Jesajabók 39Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 39

Um þær mundir sendi Meródak-Baladan Baladansson, konungur í Babel, bréf og gjafir til Hiskía, því að hann hafði frétt, að hann hefði verið sjúkur, en væri nú aftur heill orðinn.

Hiskía fagnaði komu þeirra og sýndi þeim féhirzlu sína, silfrið og gullið, ilmjurtirnar og hina dýru olíu og alt vopnabúr sitt og alt, sem til var í fjársjóðum hans. Var enginn sá hlutur í höll Hiskía eða nokkurstaðar í ríki hans, að eigi sýndi hann þeim.

Þá kom Jesaja spámaður til Hiskía konungs og sagði við hann: Hvert var erindi þessara manna og hvaðan eru þeir til þín komnir? Hiskía svaraði: Af fjarlægu landi eru þeir til mín komnir, frá Babel.

Þá sagði hann: Hvað sáu þeir í höll þinni? Hiskía svaraði: Alt, sem í höll minni er, hafa þeir séð; enginn er sá hlutur í fjársjóðum mínum, að eigi hafi eg sýnt þeim.

Þá sagði Jesaja við Hiskía: Heyr þú orð Drottins hersveitanna.

Sjá, þeir dagar munu koma, að alt, sem er í höll þinni, og það, sem feður þínir hafa saman dregið alt til þessa dags, mun flutt verða til Babel; ekkert skal eftir verða, segir Drottinn.

Og nokkurir af sonum þínum, sem af þér munu koma og þú munt geta, munu teknir verða og gjörðir að hirðsveinum í höll konungsins í Babel.

En Hiskía sagði við Jesaja: Gott er það orð Drottins, er þú hefir talað. Því að hann hugsaði: Farsæld og friður helzt þó meðan eg lifi.