Dagatal

Þorláksmessa á vetri

Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.

Aðventa · Vika 4

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lesa meira

Einnig í dag

Jóhannes frá Kanty prestur

Fimmtudagur í 4. viku aðventu

Andlátsdagur heilags Þorláks biskups Þórhallssonar, verndardýrlings Íslands.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Í öllum löndum lið sig býrí ljóssins tygi skær,og æskufjör það áfram knýr,svo ekkert tálmað fær,sem döggin tær mót himni hlær,er heilsar morgunroðans blær,svo skín hin prúða fylking fríðaf frjálsum æskulýð.Í öllum löndum sama söngá sér hinn ungi her,um sama fána' og fánastöngþeir fylkja allir sér,og allir sjá hið sama hlið,hin sama dýrð þeim blasir við,í einni von, í ást og trúþeir áfram stefna nú.Og Jesús undan öllum fer,þeir eru' hans heiðurssveit.Til konungs þeir hann kusu sér,hann kærleiks þáði heit,svo vöxt og afl fær æskuþjóðvið alheimssólar mildu glóð,í skugga krossins skjól og hlíf,í skauti Jesú líf. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Til þín, ó Drottinn, hef ég upp sál mína, kom og frelsa mig, því þú ert athvarf mitt og styrkur.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Til þín, ó Drottinn, hef ég upp sál mína, kom og frelsa mig, því þú ert athvarf mitt og styrkur.

Sálmur — Jes 66, 10-14a — Huggun og gleði í borginni helgu

Andstef · Drottinn, blessa þá sem biðu komu þinnar; sanna að spámenn þínir spáðu rétt.

10Gleðjist með Jerúsalem og fagnið yfir henni * allir þér sem elskið hana! Kætist með henni, allir þér sem nú hryggist yfir henni,

11svo að þér megið sjúga og saddir verða við hugsvalandi brjóst hennar * svo að þér megið teyga og gæða yður við dýrðargnótt hennar.

12Því að svo segir Drottinn: Sjá, ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti * og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Þér skuluð liggja á brjóstum hennar og skuluð bornir verða á mjöðminni og yður skal hossað verða á hnjánum.

13Eins og móðir huggar son sinn * eins mun ég hugga yður. Í Jerúsalem skuluð þér huggaðir verða.

14Þér munuð sjá það, og hjarta yðar mun fagna og bein yðar blómgast sem grængresi. Hönd Drottins mun kunn verða á þjónum hans * og hann mun láta óvini sína kenna á reiði sinni.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, blessa þá sem biðu komu þinnar; sanna að spámenn þínir spáðu rétt.

Sálmur 147, 1-11

Andstef · Snú þér til vor, ó Drottinn, hraða þér þjóð þinni til hjálpar.

1Hallelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum * því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.

2Drottinn endurreisir Jerúsalem * safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael.

3Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta * og bindur um benjar þeirra.

4Hann ákveður tölu stjarnanna * kallar þær allar með nafni.

5Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi * speki hans er ómælanleg.

6Drottinn annast hrjáða * en óguðlega lægir hann að jörðu.

7Syngið Drottni með þakklæti * leikið á gígju fyrir Guði vorum.

8Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni * lætur gras spretta á fjöllunum.

9Hann gefur skepnunum fóður þeirra * hrafnsungunum, þegar þeir kalla.

10Hann hefur eigi mætur á styrkleika hestsins * eigi þóknun á fótleggjum mannsins.

11Drottinn hefur þóknun á þeim er óttast hann * þeim er bíða miskunnar hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Snú þér til vor, ó Drottinn, hraða þér þjóð þinni til hjálpar.

Stuttur ritningarlestur

Jer 30, 21-22Höfðingi hans mun frá honum koma og drottnari hans fram ganga úr flokki hans. Og ég mun láta hann nálgast mig, og hann mun koma til mín, segir Drottinn. Og þá munuð þér vera mín þjóð, og ég mun vera yðar Guð.

