Gamla testamentiðSaga
En Efraímítar sögðu við hann: Hví gjörðir þú oss þetta, að kalla oss eigi? Heldur hefir þú farið einn, til þess að berjast við Midíaníta. Og þeir þráttuðu ákaílega við hann.
Þá sagði hann við þá: Hvað hefi eg nú gjört í samanburði við yður? Er ekki eftirtíningur Efraíms betri en vínberjatekja Abíesers?
Í yðar hendur hefir Guð gefið höfðingja Midíans, þá Óreb og Seeb. Hvað hefi eg megnað að gjöra í samanburði við yður? Og er hann hafði þetta mælt, sefaðist reiði þeirra við hann.
Gídeon kom nú að Jórdan og fór yfir hana með þau þrjú hundruð manna, er með honum voru; en þeir voru þreyttir orðnir að reka flóttann.
Og hann sagði við Súkkót-búa: Gefið liðinu, sem fylgir mér, brauðhleifa, því að þeir eru þreyttir orðnir, þar eð eg er að elta þá Seba og Zalmuna, Midíans konunga.
En höfðingjarnir í Súkkót sögðu: Eru þeir Seba og Zalmuna þegar gengnir þér svo í greipar, að vér megum gefa ber þínum brauð?
Þá sagði Gídeon: Sé það svo! Þegar Drottinn gefur Seba og Zalmuna í mínar hendur, þá skal eg þreskja hold yðar með þyrnum eyðimerkurinnar og með þistlum.
Og þaðan fór hann til Pnúel og mælti við þá á sömu leið. En Pnúel-búar svöruðu honum hinu sama og Súkkót-búar höfðu svarað.
Þá sagði hann og við Pnúel-búa á þessa leið: Þegar eg kem aftur heilu og höldnu, mun eg brjóta niður kastala þennan.
En þeir Seba og Zalmuna voru í Karkór og herlið þeirra með þeim — um fimtán þúsundir manna, allir þeir, er eftir voru af öllum her austurbyggja, en eitt hundrað og tuttugu þúsundir vopnaðra manna voru fallnar.
Fór Gídeon nú tjaldbúa-leið fyrir austan Nóba og Jogbeha og réðst á herbúðirnar, þá er herinn ugði eigi að sér.
Þeir Seba og Zalmuna flýðu, en hann elti þá og tók höndum báða Midíans konungana Seba og Zalmuna, og tvístraði öllum hernum.
Eftir það sneri Gídeon Jóasson aftur úr leiðangrinum hjá Heres-stígnum.
Og hann tók höndum svein nokkurn frá Súkkót-búum og kvaddi hann sagna; og sveinninn skrifaði upp fyrir hann höfðingjana í Súkkót og öldungana, sjötíu og sjö manns.
Og er hann kom til Súkkót-búa, sagði hann: Hér eru nú þeir Seba og Zalmuna, er þér hædduð mig fyrir og sögðuð: Eru þeir Seba og Zalmuna þegar gengnir svo í greipar þér, að vér megum gefa þreyttum mönnum þínum brauð?
Og hann tók öldunga borgarinnar og þyrna eyðimerkurinnar og þistla og lét Súkkótbúa kenna á þeim.
Og hann braut niður kastalann í Pnúel og drap borgarbúa.
Síðan sagði hann við Seba og Zalmuna: Hvernig vort þeir menn í hátt, er þið drápuð hjá Tabor? Og þeir sögðu: Þeir voru alveg eins og þú; voru þeir allir slíkir ásýndum, sem væru þeir konungs synir.
Þá sagði hann: Þeir hafa verið bræður mínir, synir móðu minnar. Svo sannarlega sem Drottinn lifir: Ef þið hefðuð gefið þeim líf, mundi eg ekki hafa drepið ykkur.
Því næst sagði hann við Jeter, frumgetinn son sinn: Far þú til og drep þá! En sveinninn brá ekki sverði sínu, því að hann bar ekki hug til, enda var hann ungur að aldri.
En þeir Seba og Zalmuna sögðu: Far þú sjálfur til og vinn A okkur, því að afl fylgir aldri manns. Fór þá Gídeon til og drap þá Seba og Zalmuna og tók tinglin, sem voru um hálsana á úlföldum Þeirra, - Gídeon hafnar konungdómi. Andlát hans.
Þá sögðu Ísraelsmenn við Gídeon: Drotna þú yfir oss, bæði þú og sonur þinn og sonarsonur þinn, því að þú hefir frelsað oss af hendi Midíans.
En Gídeon sagði við þá: Eigi mun eg drotna yfir yður, og eigi mun sonur minn heldur drotna yfir yður; Drottinn skal yfir yður drotna.
Þá sagði Gídeon við þá: Bónar vil eg biðja yður: gefið mér allir eyrnahringa þá, er þér hafið fengið að herfangi. — Því að þeir báru eyrnahringa af gulli, þar eð þeir voru Ísmaelítar. —
Og þeir svöruðu: er viljum fúslega gefa þér þá. Og þeir breiddu út skikkju og köstuðu ljangað hver og einn eyrnahringum þeim, er þeir höfðu fengið að herlangi.
En þyngd þessara eyrnahringa af gulli, er hann beiðst hafði, Ví í eitt þúsund og sjö luindruð siklar gulls, fyrir utan tinglin, eyrnaperlurnar og purpuraklæðin, sem Midíans konungarnir báru, og fyrir utan festar þær, sem voru um hálsana á úlföldum þeirra.
Og Gídeon Sjörði úr því hökullíkneski og reisti það upp í borg sinni, í Ofra, og allur Ísrael tók þar fram hjá með því, og það varð Gídeon og húsi þans að tálsnöru.
Þannig urðu Midíanítar að lúta í lægra haldi fyrir Ísraelsmönnum og máttu aldrei síðan höfuð hefja. Var nú friður í landi í fjörutíu ár, meðan Gídeon var á lífi.
Því næst hélt Jerúbbaal Jóasson heim til sín og bjó í sínu húsi.
Og Gídeon átti sjötíu sonu, sem út gengnir voru af lendum hans, því að hann átti margar konur.
Og hjákona hans, sú er hann átti ’ Sikem, fæddi honum og son, og hann nefndi hann Abímelek.
En sideon Jóasson dó í góðri elli og var grafinn í gröf Jóasar föður síns, Ofra Abíesrítanna.
En er Gídeon var dáinn, tóku Ísraelsmenn enn af nýju fram hjá með Baölum og gjörðu Sáttmáls-Baal að guði sínum.
Og Ísraelsmenn mintust ekki Drottins, Guðs síns, sem frelsað hafði þá úr höndum allra óvina þeirra hringinn í kring;
og ekki auðsýndu þeir heldur kærleika húsi Jerúbbaals — Gídeons — fyrir alt hið góða, sem hann hafði gjört Ísrael.