Gamla testamentiðSaga
En Abímelek Jerúbbaalsson fór til Sikem til móðurbræðra sinna og talaði við þá og við alt frændlið móðurættar sinnar á þessa leið:
Talið svo í eyru allra Sikem-búa: Hvort mun yður betra, að sjötíu menn, allir synir Jerúbbaals, drotni yfir yður, eða að einn maður drotni yfir yður? Minnist þess og, að eg er yðar hold og bein.
Og móðurbræður hans töluðu öll þessi orð um hann í eyru Sikem-búa, svo að hugur þeirra hneigðist að Abímelek, því að þeir sögðu: Hann er bróðir vor.
Og þeir gáfu honum sjötíu sikla silfurs úr húsi Sáttmála-Baals; og Abímelek leigði fyrir það lausingja og óvendismenn og gjörðist fyrirliði þeirra.
Því næst fór hann til húss föður síns í Ofra og drap bræður sína, sonu Jerúbbaals, sjötíu manns á einum steini; Jótam, yngsti sonur Jerúbbaals, varð einn eftir, því að hann hafði falið sig.
allir Sikem-búar söfnuðust nú saman og allir þeir, sem bjuggu í Milló, og fóru til og tóku Abímelek til konungs hjá merkisteins-eikinni, sem er hjá Sikem.
En er Jótain spurði þetta, fór hann og nam staðar á tindi Garísímfjalls, hóf upp raust sína, kallaði og mælti til þeirra: Heyrið mig, Sikem-búar, svo að Guð heyri yður!
Einu sinni fóru trén að smyrja konung sér til handa; og þau sögðu við olíutréð: Ver þú konungur yfir oss!
ÝEn olíutréð sagði við þau: Á eg að yfirgefa feiti mína, sem Guð og menn virða mig fyrir, og fara að sveima uppi yfir trjánum?
Þá sögðu trén við fíkjutréð: Kom þú og ver þú konungur yfir oss!
En fíkjutréð sagði við þau: Á eg að yfirgefa sætleik minn og ágætan ávöxt minn og fara að sveima uppi yfir trjánum?
Þá sögðu trén við vínviðinn: Kom þú og ver þú konungur yfir oss!
En vínviðurinn sagði við þau: Á eg að yfirgefa vínlög minn, sem gleður bæði Guð og menn, og fara að sveima uppi yfir trjánum?
Þá sögðu öll trén við þyrninn: Kom þú og ver þú konungur yfir oss!
En þyrnirinn sagði við trén: Ef það er alvara yðar, að smyrja mig til konungs, þá komið og fáið yður skjól í skugga mínum. En ef svo er eigi, þá gangi eldur út frá þyrninum og eyði sedrustrjánum á Líbanon.
Nú ef þér hafið sýnt hreinskilni og einlægni í því að taka Abímelek til konungs, og ef þér hafið gjört vel við Jerúbbaal og hús hans og ef þér hafið breytt við hann, eins og hann hafði til unnið —
því að fyrir yður barðist faðir minn og stofnaði lífi sínu í hættu og yður frelsaði hann úr höndum Midíans.
En þér hafið í dag risið upp í gegn húsi föður míns og drepið sonu hans, sjötíu að tölu, á einum steini og tekið Abímelek, son ambáttar hans, til konungs yfir Sikem-búa, af því að hann er bróðir yðar —:
ef þér því hafið sýnt Jerúbbaal og húsi hans hreinskilni og einlægni í dag, þá gleðjist yfir Abímelek og hann gleðjist þá og yfir yður.
En ef svo er eigi, þá gangi eldur út frá Abímelek og eyði Sikem-búum og þeim, sem búa í Milló, og þá gangi eldur út frá Sikem-búum og þeim, sem búa í Milló, og eyði Abímelek.
Síðan lagði Jótam á flótta og flýði burt og fór til Beer; þar settist hann að, til þess að vera óhultur fyrir Abímelek bróður sínum.
Abímelek réð nú fyrir Ísrael í þrjú ár.
Þá Lét Guð sundurþykkis anda koma upp milli Abímeleks og Sikem-búa, svo að Síkembúar rufu trygðir við Abímelek,
til þess að hefnd kæmi fyrir níðingsverkið á þeim sjötíu sonum Jerúbbaals og til þess að hann léti blóð þeirra koma yfir Abímelek, bróður þeirra, sem drepið hafði þá, og yfir Sikem-búa, sem styrkt höfðu hann til að drepa bræður hans.
Settu Sikem-búar þá menn í launsát í móti honum hæst á fjöllum uppi, og ræntu þeir alla þá, er um veginn fóru fram hjá þeim; og Abimelek var sagt frá því.
Þá kom Gaal Ebedsson og bræður hans og héldu þeir inn Í Sikem; og Sikem-búar fengu traust á honum.
Og þeir fóru út á akurinn og lásu vínberin í víngörðum sínum og tróðu þau og héldu hátíð, fóru inn í hús guðs síns og átu og drukku og bölvuðu Abímelek.
Og Gaal Ebedsson sagði: Hver er Abímelek og hver er Sikem, að vér eigum að lúta honum? Er hann ekki sonur Jerúbbaals og Sebúl höfuðsmaður hans? Lútið mönnum Hemors, föður Sikems! En hví skyldum vér eiga að lúta honum?
