Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Helgifaraljóð.; Þeir hafa fjandskapast mjög við mig í frá æsku, skal Ísrael segja.
Þeir hafa fjandskapast mjög við mig í frá æsku, en þó eigi borið af mér;
plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,
fen Drottins hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.
Til skammar skulu þeir verða og hörfa undan, allir hatursmenn Zíonar.
Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist,
Tsvo að sláttumaðurinn fyllir eigi hönd sína af því, né kerfarinn fang sitt,
og þeir, sem fram hjá fara, segja ekki: »Blessun Drottins sé með yður, vér blessum yður í nafni Drottins!«