Og það bar við, er Jesús hafði lokið þessum orðum, að hann fór burt frá Galíleu og kom til Júdeu-héraða, hinumegin við Jórdan.
Og mannfjöldi mikill fylgdi honum og hann læknaði þá þar.
Og Farísear komu til hans, freistuðu hans og sögðu: Hvort er leyfilegt að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?
En hann svaraði og sagði: Hafið þér eigi lesið, að skaparinn frá upphafi skóp þau karl og konu,
og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og búa við eiginkonu sína, og þau tvö skulu verða eitt hold? —
Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur eitt hold. Það sem Guð því hefir tengt saman, má eigi maður sundur skilja.
Þeir segja við hann: Hvers vegna bauð þá Móse að gefa skilnaðarskrá og skilja við hana?
Hann segir við þá: Vegna harðúðar hjartna yðar leyfði Móse yður að skilja við konur yðar. En frá upphafi hefir þetta eigi verið þannig.
En eg segi yður, að hver sem skilur við konu sína nema fyrir hórdóms sakir, og gengur að eiga aðra, hann drýgir hór; og hver sem gengur að eiga fráskilda konu, drýgir hór.
Lærisveinarnir segja við hann: Ef svo er farið málefni mannsins gagnvart konunni, þá er ekki gott að kvænast.
En hann sagði við þá: Eigi fá allir höndlað þetta, heldur þeir sem það er gefið.
Því að til eru þeir geldingar, sem svo eru fæddir frá móðurkviði; og til eru þeir geldingar, sem geltir hafa verið af mönnum, og til eru þeir geldingar, sem hafa gelt sjálfa sig vegna ríkis himnanna. Sá höndli þetta, er höndlað getur.
Þá voru færð til hans börn, til þess að hann skyldi leggja hendur yfir þau og biðja; en lærisveinarnir ávítuðu þá.
En Jesús sagði: Leyfið börnunum, og bannið þeim eigi, að koma til mín, því að slíkra er ríki himnanna.
Og hann lagði hendur yfir þau og fór burt þaðan.
Og sjá, maður nokkur kom til hans og sagði: Meistari, hvað gott á eg að gjöra, til þess að eg eignist eilíft líf?
En hann sagði við hann: Hví spyr þú mig um hið góða? Einn er sá, sem góður er. En ef þú vilt inn ganga til lífsins, þá hald boðorðin.
Hann segir við hann: Hver? En Jesús segir: Þetta: Þú skalt eigi morð fremja, þú skalt eigi drýgja hór, þú skalt eigi stela, þú skalt eigi bera ljúgvitni;
heiðra föður þinn og móður, og: Þú skalt elska náungann eins og sjálfan þig.
Hinn ungi maður segir við hann: Alls þessa hefi eg gætt; hvers er mér enn vant?
Jesús sagði við hann: Ef þú vilt vera algjör, þá far, sel eigur þínar og gef fátækum, og þú munt eiga fjársjóð á himni; og kom síðan og fylg mér.
En er hinn ungi maður heyrði þetta, fór hann burt hryggur; því að hann átti miklar eignir.
En Jesús sagði við lærisveina sína: Sannlega segi eg yður: torveldlega mun ríkur maður ganga inn í ríki himnanna.
Og aftur segi eg yður: auðveldara er fyrir úlfalda að ganga gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að ganga inn í guðsríkið.
En er lærisveinarnir heyrðu þetta, urðu þeir mjög forviða og sögðu: Hver getur þá orðið hólpinn?
En Jesús leit til þeirra og sagði við þá: Fyrir mönnum er þetta ómögulegt, en fyrir Guði eru allir hlutir mögulegir.
Þá svaraði Pétur og sagði við hann: Sjá, vér höfum yfirgefið alt og fylgt þér; hvað munum vér þá öðlast?
En Jesús sagði við þá: Sannlega segi eg yður, að þér, sem hafið fylgt mér, munuð í endurfæðingunni, þá er mannsins sonur situr í hásæti dýrðar sinnar, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels;
og hver, sem yfirgefið hefir hús eða bræður eða systur eða föður eða móður eða börn eða akra, sakir nafns míns, mun fá hundraðfalt og erfa eilíft líf.
En margir þeir, er fyrstir eru, skulu verða síðastir, og síðastir fyrstir.