Dagatal

Miðvikudagur í 20. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 20

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Í Drottni' ef viltu deyja,Drottni þá lifðu hér,til ills lát ei þig teygja,orð Guðs sé kærast þér.Sæll er sá svo við býst,en ef þig ófall hendir,aftur í tíma vendi,undan drag iðrun síst.Brot þín skalt bljúgur játa,en bið þó Guð um náð,af hjarta hryggur gráta,en heilnæm þiggja ráð.Umfram allt þenktu þó:Son Guðs bar þínar syndir,og, svo þú miskunn fyndir,saklaus fyrir sekan dó.Drottinn, lát mig ei dyljastdárlega syndir við,þó hér um stund megi hyljast.Herra trúr, þess ég bið:Nær heimi fer ég frá,örvænting ei mér grandi,orð þitt og sannleiks andihjartað mitt huggi þá. Amen.

Sálmur 108

Andstef · Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt.

1Ljóð. Davíðssálmur.

2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!

3Vakna þú, harpa og gígja * ég vil vekja morgunroðann.

4Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

5því að miskunn þín er himnum hærri * og trúfesti þín nær til skýjanna.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

7til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa * þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

8Guð hefur sagt í helgidómi sínum: „Ég vil fagna * ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót–dal.

9Ég á Gíleað, ég á Manasse * og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

10Móab er mundlaug mín * í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.“

11Hver vill fara með mig í örugga borg * hver vill flytja mig til Edóm?

12Þú hefur útskúfað oss, ó Guð, og þú * Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

13Veit oss lið gegn fjandmönnunum * því að mannahjálp er ónýt.

14Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna * og hann mun troða óvini vora fótum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt.

Sálmur — Jes 61, 10 – 62, 5 — Fögnuður spámanns yfir hinni nýju Jerúsalem

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðis og réttlætis.

10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins * hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúðgumi lætur á sig höfuðdjásn og brúður býr sig skarti sínu.

11Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta * svo mun hinn alvaldi Drottins láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.

1Sökum Síonar get ég ekki þagað, og sökum Jerúsalem get ég ekki kyrr verið * uns réttlæti hennar rennur upp sem ljómi og hjálpræði hennar sem brennandi blys.

2Þá skulu þjóðirnar sjá réttlæti þitt og allir konungar vegsemd þína * og þú munt nefnd verða nýju nafni, er munnur Drottins mun ákveða.

3Þú munt verða prýðileg kóróna í hendi * Drottins og konunglegt höfuðdjásn í hendi Guðs þíns.

4Þú munt ekki framar nefnd verða Yfirgefin, og land þitt ekki framar nefnt verða Auðn, heldur skalt þú kölluð verða Yndið mitt * og land þitt Eiginkona, því að Drottinn ann þér og land þitt mun manni gefið verða.

5Eins og ungur maður fær meyjar, eins munu synir þínir eignast þig * og eins og brúðgumi gleðst yfir brúði, eins mun Guð þinn gleðjast yfir þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðis og réttlætis.

Sálmur 146

Andstef · Ég vil lofa Drottin meðan lifi.

1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!

2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.

4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.

5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,

8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég vil lofa Drottin meðan lifi.

Stuttur ritningarlestur

5M 4, 39-40aÞér ber í dag að kannast við það og hugfesta það, að Drottinn, hann er Guð á himnum uppi og á jörðu niðri og enginn annar. Þú skalt varðveita boð hans og skipanir, sem ég legg fyrir þig í dag.

Stutt svarvers

Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.

Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.

Ætíð sé lof hans mér í munni.

