Gamla testamentiðSpámennirnir
Um þær mundir tók Hiskía sótt og var að dauða kominn. Þá kom Jesaja Amozson spámaður til hans og sagði við hann: Svo segir Drottinn: Ráðstafa húsi þínu, því að þú munt deyja og eigi lifa.
Þá sneri Hiskía andliti sínu til veggjar, bað til Drottins
og mælti: Æ, Drottinn, minstu þess, að eg hefi gengið fyrir augliti þínu með trúmensku og einlægu hjarta og gjört það sem þér er þóknanlegt! Og Hiskía grét sáran.
Þá kom orð Drottins til Jesaja, svolátandi:
Far og seg Hiskíia: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, forföður þíns: Eg hefi heyrt bæn þína og séð tár þín. Sjá, eg vil enn leggja fimlán ár við aldur þinn.
Og eg vil frelsa þig og þessa borg af hendi Assýríukonungs, og eg mun vernda þessa borg.
Og þetta skalt þú til marks hafa af Drottni, að Drottinn muni efna það, sem hann hefir heitið.
Sjá, eg færi aftur stigskuggann, er með sólinni hefir færst niður á sólvísi Akasar, um tíu stig. Og sólin færðist aftur á bak þau tíu stig á sólvísinum, er hún hafði gengið niður.
Sálmur eftir Hiskía Júda-konung, þá er hann hafði verið sjúkur, en var heill orðinn af sjúkleik sínum.
Eg sagði: Á hádegi æfi minnar hlýt eg að ganga inn um hlið Heljar, er eg sviftur því, sem eftir er ára minna.
Eg sagði: Eg fæ eigi framar að sjá Jah, Jah á landi lifenda, eigi framar menn að líta hjá þeim, sem byggja dánarheim.
Bústað mínum er kipt upp og svipt burt frá mér, eins og hjarðmannatjaldi. Eg hefi undið upp líf mitt, eins og vefari; hann sker mig frá afugguiuim; áður nótt fylgir degi, lælm þú mig deyja.
Eg þreyði til morguns; eins og ljón sundurmolar hann öll mín bein. Áður nótt fylgir degi, lætur þú mig deyja.
Eg tísti sem svala og kurraði sem dúfa. Augu mín mændu tárvot til hæða: Drottinn, eg er í nauðum — gakk í ábyrgð fyrir mig!
Hvað á eg að segja? Hann hefir talað við mig og hann hefir efnt það! Í auðmýkt vil eg ganga alla æfi mína, vegna beiskju sálar minnar.
Drottinn, af því lifa menn, og í því er líf anda míns algjörlega fólgið; og þú gafst mér heilsuna aftur og lézt mig lifna við.
Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl; og þú forðaðir sálu minni frá gröf eyðingarinnar, því að þú varpaðir öllum syndum mínum að baki þér.
Því að Helja vegsamar þig eigi, dauðinn lofar þig eigi; þeir, sem niður eru stignir í gröfina, vona eigi á trúfesti þína.
En sá sem lifir, sá sem lifir, hann vegsamar þig, eins og eg í dag; feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.
Drottinn er reiðubúinn að hjálpa mér, vér skulum því hreyfa strengina alla daga lífs vors í húsi Drottins.
Og Jesaja bauð að taka skyldi fíkjudeig og leggja á kýlið, og mundi honum þá batna.
En Hiskía sagði: Hvað skal eg hafa til marks um það, að eg megi aftur ganga upp í hús Drottins?