Á sömu stundu komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: Hver er þá mestur í ríki himnanna?
Og hann kallaði til sín barn, setti það mitt á meðal þeirra
og sagði: Sannlega segi eg yður: nema þér snúið við og verðið eins og börnin, komist þér alls ekki inn í ríki himnanna.
Hver sem því lítillækkar sig eins og barn þetta, sá er mestur í ríki himnanna.
Og hver sem meðtekur eitt einasta þvílíkt barn í mínu nafni, hann meðtekur mig.
En hver sem hneykslar einn af þessum smælingjum, er á mig trúa, betra væri honum að stór kvarnarsteinn væri hengdur um háls honum og honum væri sökt í sjávardjúp.
Vei heiminum vegna hneykslananna; því að óumflýjanlegt er, að hneykslanirnar komi, en vei þeim manni, sem hneyksluninni veldur.
En ef hönd þín eða fótur þinn hneykslar þig, þá högg hann af og kasta frá þér; því að betra er þér handarvana og höltum að ganga inn til lífsins, en að hafa tvær hendur og tvo fætur, og verða kastað í hinn eilífa eld.
Og ef auga þitt hneykslar þig, þá ríf það út og kasta því frá þér; betra er þér eineygðum að ganga inn til lífsins, en að hafa bæði augu og verða kastað í Gehenna eldsins.
Sjáið til, að þér eigi fyrirlítið neinn af þessum smælingjum, því að eg segi yður, að englar þeirra á himnum sjá ávalt auglit föður míns, sem er á himnum.
Því að Mannsins sonur er kominn að frelsa það sem glatað var.
Hvað virðist yður? Ef einhver maður ætti hundrað sauði og einn af þeim viltist frá, mundi hann eigi skilja þá níutíu og níu eftir og fara upp í fjöllin og leita hins frávilta?
Og ef svo fer, að hann finnur hann, sannlega segi yður, að hann gleðst meir yfir honum en yfir þeim níutíu og níu, sem eigi höfðu vilst burt.
Þannig er það eigi vilji föður yðar, sem er á himnum, að einn einasti þessara smælingja glatist.
En ef bróðir þinn syndgar á móti þér, þá far og vanda um við hann að þér og honum einum saman; láti hann sér segjast, þá hefir þú unnið bróður þinn.
En láti hann sér ekki segjast, þá tak að auki með þér einn eða tvo, til þess að hvert mál verði staðfest fyrir munn tveggja eða þriggja votta.
En hlýðnist hann þeim eigi, þá seg það kirkjunni; en ef hann einnig óhlýðnast kirkjunni, þá sé hann þér eins og heiðingi og tollheimtumaður.
Sannlega segi eg yður, hvað sem þér bindið á jörðu, skal vera bundið á himni; og hvað sem þér leysið á jörðu, skal vera leyst á himni.
Enn segi eg yður, að ef tveir af yður verða sammála á jörðunni, mun þeim veitast af föður mínum, sem er á himnum, sérhver sá hlutur, sem þeir kunna að biðja um;
því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er eg mitt á meðal þeirra.
Þá gekk Pétur til hans og mælti við hann: Herra, hversu oft á bróðir minn að syndga á móti mér og eg að fyrirgefa honum? Alt að sjö sinnum?
Jesús segir við hann: Ekki segi eg þér: alt að sjö sinnum, heldur alt að sjötíu sinnum sjö.
Fyrir því er ríki himnanna líkt konungi einum, sem gjöra vildi upp reikning við þjóna sína.
En er hann tók að gjöra upp, var færður til hans einn, er skuldaði tíu þúsund talentur.
En er hann hafði ekkert til að borga, skipaði húsbóndi hans að selja skyldi hann, konu hans og börn og allar eigur hans, og að skuldin skyldi verða greidd.
Þá féll þjónninn fram, laut honum og sagði: Herra, haf biðlund við mig, og eg mun gjalda þér alt.
En herra þjóns þessa kendi í brjósti um hann, lét hann lausan og gaf honum upp skuldina.
En er hann fór út, hitti þessi þjónn einn af samþjónum sínum, sem skuldaði honum hundrað denara; og hann greip hann, tók fyrir kverkar honum og sagði: Borga það sem þú skuldar!
Samþjónn hans féll þá fram, bað hann og sagði: Haf biðlund við mig, og eg mun borga þér.
En hann vildi eigi, heldur fór og varpaði honum í fangelsi, uns hann borgaði skuldina.
En er nú samþjónar hans sáu hvað orðið var, urðu þeir mjög hryggir. Og þeir komu og sögðu húsbónda sínum alt, sem orðið var.
Þá lét húsbóndi hans kalla hann til sín og segir við hann: Illi þjónn, eg gaf þér upp alla hina skuldina, með því að þú baðst mig;
bar þá eigi einnig þér að vera miskunnsamur við samþjón þinn, eins og eg var miskunnsamur við þig.
Og húsbóndi hans varð reiður og seldi hann í hendur böðlunum, þangað til hann hefði borgað alla skuldina.
Þannig mun einnig faðir minn himneskur breyta við yður, ef þér eigi hver og einn fyrirgefið af hjarta bróður yðar.
Vers úr Vúlgötunni; ekki í frumtexta þýðingarinnar frá 1908.