Stutt svarvers

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Þú munt sjá dýrð hans í þér:

Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Allt það er Drottinn hét meyjunni í boðskap engilsins hefir ræst.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Elskuðu bræður (og systur), Biðjum til Guðs, Föður vors, sem sendi Son sinn til að frelsa mannkynið:Sýn oss miskunn, Drottinn!Miskunnsami Faðir, vér játum trú vora á Jesú Krist með orðum vorum,forða oss frá að afneita honum í verkum vorum.Þú hefur sent Son þinn til að frelsa oss,afmá allar sorgir af yfirborði jarðar og af landi voru.Land vort bíður komu Sonar þíns í eftirvæntingu,lát það upplifa þína fullkomnu gleði.Lát oss, vegna miskunnar þinnar, lifa heilögu og hófsömu lífi í þessum heimi,á meðan vér bíðum í eftirvæntingu eftir komu Krists í dýrð sinni.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi, eilífi Guð, vér sjáum nálgast þann atburð, að Sonur þinn fæðist í heiminn að holdinu til. Vér biðjum að hann sem er hið eilífa Orð, en er fæddur af Maríu mey til þess að gerast maður, reynist miskunnsamur við oss óverðuga þjóna þína; Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · ÞORLÁKSMESSA Á VETRI

Guð, um gjörvallan heim úthellir þú náð þinni og fyrir predikun hins helga Þorláks biskups vilt þú fræða norðlægar slóðir. Veit, að þeir er játast undir kristið nafn megi fyrir árnað hans sýna þá trú í verkum sínum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Gef þú, maður, Guði þínumgjörvallt það, er honum ber,eins og hann í orðum sínumætlast til og býður þér.Gættu þess, að öllum áyfirburðum mönnum hjáyfirskrift hans er og myndin,ekkert þitt er nema syndin.Gef þú honum hjartans inni,hreint og prýtt sem best þú mátt,svo á því hann þóknun finni,þangað vilji koma brátt,bú þú honum bústað þar,bið hann sjálfan liðsemdar,að það honum helgast megi,helgidóm svo þar hann eigi.Gef þú honum athöfn allaorð og verk og lífið sjálft,láttu þér ei þungbært falla,þótt hann kjósi meira' en hálft.Hættu' að gefa heimi' og syndhelming lífs, og þeirra myndframar hygg ei fremd að vera,fegri mynd þú átt að bera. Amen.

Sálmur 144 I

Andstef · Til þín, ó Drottinn, hef ég upp sál mína, kom og frelsa mig, því þú ert athvarf mitt og styrkur.

1Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt * sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

2Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari * skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

3Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann * mannsins barn, að þú gefir því gaum.

4Maðurinn er sem vindblær * dagar hans sem hverfandi skuggi.

5Drottinn, sveig þú himna þína og stíg niður * snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

6Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum * skjót örvum þínum og skelf þá.

7Rétt út hönd þína frá hæðum * hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

8Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Til þín, ó Drottinn, hef ég upp sál mína, kom og frelsa mig, því þú ert athvarf mitt og styrkur.

Sálmur 144 II

Andstef · Drottinn, blessa þá sem biðu komu þinnar; sanna að spámenn þínir spáðu rétt.

9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng * ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

10Þú veitir konungunum sigur * hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

11Hríf mig burt og bjarga mér af hendi útlendinganna. Munnur þeirra mælir tál * og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

12Synir vorir eru sem þroskaðir teinungar í æsku sinni * dætur vorar sem hornsúlur, úthöggnar í hallarstíl.

13Hlöður vorar eru fullar og veita afurðir af hverri tegund * fénaður vor getur af sér þúsundir, verður tíþúsundfaldur á haglendum vorum,

14uxar vorir klyfjaðir * ekkert skarð og engir hernumdir og ekkert óp á torgum vorum.

15Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir * sæl er sú þjóð, sem á Drottni að Guði.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, blessa þá sem biðu komu þinnar; sanna að spámenn þínir spáðu rétt.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Snú þér til vor, ó Drottinn, hraða þér þjóð þinni til hjálpar.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Snú þér til vor, ó Drottinn, hraða þér þjóð þinni til hjálpar.

Stuttur ritningarlestur

2Pt 3, 8b-9Einn dagur er hjá Drottni sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við yður, þar eð hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar.

Stutt svarvers

Kom og frelsa oss, * Drottinn Guð allsherjar.

Kom og frelsa oss, * Drottinn Guð allsherjar.

Birtu auglit þitt og vér verðum hólpnir.

Drottinn Guð allsherjar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kom og frelsa oss, * Drottinn Guð allsherjar.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Immanúel, Guð með oss, konungur vor og löggjafi, eftirvænting þjóðanna og Frelsari þeirra, kom og endurleys oss, Drottinn vor og Guð.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi, eilífi Guð, vér sjáum nálgast þann atburð, að Sonur þinn fæðist í heiminn að holdinu til. Vér biðjum að hann sem er hið eilífa Orð, en er fæddur af Maríu mey til þess að gerast maður, reynist miskunnsamur við oss óverðuga þjóna þína; Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007