vera og ganga fús í þessum kærleika. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007