Gamla testamentiðSpámennirnir
Huggið, huggið lýð minn! segir Guð yðar.
Hughreystið Jerúsalem og boðið henni, að áþján hennar sé á enda, að sekt hennar sé goldin, að hún hafi fengið tvöfalt af hendi Drottins fyrir allar syndir sínar!
Heyr, kallað er í eyðimörkinni: Greiðið götu Drottins, ryðjið Guði vorum veg í óbygðinni!
Sérhver dalur skal hækka, hvert fjall og háls lækka; hólarnir skulu verða að jafnsléttu og hamrarnir að dalagrundum!
Dýrð Drottins mun birtast, og alt hold mun sjá það, því að munnur Drottins hefir talað það!
Heyr, einhver segir: »Kalla þú!« og eg svara: Hvað skal eg kalla? »Alt hold er gras, og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins.
Grasið visnar, blómin fölna, þegar Drottinn andar á þau. Sannlega, mennirnir eru gras:
Grasið visnar, blómin fölna, en orð Guðs vors stendur stöðugt eilíflega«.
stíg upp á hátt fjall, þú Zíon fagnaðarboði! hef upp raust þína á kröftuglega, þú Jerúsalem fagnaðarboði! hef upp raustina, óttast eigi, seg borgunum í Júda: Sjá, Guð yðar kemur!
Sjá, Drottinn Guð kemur Sera hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða; sjá, endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum.
Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni tl haga, taka unglömbin í faðn sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.
Hver hefir mælt vötnin í lófa sínum og stikað himininn með spönn sinni, innilukt duft jarðarinnar í mælikeri og vegið fjöllin á reizlu og hálsana á metaskálum?
Hver hefir leiðbeint anda Drottins, hver hefir verið ráðgjafi hans og frætt hann?
Hvern hefir hann sótt að ráðum, þann er gæfi honum skilning og kendi honum leið réttvísinnar, uppfræddi hann í þekkingu og vísaði honum veg vizkunnar?
Sjá, þjóðirnar eru sem dropi í vatnskjólu og metnar Sera ryk á vogarskáfura; sjá, eylöndunum lyftir hann upp eins og duftkorni.
Og Libanon-skógur hrökkur ekki til eldsneytis og dýrin í honum ekki til brennifórnar.
Allar þjóðir eru sem ekkert fyrir honum, þær eru minna en ekki neitt og hégómi í hans augum.
Við hvern viljið þér þá samlíkja Guði, og hvað viljið þér taka til jafns við hann?
Líkneski, Sera smiðurinn steypir og gullsmiðurinn býr slegnu gulli ogsetur á silfurfestar;
en sá, sem eigi á fyrir slíkri fórnargjöf, vetur sér þann við, er ekki fúni, og leitar að góðum smið, er reist geti svo líkneski, að ekki haggist!
Vitið þér ekkert? heyrið þér ekki? hefir yður eigi - verið kunngjört það frá upphafi? hafið þér engan skilning hlotið frá grundvöllun jarðar?
Það er hann, Sera situr hátt yfir jarðarkringlunni, og Þeir, sem á henni búa, eru Sera engisprettur; það er hann, sem þenur út himininn eins og þunna voð og slær honum sundur eins og tjaldi, til Þess að búa í.
Það er hann, sem lætur höfðingjana verða að engu og gjörir drotna jarðarinnar að hégóma.
Varla eru þeir gróðursettir, varla niðursánir, varla hefir stofn þeirra náð að festa rætur í jörðinni, fyr en hann andar á þá, og þá skrælna þeir upp, og stormbylurinn feykir þeim burt eins og hálmleggjum.
Við hvern viljið þér samlíkja mér, að eg sé honum jafn? segir hinn Heilagi.
Hefjið upp augu yðar í hæðirnar og litist um: Hver hefir skapað þetta? Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar með nafni; sökum mikilleiks kraftar hans og af því að hann er voldugur að afli, verður einskis þeirra vant.
Hví segir þú þá svo, Jakob, og hví mælir þú þá svo, Ísrael: »Hagur minn er hulinn fyrir Drottni, og réttur minn er genginn úr höndum Guði mínum?
Veiztu þá ekki — hefir þú ekki heyrt, að Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar; hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg.
Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa.
Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga,
Sen þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft; þeir fljúga upp á vængjum sem ernir; þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.