Dagatal

Ambrósíus biskup og kirkjufræðari

Minningardagur um Ambrósíus biskup og kirkjufræðara.

Aðventa · Vika 2

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.Þú, Herrans kristni, fagna mátt,því kóngur dýrðar kemur hérog kýs að eiga dvöl hjá þér.Hann býður líknar blessað ár,hann býður dýpst að græða sár,hann býður þyngstu' að borga sekt,hann býður aumra' að skýla nekt.Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,sjá, líkn er veldissproti hans.Því kom þú, lýður kristinn, núog kóngi dýrðar fagna þú.Hve sælt það land, hve sælt það hús,er sælugjafinn líknarfússér trútt og hlýðið fundið fær,þar friður, heill og blessun grær.Hve sælt það hjarta ávallt er,sem ást til Krists með lotning berog honum í sér bústað býr,að bragði sorg öll þaðan flýr. Amen.

Sálmur 43

Andstef · Send ljós þitt og trúfesti þína, Drottinn.

1Lát mig ná rétti mínum, Guð, berst fyrir málefni mínu gegn miskunnarlausri þjóð * bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.

2Því að þú ert sá Guð, sem er mér vígi * hví hefur þú útskúfað mér? hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum?

3Send ljós þitt og trúfesti þína, þau skulu leiða mig * þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga, til bústaðar þíns,

4svo að ég megi inn ganga að altari Guðs, til Guðs minnar fagnandi gleði * og lofa þig með gígjuhljómi, ó Guð, þú Guð minn.

5Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð * því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Send ljós þitt og trúfesti þína, Drottinn.

Sálmur — Jes 38, 10-14d. 17b-20 — Örvænting sjúkra, gleði heilbrigðra

Andstef · Bjarga oss, Drottinn, alla vora lífdaga.

10Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. * Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.

11Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda * ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.

12Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt * eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.

13Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af * ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.

14Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn * ég er í nauðum, líkna þú mér.

17Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir sál minni frá gröf eyðingarinnar * því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.

18Hel vegsamar þig eigi * dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.

19En sá einn lofar þig, sem lifir * eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.

20Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins * skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Bjarga oss, Drottinn, alla vora lífdaga.

Sálmur 65

Andstef · Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon!

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð.

2Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon * og við þig séu heitin efnd.

3Þú sem heyrir bænir * til þín kemur allt hold.

4Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari * en þú fyrirgafst afbrot vor.

5Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum * að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.

6Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti * þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,

7þú sem festir fjöllin með krafti þínum * gyrtur styrkleika,

8þú sem stöðvar brimgný hafsins * brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,

9svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín * austrið og vestrið lætur þú fagna.

10Þú hefur vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni * þú hefur framleitt korn þess, því að þannig hefur þú gjört það úr garði.

11Þú hefur vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess * með regnskúrum hefur þú mýkt það, blessað gróður þess.

12Þú hefur krýnt árið með gæsku þinni * og vagnspor þín drjúpa af feiti.

13Það drýpur af heiðalöndunum * og hæðirnar girðast fögnuði.

14Hagarnir klæðast hjörðum * og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon!

Stuttur ritningarlestur

1M 49, 10Ekki mun veldissprotinn víkja frá Júda, né ríkisvöndurinn frá fótum hans, uns sá kemur, er valdið hefur, og þjóðirnar ganga honum á hönd.

Stutt svarvers

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Þú munt sjá dýrð hans í þér:

Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Fagna þú og vertu glöð, ó, dóttir Síonar; ég mun koma og búa í þér, segir Drottinn.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Elskuðu bræður (og systur), hrópum af fögnuði til Krists, Drottins vors, ljóss heimsins:Kom þú, Drottinn Jesús.Hrek þú burtu myrkur vort með ljósi nærveru þinnar,og ger oss verðug gjafa þinna.Frelsa oss, Drottinn Guð vor,að vér megum lofa þitt heilaga nafn í dag.Tendra í hjörtum vorum loga elsku þinnar,og lát oss þrá að sameinast þér.Þú barst ófullkomleika vorn,hjálpa þeim sjúku og þeim sem eru að deyja í dag.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú sem hefur kunngjört hjálpræði þitt öllum endimörkum jarðar, vér biðjum að þú veitir að vér bíðum í fögnuði fæðingardýrðar frelsarans, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. AMBRÓSÍUSAR, BISKUPS OG KIRKJUFRÆÐARA

Guð, þú gjörðir hinn sæla biskup Ambrósíus kennimann kaþólskrar trúar og fordæmi postullegs hugrekkis. Vek upp menn í Kirkju þinni eftir vilja þínum, sem stjórni henni af hugrekki og visku. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Sérhvert ljós um lífsins nótt,hugsvölun í hverjum þrautum,hverja gleði' á lífsins brautum,sérhvert lán og gæðagnótt,allt hið fagra' er augað líturandinn hvað sem dýrlegt veit,alla sælu', er hjartað hlýtur,Herra, skóp þín elskan heit.Alls hins góða er hún rót,lind, er heilsu lífsins geymir,lind, er rík af blessun streymir,lindin, er allra eymda bót,lind, er heillum lýði vefur,lind, er helgan veitir auð,lind, er fegurð lífi gefur,lind, er vekur hjörtun dauð.Ó, þú, Drottinn dýrðarhár,föðurást þín aldrei sefur,Eden nýja hún oss gefur,þvær af syndir, þerrar tár.Fyrir Jesú, frelsið manna,fyrirgafst þú líka mér.Líf og himinsælu sannasé ég búna' í faðmi þér. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis.

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Heil sért þú, María, full náðar. Drottinn er með þér.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Heil sért þú, María, full náðar. Drottinn er með þér.

Stuttur ritningarlestur

Rm 8, 29a. 30aÞá, sem Guð þekkti fyrirfram, hefur hann og fyrirhugað til þess að líkjast mynd Sonar síns. Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlætt.

Stutt svarvers

Ég tigna þig, Drottinn, * því að þú hefur bjargað mér.

Ég tigna þig, Drottinn, * því að þú hefur bjargað mér.

Þú hefur eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

Því að þú hefur bjargað mér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég tigna þig, Drottinn, * því að þú hefur bjargað mér.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Allar kynslóðir munu mig sæla segja: Mikla hluti hefur hinn almáttugi við mig gjört, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú bjóst Syni þínum verðugan bústað með flekklausum getnaði meyjarinnar. Þú varðveittir hana syndlausa, því að dauði Sonar þíns var kunnur fyrir. Vér biðjum, leyf oss einnig fyrir árnað hennar að komast hrein til þín. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007