Alla tíma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Þjónum Drottni í heilagleika alla daga vora.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur er geisli af dýrð Föðurins. Hann lýsi oss með orði sínu. Áköllum hann í kærleika og segjum:Bænheyr oss, konungur eilífrar dýrðar.Blessaður sért þú, höfundur trúar vorrar og sá er fullnar hana,því að þú kallaðir oss frá myrkri til dásamlegs ljóss þíns.Þú opnaðir augu blindra og gafst daufum heyrn,hjálpa vantrú vorri.Gef, Drottinn, að vér séum stöðug í elsku þinni,svo að vér skiljumst ekki hvert frá öðru.Gef oss, að standast freistingar og erfiðleika,og munum eftir að þakka þér á tímum velsældar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Minnstu heilags sáttmála þíns, Drottinn, sem þú endurnýjaðir fyrir blóð Lambsins, svo að, leyst frá allri synd, taki þjóð þín ávallt framförum á vegi hjálpræðisins. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Mig hefur ljúfur lausnarinnleitt inn í náðar grasgarð sinn,vakandi svo ég væri hér,vitni skírnin mín um það ber.Ungdóms bernskan, sem vonlegt var,vildi mig of mjög svæfa þar,foreldra hirting hógværlighans vegna kom og vakti mig.Aldurinn þá mér öðlaðist,á féll gjálífis svefninn mest,kennimenn Drottins komu þrátt,kölluðu mig að vakna brátt.Fullvaxinn gleymsku svefninn sársótti mig heim, og varð mjög dár,dimman heimselsku dróst að með,dapurt varð mitt til bænar geð.Þá kom Guðs anda hræring hrein,í hjartað mitt inn sá ljómi skein,en í heimskunni svo ég svaf,sjaldan mig neitt að slíku gaf.Fárlega var mín fíflskan blind,forlát mér, Jesús, þessa synd,hvar með að jók ég hugraun þér,en hefnd og refsing sjálfum mér. Amen.

Sálmur 139 I

Andstef · Þekking þín er undursamleg, Drottinn, ég er henni eigi vaxinn.

1Drottinn, þú rannsakar * og þekkir mig.

2Hvort sem ég sit eða stend * þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.

3Hvort sem ég geng eða ligg * þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú.

4Því að eigi er það orð á tungu minni * að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.

5Þú umlykur mig á bak og brjóst * og hönd þína hefur þú lagt á mig.

6Þekking þín er undursamlegri en svo, að ég fái skilið * of háleit, ég er henni eigi vaxinn.

7Hvert get ég farið frá anda * þínum og hvert flúið frá augliti þínu?

8Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar * þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar.

9Þótt ég lyfti mér á vængi * morgunroðans og settist við hið ysta haf,

10einnig þar mundi hönd þín leiða * mig og hægri hönd þín halda mér.

11Og þótt ég segði * „Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,“

12þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur * myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þekking þín er undursamleg, Drottinn, ég er henni eigi vaxinn.

Sálmur 139 II

Andstef · Ég, Drottinn, er sá, sem rannsaka hjartað, prófa nýrun, og það til þess að gjalda sérhverjum eftir breytni hans, eftir ávexti verka hans.

13Því að þú hefur myndað nýru mín * ofið mig í móðurlífi.

14Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður * undursamleg eru verk þín, það þekkir sál næsta vel.

15Beinin í mér voru þér eigi hulin * þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.

16Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni * ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.

17En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar * ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.

18Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin * ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér.

23Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt * rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar,

24og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi * og leið mig hinn eilífa veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég, Drottinn, er sá, sem rannsaka hjartað, prófa nýrun, og það til þess að gjalda sérhverjum eftir breytni hans, eftir ávexti verka hans.

Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum

Andstef · Allt er skapað í honum og allt á tilveru sína í honum.

12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.

13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.

14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.

15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.

16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.

17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.

18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.

19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa

20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Allt er skapað í honum og allt á tilveru sína í honum.

Stuttur ritningarlestur

1Jh 2, 3-6Á því vitum vér, að vér þekkjum Krist, ef vér höldum boðorð hans. Sá sem segir: Ég þekki hann, og heldur ekki boðorð hans, er lygari og sannleikurinn er ekki í honum. En hver sem varðveitir orð hans, í honum er sannarlega kærleikur til Guðs orðinn fullkominn. Af því þekkjum vér, að vér erum í honum. Þeim sem segist vera stöðugur í honum, honum ber sjálfum að breyta eins og hann breytti.

Stutt svarvers

Varðveit mig, Drottinn, * sem sjáaldur augans.

Varðveit mig, Drottinn, * sem sjáaldur augans.

Fel mig í skugga vængja þinna,

sem sjáaldur augans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Varðveit mig, Drottinn, * sem sjáaldur augans.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Drottinn, gjör máttarverk með armi þínum; tvístra drembilátum og upphef smælingja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Minnstu, Drottinn, miskunnar þinnar. Eins og þú veitir þeim sem hungrar og þyrstir fyllingu gæða þinna, megi þér þóknast að bæta skort vorn með gnægðum ríkidæmis þíns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 31, 2-6

Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.

2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,

3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.

4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.

5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.

6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.

Sálmur 130

Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.

1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,

2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!

3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?

4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.

5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.

6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.

8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007