Eg vildi að fólk þetta væri undir minni hendi, þá skyldi eg ekki vera lengi að reka Abímelek burt og segja við Abímelek: Auk ber þinn og kom út!
En er Sebúl, höfuðsmaður borgarinnar, spurði ummæli Gaals Ebedssonar, upptendraðist reiði hans,
og sendi hann menn á laun til Abímeleks og lét segja honum: Sjá, Gaal Ebedsson og bræður hans eru komnir til Sikem og æsa þeir borgina upp í móti þér.
Tak þig því upp um nótt með liðið, sem hjá þér er, og legstu í launsátur úti á víðavangi;
og að morgni, þegar sól rennur upp, þá skalt þú vera árla á fótum og ráðast á borgina; þá mun hann og liðið, sem með honum er, fara út í móti þér, og skalt þú þá með hann fara svo sem þú fær færi á.
Þá tók Abímelek sig upp um nótt með alt liðið, sem hjá honum var, og þeir lögðust í launsát í fjórum flokkum móti Sikem.
Gaal Ebedsson kom út og nam staðar fyrir utan borgarhliðið, þá spratt Abímelek upp úr launsátinni og liðið, sem með honum var.
Og Gaal sá liðið og sagði við Sebúl: Sjá, þarna kemur fólk ofan af fjöllunum. En Sebúl sagði við hann: Þú sér skuggann í fjöllunum og ætlar menn vera.
En Gaal hélt áfram að mæla og sagði: Sjá, þarna kemur fólk ofan af háhæðinni, og einn hópur kemur frá veginum að töframanna eikinni.
Þá mælti Sebúl við hann: Hvar eru nú stóryrði þín, er þú sagðir: Hver er Abímelek, að vér eigum að lúta honum? Er ekki þetta liðið, sem þú fyrirleizt? Láttu nú sjá, far út og berst við það.
Fór Gaal þá fyrir Sikem-búum og barðist við Abímelek.
En Abímelek sótti svo hart að honum, að hann flýði fyrir honum, og varð þar mannfall mikið alt að borgarhliðinu.
Efr það dvaldist Abímelek í Arúma, en Sebúl rak Gaal og bræður hans burt, Svo að þeir fengu ekki að búa í Sikem.
En daginn eftir fór fólkið út á akurinn, og sögðu menn Abímelek frá því.
Þá tók hann lið sitt og skifti því í þrjár sveitir og lagðist í launsát úti á víðavangi, og er hann sá fólkið koma út úr borginni, réðst hann á þá og vann sigur á þeim.
Abímelek sjálfur og sveitin, sem með honum var, þusti fram og nam staðar fyrir borgarhliðinu, en báðar hinar sveitirnar gjörðu áhlaup á alla þá, sem úti á víðavangi voru, og unnu sigur á þeim.
Því næst herjaði Abímelek á borgina allan þann dag og vann borgina, og drap fólkið, sem í henni var; braut síðan niður borgina og stráði yfir hana salti.
En er allir Þeir menn, sem bjuggu í Sikem-kastala, heyrðu þetta, gengu þeir inn í lvelfinguna í húsi Sáttmála-guðs.
Og er Abímelek var sagt frá því, að allir menn í Sikem-kastala hefðu safnast þar saman,
þá fór Abímelek upp á Zalmón-fjall með alt liðið, sem hjá honum var. Og Abímelek tók öxi í hönd sér og hjó af trjágrein, hóf á loft og lagði á herðar sér og sagði við liðið, sem með honum var: Gjörið nú sem skjótast slíkt hið sama, er þér sáuð mig gjöra.
Þá hjó og alt fólkið hver sína grein, og fylgdu þeir Abímelek og báru að hvelfingunni og lögðu síðan eld í hvelfinguna yfir þeim, svo að allir menn í Sikem-kastala dóu líka, hér um bil eitt þúsund karla og kvenna.
Síðan fór Abímelek til Tebez og settist um Tebez og vann hana.
En í miðri borginni var sterkur turn; þangað flýðu allir menn og konur, já, allir borgarbúar; lokuðu þeir sig þar inni og stigu síðan upp á þakið á turninum.
Nú kom Abímelek að turninum og gjörði áhlaup á hann. En er hann gekk að dyrum turnsins, til þess að leggja eld í hann,
þá kastaði kona ein efri kvarnarsteini í höfuð Abímelek og mölvaði sundur hauskúpuna.
Þá kallaði hann sem skjótast til skjaldsveins síns og mælti við hann: Bregð sverði þínu og deyð mig, svo að eigi verði um mig sagt: Kona drap hann! Þá lagði sveinn hans hann í gegn, og varð það hans bani.
En er Ísraelsmenn sáu, að Abímelek var dauður, fóru þeir hver heim til sín.
Þannig galt Guð ilsku Abímeleks, þá er hann hafði í frammi haft við föður sinn, er hann drap sjötíu bræður sína.
Og Guð lét alla ilsku Sikem-búa koma þeim í koll; rættist þannig á þeim formæling Jótams Jerúbbaalssonar.