Saltarinn 130Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 130

Helgifaraljóð. Úr djúpinu ákalla eg þig, Drottinn,

Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!

Ef þú, Jah, vildir gefa gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist?

En hjá þér er fyrirgefning, svo að menn óttist þig.

Eg vona á Drottin, sál mín vonar, og hans orðs bíð eg.

Meir en vökumenn morgun, vökumenn morgun, skalt þú, Ísrael, þreyja Drottinn;

því að hjá Drottni er miskunn og hjá honum er gnægð lausnar,

og hann mun leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.